Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						Auíiur Pétursdóttir,

kennari við barnadeild Langholtsskóla.

TILRAUNAKENNSLA I ENSKU

„1 hve mörg ár hefur enska verið kennd í barna-

deildum Langholtsskóla?"

„Enskukennsla var hafin í Langholtsskóla skóla-

árið 1963—1964 að tilhlutan Fulbright-stofnunar-

innar í Reykjavík og áhuga skólastjóra Kristjáns J.

Gunnarssonar. Fulbright-stofnunin vildi gera til-

raun með enskukennslu barna á Islandi, og var

Kristján fús að taka upp þessa nýjung.

I upphafi var aðeins duglegustu tíu ára bekkj-

unum kennd enska, en auk þess var einni deild í

öðrum bekk gagnfræðaskólans veitt enskukennsla

með talaðferð fyrsta árið. Veturinn 1966—1967 var

tekin upp enskukennsla í öllum tíu ára bekkjum.

Haukur Ágústsson stud. theol. hefur umsjón með

kennslunni.

Þessi fimm ár hefur Langholtsskóli átt því láni

að fagna að hafa vel menntaða og reynda ensku-

kennara frá Fulbright-stofnuninni. Hafa þeir náð

góðum árangri, og er nauðsynlegt, að kennari, sem

kennir erlent tungumál, tali málið reiprennandi.

Góður erlendur kennari getur gert sig skiljanlegan

með látbragði. Þó geri ég ráð fyrir, að það yrði

erfiðara í getuminnstu bekkjunum. 1 þessu sam-

bandi vil ég taka fram, að á þingi Evrópuráðs,

sem ég sat í Osló 16.—26. ágúst síðastliðinn, var

talið mikilvægt, að barnaskólakennari talaði mál

nemenda sinna til að geta skýrt út erfið atriði."

„Hvað myndirðu segja um þann árangur, sem

náðst hefur?"

„Ég myndi telja, að allgóður árangur hefði náðst.

Börnunum þ.ykir málið skemmtilegt og skilja og

geta sagt auðveldar setningar eftir stutta kennslu.

Börn eiga auðveldara með að læra tungumál en

fullorðnir. Þau eru næm á hljóð og ná góðum

framburði í hvaða bekk, sem er.

Getulítil börn þurfa aftur á móti miklu lengri

tíma til að ná sama árangri og hin getumestu

bæði í framburði og rithætti. Enda kemst ég yfir

helmingi minna námsefni hjá þeim. Aðalatriði er

þó, að þau leggi öll stund á ensku, svo að minni-

máttarkennd skapist ekki."

„Krefst ekki tungumálakennsla barna annarra

vinnuaðferða en kennsla unglinga?"

„Að sjálfsógðu verður kennslan með allt öðru

móti. Glósur og stílar hverfa úr sögunni. Leiftur-

spjöld eru notuð til að skýra orð, en þau nægja

þó ekki við smáorðin. Börnunum finnast spjöldin

spennandi, og verður kennslan eins og leikur.

Einnig tölum við um alla hluti í skólastofunni og

börnin sjálf og f jölskyldur þeirra, og verður kennsl-

an mjög persónuleg með þessu móti.

Hröð endurtekning er mikilvægur þáttur ensku-

kennslunnar, og þá tekur allur bekkurinn undir

í kór bæði spurningar um myndir, svör og efnið

í bókinni eftir mínum upplestri. Síðan les einn og

einn, þó að einstaklingslestri verði varla við kom-

ið vegna lélegrar lestrarkunnáttu getuminnstu

barnanna.

Skriflegar æfingar eru nauðsynlegar stöðugt inn

á milli talæfinga, til að töluðu orðin festist börn-

unum betur í minni. En skriflegar æfingar verða

að vera léttar, skemmtilegar og lifandi, jafnvel

með myndum, svo að stöðugur áhugi og gleði hald-

ist hjá getuminni bekkjunum. Bezti bekkur þolir

þurrt efni vegna brennandi fróðleiksfýsnar, en

ekki hinir. Álít ég, að betri árangur náist, ef byrj-

að er á skriflegum æfingum strax. Á þinginu í

Osló álitu margir reyndir kennarar, að í byrjun

ætti einungis að nota talkennslu. Taka verður þá

til greina, að á Norðurlöndum og meðal hinna

menntuðu þjóða Evrópu, eru börnin oft níu eða

jafnvel aðeins átta ára, þegar erlend tungumála-

kennsla hefst."

„Er venjuleg bekkjardeild of fjölmenn fyrir tal-

kennslu?"

„Já, að mínu áliti er venjuleg bekkjardeild of

Framh. á bls. 17.

12

19.  JÚNl

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV