en þar kenndi hún í 30 ár, og höfðu þær aldrei skilið siðan. Þær hétu Lou Mcllvain og Alice Mock og voru báðar góðar söngkonur. Alice Mock söng á sinum tíma með Tito Schipa i Chicago-óperunni. Mrs. Florence Lee Holtzman lærði hjá hinum heimsfræga tenórsöngvara Jan de Reszké. Hann söng í Metropolitan-óperunni með Caruso og var af mörgum talinn mesti söngvari síns tíma. Þegar hann lézt í París, tók Mrs. Florence við nemend- um hans og kenndi þar, eins og áður segir, um 30 ára skeið. A þeim árum kynntist hún mörgum stórsöngvurum, þ. á m. Amelita Gally-Curci og Geraldine Ferrar, sem urðu góðar vinkonur henn- ar. Á meðan ég stundaði söngnámið, kom í stúdí- óið" sænsk stúlka, sem hafði skrifað A. Gally-Curci til að grennslast. eftir, hvort hún kenndi söng. Svar- ið kom fljótlega, að því miður kenndi hún ekki söng, en hún vissi um mjög góðan söngskóla í Hollywood: Mrs. Florence Lee Holtzman's Stu- dio". Miss Lou Mcllvain annaðist undirleikinn fyr- ir nemendur Mrs. Florence, ók bílnum hennar og matreiddi, var sem sagt hennar hægri hönd. Mig langar að geta atviks, sem skeði í marz 1954. Þá gifti sig ein söngkonan úr skólanum að nafni Harriett Argienbright. Hún bað mig að syngja |í brúðkaupi sínu, það væri svo eftirminnilegt að fá stúlku alla ]eið frá Islandi til að syngja. Ég var nú ekki alveg samþykk því, eftir aðeins 6 mánaða nám, en kennari minn sagði, að ég ætti að syngja, hvenær sem tækifæri gæfist. Ég söng meðal ann- ars nokkur þýzk lög, sem varð til þess, að roskinn þýzkur maður, að nafni Johann Bruecker, kom til mín og bauðst til að kosta mig til áframhaldandi náms. Ég hélt, að þessi maður væri eitthvað skrít- inn í kollinum og bað Lou að segja honum, að ég væri gift og ætti barn. Þegar hann heyrði það, varð hann hinn ánægðasti og sagði mér að koma með alla fjölskylduna. Mér fannst þetta svo stór- kostlegt boð, að það var erfitt fyrir mig að trúa þvi. Við þökkuðum honum fyrir með hrærðum huga. Hann sagðist hafa mikla ánægju af að hjálpa ungu listafólki. Og hann gerði það sannarlega í ríkum mæli. Það hefur komið út ævisaga hans og þar sést glöggt, hvern mann hann hafði að geyma. Titill bókarinnar er: Mr. John Bruecker. The man the inventor the philantropist. 1 júní lögðum við af stað, Florence, Lou og ég, yfir þvera Ameríku, en þær áttu sumarbústað í New York-ríki. Þar dvaldist ég þangað til í ágúst, að ég fór heim til Islands. Áður hélt ég tvo sjálf- stæða kirkju-konserta. Þegar heim kom, byrjuðum við Weisshappel að æfa af kappi, og 7. okt. 1954 héit ég mína fyrstu söngskemmtun í Gamla Biói, 5. nóv. á ísafirði og 17. nóv. á Akureyri. 1 janúar 1955 hélt ég aftur vestur um haf og þá með eigin- manninn með mér. Ég söng mikið fyrir ýms félags- samtök og i kirkjum. Eitt sinn fékk kennari minn bréf frá Hollywood Bowl Association", þar sem henni var tilkynnt, að ungu og efnilegu tónlistar- fólki i Los Angeles yrði gefinn kostur á að halda hljómleika og jafnframt veitt sérstök viðurkenning fyrir. Þetta var fjórða Hollywood Bowl Award Program"-tónlistarhátíðin, og fór hún fram með mikilli viðhöfn sumarið 1955. Þessi mikli heiður féll í minn hlut og fékk ég heiðursskjal og verð- launapening ásamt tveim aðgöngumiðum að hljóm- leikum Hollywood Bowl Simphonies under the stars". Áður en ég fór frá Los Angeles hélt ég kon- sert með píanista á vegum California Artists", til ágóða fyrir ungt tónlistarfólk. Á leiðinni til New York hélt ég konserta fyrir Vestur-Islendinga í Seattle, Bellingham, Vancou- ver, Winnipeg, Mountain og Brooking, S.-Dak. Ennfremur í Blaine, Höfn og Mountain fyrir bless- að gamla fólkið. Mín fyrstu óperuhlutverk voru Papagena í Töfraflautunni eftir Mozart og Ottillia í Sumar í Tyrol undir stjórn hins mikilhæfa og dáða tón- listarmanns Dr. Victors Urbancic. Á Norrænu Tónlistarhátíðinni í Reykjavík 1967 söng ég þrjú sönglög eftir Fjölni Stefánsson tónskáld (samin skv. tólftóna kerfi). Af æðri tónlist hef ég sung- ið sóló í Sálumessu Brahms, Magnificat eftir Bach og Messias eftir Hándel undir stjórn Dr. Róberts A. Ottóssonar. Veturinn 196768 söng ég hlut- verk Adinu í Ástardrykknum eftir Donizetti, sem fluttur var í Tjarnarbæ, undir stjórn Ragnars Björnssonar, á vegum hins nýstofnaða félagsskap- ar, Operan". Er óskandi, að sá vísir verði að veg- legri stofnun, íslenzku tónlistarlifi til eflingar og þroska. Hanna Bjarnadóttir. Leitfrétting. 19. júní 19171967. I grein minni um 19. júní 1967, tel ég, að blað Ingu Láru Lárusdóttur, 19. júní", hafi hætt útkomu sinni um áramót 1925, en það mun hafa verið á árinu 1929. P.J. 19. JÚNl 35