Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						mætti ég sem fulltrúi félagsins á Þingvallafundi

Kvenréttindafélagsins 1944. Það var ógleymanleg-

ur fundur. Lýðveldishátíðin nýafstaðin, fognuður

og vor í lofti, og féll í ljúfa löð að gera Kven-

réttindafélagið að landsfélagi, en á því höfðu ver-

ið ýmsir örðugleikar áður. Um haustið gekk ég

svo auðvitað í félagið. Formaður þess var ég svo

frá 1947 til 1964, en varaformaður 1946^7.

Fyrsta trúnaðarstarf mitt var að fara sem fulltrúi

félagsins á 75 ára afmæli Dansk Kvindesamfund

og á fund Norræna kvenréttindasamhandsins, sem

haldinn var samtímis. Eftir það fór ég á hvem

einasta fund Alþjóðakvenréttindafélagsins, sem

haldinn er þriðja hvert ár víðs vegar um heim,

og var í stjórn þess um skeið. Enn fremur í stjórn

Krabhameinsfélagsins frá stofnun og í stjórn sam-

takanna „Vernd". Átti sæti í framkvæmdastjórn

Hallveigarstaða, og síðustu árin, sem stjórnin starf-

aði, var ég formaður hennar, þar til byggingu

Hallveigarstaða var lokið og hún afhent hinum

þremur aðildarfélögum."

Sigríður J. Magnússon var löngum ritstjóri eða

í ritstjórn „19. júní", blaðs K.R.F.I., og síðustu

fjögur árin, sem hún var ritstjóri þess, var ég í

ritnefndinni með henni þar og kynntist henni að

öllu góðu og þeirri glaðværð, sem gerði allt sam-

starf skemmtilegt, frjálst og eðlilegt. Það var blátt

áfram gaman að geta unnið að þvi, að blaðið yrði

sem bezt úr garði gert. Þá má ekki gleyma gest-

risni hennar heima hjá henni, þar sem oftast varð

að vera vinnustaðurinn, og því góða kaffi, sem

alltaf var framreitt þar. Nú þegar frú Sigríður er

að eigin ósk hætt störfum við ritstjórn „19. júní",

skal henni þakkað mikið og óeigingjarnt starf, hug-

kvæmni og árvekni við að gera þetta eina málgagn

K.R.F.l. svo vel úr garði, að margir útlendingar,

sem ég hef sent það, hafa lokið á það miklu lofs-

orði.

Að lokum segir frú Sigríður: „Ég hef alltaf

kunnað vel við mig hér í Reykjavík, en þó eru

það tveir aðrir staðir, sem togast á í huga mínum,

hraunið, vatnið og hlíðin á Vífilsstöðum og fjöll-

in í Arnarfirði. Þótt ég hafi viða farið um ævina,

hef ég hvergi séð þeirra líka."

Og hér með óska ég henni allra heilla.

Sigr. E.

Nýr

doktor

Guðrún P. Helgadóttir

Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri, varði í des-

ember s. 1. doktorsritgerð sína um Hrafns sögu

Sveinbjarnarsonar við háskóla í Oxford. Dr. Guð-

rún er þekktur kennari og islenzkufræðingur og

hefur verið skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík

s. 1. 10 ár.

Guðrún er fædd 19. apríl 1922, dóttir Helga

Ingvarssonar yfirlæknis á Vífilsstöðum og konu

hans Guðrúnar Lárusdóttur. Lauk B.A.-prófi í ís-

lenzku, ensku og heimspeki við Háskóla Islands

1949. Hún var ritstjóri „19. júní" árið 1958 til

1963 og gegndi því starfi með ágætum. Bækur

hennar, Skáldkonur fyrri alda, eru mörgum kunn-

ar, einnig Sýnisbók íslenzkra bókmennta, sem hún

vann að með dr. Sigurði Nordal og manni sínum,

Jóni Jóhannessyni, prófessor. Blaðið óskar Islandi

til hamingju með hinn nýja doktor, og Guðrúnu

P. Helgadóttur með þessa miklu viðurkenningu.

H.G.

19.  JÚNÍ

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV