Hól/nfriSur og Sigga Lina Þessi kvenréttindi hafa verið til ills eins. Þær höfðu það miklu betra frúrnar í gamla daga, sem létu vinnukonurnar um leiðinlegustu störfin og höfðu svo barnapíu." Þetta sagði ung, reið kona á því að konumar eru óneitanlega hluti af því. Hitt er ekki ætlunin að koma með einhver þjóðráð, sem leysi allan vanda þessa máls. Það er ekki á minu færi í dag, þar eð mér sýnist, að þjóðfélögin sem slík og þá lika staða konunnar í þeim, séu í hraðfara breytingu . Aldagamlir siðir og venjur í okkar vestræna heimi hafa breytzt, nýjar hug- myndir skjóta upp kollinum, þéttbýlar borgir taka við fólki úr sveitaþjóðfélögum, og hvernig þau margvíslegu þjóðfélagslegu vandamál, sem nú er við að glíma, verða leyst, veit enginn. Það er eitthvað hlálegt við það, þegar fólk fer að ræða þá spurningu, hvort karlmenn eigi að standa upp fyrir kvenfólki í strætó, þegar rétt- indi kvenna eiga að vera á dagskrá. Að minu viti eru slíkar spurningar algjörlega fánýtar og út í hött. Slíkt kemur ekkert við mannréttindum kven- fólks fremur en það varðar stéttabaráttu, hvort fólk leggur i vana sinn að sleikja hnífinn eða ekki. Hvort einhverjar þjóðir setja sér þær reglur að sýna kvenfólki, karlmönnum eða börnum einhvers konar riddaramennsku til þess að punta upp á lífið, hlýtur að vera fremur skylt trúarathöfnum en kvenfreisi. Að fá sömu laun fyrir sömu vinnu er af allt öðrum toga spunnið. Hólmfríður Gunnarsdóttir: Hver vill veröa að saltstólpa? ? dögunum. Vissulega hafði hún nokkuð til síns máls, enda þótt kvenréttindahreyfingin hafi ekki til muna breytt atvinnuháttum landanna. Til þessara þjóðfélagsbreytinga liggja aðrar ástæður. En vissu- lega var ekki leiðinlegt að vera fín frú", áður en það uppgötvaðist, að vinnukonur eru líka mann- eskjur. Mig langar að leggja hér fram ýmsar stað- reyndir viðvíkjandi stöðu konunnar í þjóðfélaginu. Ef farið er út í þá sálma, verður ekki hjá því komizt að minnast aðeins á þjóðfélagið yfirleitt, 16 Fyrir nokkru sá ég sjónvarpsþátt, þar sem þessi mál voru rædd. Þar var það vottfest, að konur hefðu samkvæmt lögum sömu laun fyrir sömu vinnu og jafna möguleika til að komast áfram" eins og kallað er. En allir vita, að þetta er aðeins hálfur sannleikur. Karl og kona, sem hefja sams konar störf hjá sama fyrirtæki, hafa ekki sömu möguleika til frama og hækkaðra launa. Hve mörg eru ekki dæmin um það, að karlmenn eru innan tíðar titlaðir fulltrúar eða eitthvað slíkt og þar með hækkaðir til muna í launum, þótt þeir hafi ekki 19. JÚNÍ