Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						hjá körlum. Það vefst oftar fyrir konum

en körlum hvar þær vilja bera niður á

vinnumarkaðnum og þá er ekki ein-

göngu átt við þær sem eru ungar og að

koma í fyrsta skipti út á markaðinn

heldur einnig eldri konur sem eru að

skipta um starf.

Þeim virðist ekki Ijóst hvað þær vilja.

Mjög erfitt er að vinna með slíkar um-

sóknir."

Þórir: „Nei, þær koma yfirleitt betur

undirbúnar. Menntun, aldur, vinnu-

umhverfi o.fl. hefur hins vegar töluvert

að segja um undirbúninginn og þann

tíma sem tekur að koma sér í viðtalið.

Konur eru yfirleitt með mótaðri skoðan-

ir á því hvers konar starf þær vilja og

hjá hvernig fyrirtækjum þær vilja starfa.

Flestar óska frekar eftir starfi hjá fjöl-

mennum fyrirtækjum en fámennum.

Það er áberandi að fólk í atvinnuleit

spyr meira um fyrirtækin en áður, t.d.

hvort fyrirtækið sé traust, hvernig starfs-

andinn sé o.s.frv. Þetta á við um bæði

kynin.

Er munur á launakröfum

karla og kvenna?

Oddrún: Erfitt er að svara þessari spurn-

ingu. I dag er umsækjendum illa við að

setja fram ákveðnar kröfur um laun og á

það við um bæði karla og konur. Kemur

þar að sjálfsögðu til núverandi ástand í

atvinnumálum þjóðarinnar þar sem bar-

ist er um hvert starf sem losnar. I aukn-

um mæli eru umsækjendur farnir að

velta fyrir sér öðrum hlutum en ná-

kvæmlega þeim krónum sem koma í

launaumslagið fyrstu mánuðina, þ.e.

hvort fyrirtækið sé traust fjárhagslega,

hvort möguleikar séu á stöðuhækkun

eða starfsskiptum innan þess og hvort

aðbúnaður sé góður. Þótt alþjóð viti að

hefðbundin kvennastörf eru verr launuð

en hefðbundin karlastörf þá ber þess að

gæta að ekki eru öll karlastörf vel laun-

uð og þessa stundina virðast umsækj-

endur flestir vera með raunhæfar vænt-

ingar um laun í samræmi við menntun

sína og reynslu.

Þórir: Nei, ekki ef miðað er við ein-

staklinga með sambærilega menntun og

starfsreynslu, nema ef vera skyldi að

launakröfur kvenna væru hærri, sérstak-

lega ef um sérhæfð eða almenn skrif-

stofustörf er að ræða.

Er eðlilegt að spurt sé um

fjölskylduhagi?

Oft hafa heyrst vangaveltur um það

hvort atvinnurekendur varði um fjöl-

skylduhagi umsækjenda og jafnvel

gengið um það sógur, reyndar óstað-

festar, að konur hafi þurft að skrifa und-

ir skjal þess efnis að þær muni ekki

eignast börn eitthvert tiltekið tímabil.

TILLAGA AÐ

STARFSUMSÓKN

Ég undirrituð, Guðrún Guðmundsdóttir, sæki hér með um starf fjármálastjóra

sem auglýst var laust til umsóknar í Morgunblaðinu 15. maí 1992. Eftirfarandi

er stutt yfirlit yfir menntun mína og fyrri störf.

Persónulegar upplýsingar:

Nafn: Guðrún Guðmundsdóttir, kt. 010155-9999

Heimili: Hringbraut 345, 101 Reykjavík

Sími: 99 99 99

Maki: Jóhann Jóhannsson

Börn: Tvö börn, fædd 1978 og 1980.

Menntun:

1975 Stúdent, stærðfræðideild MR

1982 Lögfræðingur, Háskóli íslands

1988 Word Perfect og Plan Perfect námskeið.

Starfsreynsla:

1973-77 Almenn bankastörf, Landsbanki íslands (sumarstörf)

1978-81 Blaðamaður, Nýja fréttablaðið (sumarstörf)

1982-87 Lögfræðingur, Aðal-lögfræðistofan

1987-92 Fjármálastjóri, íslenska innflutningsfyrirtækið.

Aðrar upplýsingar

Mjög góð kunnátta í ensku og dönsku, sæmileg þýskukunnátta. Er vön tölvu-

notkun, algengustu ritvinnslukerfum og töflureiknum s.s. VVP, Word, Plan Per-

fect og Excel.

Áhugamál

Helstu áhugamál eru útivist (skíði og gönguferðir), Ijósmyndun og söngur. Hef

verið í stjórn Söngvarafélagsins s.l. 4 ár.

Meðmæli

Albert Albertsson, ritstjóri Nýja fréttablaðsins (sími 96 96 96)

Birgir Birgisson, frkv.stj. Aðal-lögfræðistofunnar (sími 95 95 95)

Davíð Davíðsson, forstjóri íslenska innflutningsfyrirtækisins (sími 86 86 86).

Ef nánari upplýsinga er óskað verða þær að sjálfsögðu gefnar. Meðfylgjandi

eru Ijósrit af prófskírteinum mínum og meðmælaþréfum.

Reykjavík. . .

Ekki könnuðust Oddrún og Þórir við

slíkt en okkur lék hugur á að heyra álit

þeirra á því hvort eðlilegt sé að atvinnu-

rekendur vilji fá upplýsingar um fjöl-

skylduhagi.

Oddrún: Það er varla hægt að áfellast

verðandi vinnuveitanda fyrir að spyrja

um fjölskylduhagi umsækjenda. Þjálfun

starfsmanna er mjög dýr og það hlýtur

að skipta máli fyrir fyrirtæki hvernig að-

stæður eru heima fyrir, t.d. hvað varðar

ung börn. Koma þar til bæði mögulegar

fjarvistir vegna veikinda barna og lík-

indi á einbeitingarskorti í starfi vegna

ástands heima fyrir og hvort viðkom-

andi sé bundinn við það að sækja barn

í vistun á ákveðnum tíma á hverjum

degi. Hins vegar má ekki einblína um of

á þessa hluti með því t.d. að útiloka

einstæða móður frá ákveðnu starfi bara

vegna þess að hún er ein með börn eða

útiloka unga stúlku eingöngu vegna

þess að hugsanlega muni hún eignast

barn í framtíðinni. Alltaf má búast við

einhverju ófyrirsjáanlegu í starfsmanna-

haldi og varla er mikið verra að missa

konu í barneignarfrí en karl sem fót-

brotnar og lendir á spítala fyrirvaralaust.

Þórir: Já og um framtíðaráætlanir fjöl-

skyldunnar. Það getur þó farið eftir eðli,

ábyrgð og umfangi starfsins. Sömuleiðis

vegna húsnæðis ef um er að ræða bú-

ferlaflutninga. Vegna smæðar markað-

arins og samkeppnisaðstæðna getur

reynst nauðsynlegt að fá upplýsingar

um stöðu maka og foreldra, jafnvel

tengdaforeldra.

Hvernig á umsóknin að vera?

Fyrstu  tengsl  atvinnuumsækjanda  við

fyrirtækið sem auglýsir er sjálf umsókn-

16

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60