Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						Það sem börnunum

er fyrir bestu

„Foreldrum ber að sýna barni sínu umhyggju og nærfærni og gegna forsjár- og uppeldisskyldum sínum

svo sem best hentar hag barns og þörfum. Foreldrum ber að afla barni sínu lögmætrar fræðslu og ala

með því iðjusemi og siðgæði." Þannig hljóðar fyrsta málsgreinin í kafla sem fjallar um foreldraskyldur í

nýju frumvarpi til barnalaga sem lagt var fram á Alþingi í vetur. Barnalögunum er ætlað að tryggja að

réttur barnsins sé hafður í fyrirrúmi þar sem lögð er áhersla á að foreldrar hafi skyldum að gegna gagn-

vart börnum sínum og að börn hafi rétt á umgengi við báða foreldra sína. Ekki virðist vanþörf á að hafa

sem tryggasta löggjöf til handa börnum því nú er svo komið í þjóðfélaginu að af ýmsum ástæðum eru

afar mörg börn ákaflega illa stödd og augljóst að við þurfum að vera betur vakandi yfir réttindamálum

barnanna og skyldum foreldra eða uppalenda gagnvart þeim.

Barnalög í gildi frá 1921

Lög sem varða hag barna hafa þó verið

hér í gildi frá árinu 1921. Það ár voru

sett tvenn barnalög. Annars vegar „Lög

um afstöðu foreldra til óskilgetinna

barna" og hins vegar lög um skilgetin

börn. í lögunum var skilgreint hvernig

framfærsla og uppeldi barnanna ætti að

vera. Það var síðan ekki fyrr en árið

1981 sem sett voru heildar-

lög sem gilda bæði fyrir

skilgetin og óskilgetin börn,

um forsjá, skyldur og rétt-

indi barna. En endurskoðun

á þeim lögum var lögð fyrir

Alþingi í vetur.

Fæstir kynna sér að

neinu ráði lögin sem í land-

inu gilda, enda eru þau oft

þannig orðuð að erfitt er að

skilja við hvað er átt. Lög

um málefni barna koma

okkur öllum við og verður

hér reynt að veita nokkra

innsýn í þau með því að

stikla á stóru um helstu at-

riðin og fjalla um nokkrar

af þeim nýjungum sem eru

í frumvarpinu til barnalaga.

Sjöfn Kristjánsdóttir, lög-

fræðingur, sem hefur starf-

að mikið fyrir Kvennaráð-

gjöfina, var greinarhöfundi

innan handar og einnig var

leitað til Hjördísar Hjartar-

dóttur, félagsráðgjafa og

starfsmanns Barnaverndar-

nefndar hjá Félagsmála-

stofnun Reykjvíkurborgar,

og hún beðin að segja álit

34

sitt á frumvarpinu og hvernig hún telur

að það eigi helst eftir að koma börnum

til góða.

Öll börn hafa jafnan rétt

í frumvarpinu er tekið fram að lögin taki

til allra barna, sem þýðir að öll börn eru

jafn rétthá. ítarlega er fjallað um faðerni

barna og meðal þess sem er nýtt í þessu

frumvarpi er að nú er hætt að tala um

skilgetin og óskilgetin börn því réttur

allra barna er hinn sami. Einnig er hér

nýtt að eiginmaður eða sambúðarmað-

ur, sem samþykkt hefur að kona hans

fari í tæknifrjóvgun þar sem notað er

sæði úr öðrum manni, telst faðir barns-

ins. Þetta er gert til að tryggja rétt barns-

ins ef til skilnaðar kæmi,

því annars gæti faðirinn vef-

engt faðernið og þar með

losað sig undan öllum

skyldum gagnvart barninu.

Börn geta krafist

fjárframlaga til

menntunar

í kaflanum um framfærslu

barna eru nokkur atriði sem

mörgum einstæðum mæðr-

um kæmi án efa vel að vita

um. Þar segir m.a. að með-

lag með barni megi ekki

ákveða lægra á mánuði en

það sem Tryggingastofnun

ríkisins greiðir en aftur á

móti má semja um hærri

greiðslur. Almennt er skylda

að greiða með börnum þar

til þau verða 18 ára en barn

getur krafist þess að fá fjár-

framlag til menntunar eða

starfsþjálfunar þar til það er

20 ára. Hægt er að fara

fram á sérstakar greiðslur

frá föður vegna útgjalda við

skírn      barns,      fermingu,

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60