19. júní


19. júní - 19.06.1994, Blaðsíða 9

19. júní - 19.06.1994, Blaðsíða 9
„Launamisrétti aldrei eins mikið" Bjarnfríður Leósdóttir hefur tekið þátt í baráttu kvenna fyr- ir bættunt kjörum frá því hún var ung stúlka. „Fyrstu veru- legu afskipti mín af verkalýðs- málum var að taka þátt í ólöglegu verkfalli í síldinni. Þá var ég gift kona og móðir. Þá var ekki til siðs að giftar konur ynnu úti, en við vorum margar sem blupum í síld á haustin til þess að ná okkur í einhvern auka- pening. Atvinnurekendur neyddust til að semja við okkur og ég var sett í samningan- efnd, fór til Reykjavíkur, og satt að segja varð ég mjög undrandi og reið þegar ég fann hvernig átti að koma fram við okkur. Eftir þetta varð ekki aftur snúið. Eg hef alltaf verið mjög áköf og af því að ég er kona hef ég verið talin frekja. Ég hef alltaf farið eftir sannfæringu minni og réttlætis- kennd. Meðan ég tók þátt í verka- lýðsbaráttunni hér á Akranesi var heilmikill uppgangur í þessum mál- um og mér fannst við ná talsverðum árangri, það var tekið eftir því sem við vorum að gera. Við náðum oft góðum samningum, sérstaklega þeg- ar við gátum samið hér heima. Ég get ekki að því gert að mér finnst verkalýðshreyfmguna hafa sett niður. Eg finn að fólk ber ekki sama traust til for- ystunnar og áður. Býst ekki við miklu sér til handa, finnst að forystan hafi lagst á sveif með ríkisstjórn og atvinnurekendum, og sæst á að kaup almenns launafólks skuli vera svona lágt eins og raun ber vitni. Auðvitað á maður ekki eingöngu að liengja sig á foryst- una, almenningur verður að halda vöku sinni. Hinn þríhöfða þurs valdsins, sem ræð- ur yfir auðæfum lands og þjóðar, er fljótur að sýna sig ef færi gefst og knésetja alþýð- una. Það eina sem dugar móti þessu valdi er sameinuð verkalýðshreyfmg og hún þarf auðvitað að brýna það vopn sem hún á og nota það. Meinatæknar, sem eru eingöngu konur, hafa tekið forystuna í kjaramálum og ég vona að þær hafi haft erindi sem erfiði, í mjög þröngri stöðu og án mikillar hvatn- ingar eða samstöðu annarra verkalýðsfé- laga, þó með undantekningum og nefni ég t.d. Kennarasamband íslands og Bandalag starfsmanna ríkisins þar sem konur eru í miklum meirihluta. Alþýðusamband ís- lands og stóru samböndin innan þess sýndu þessari baráttu meinatækna ekki mikinn áhuga. Þetta segir sína sögu um launastefnu Alþýðusambandsins." - Hver er staða kvenna á vinnumark- aðinum í dag að þínu áliti? „Hér á Akranesi hefur alltof lengi verið mikið atvinnuleysi og það hefur fyrst og fremst bitnað á konum. Það er umhugsun- arefni hvað það er í raun dulið, konurnar eru heima. A tekjum þessara láglauna- kvenna er ekki mikill munur frá því þær væru í fullri vinnu, vegna þess að atvinnuleysisbætur eru miðaðar við lág- markslaun sem eru innan við 50 þúsund krónur fyrir heilsdags vinnu. Og ef þær eru með börn fá þær einhverja óveru nteð þeim en meðan þær eru atvinnulausar taka þær börnin úr gæslu svo í sumum tilfellum geta þær haft örlítið rýmri fjárhag en ef þær væru í fullri vinnu. Atvinnuleysið verður sýnilegra ef karlar á hærri launum missa vinnuna og konur sem vinna í bónus, en bæturnar eru mið- aðar við lægstu launin sem konur þekkja Viðtal: Valgerður Katrín Jónsdóttir svo vel. Svona er staðan þrátt fyrir landslög urn launajafnrétti. Þar að auki rnissa kon- urnar með lægstu launin fyrstar vinnuna. Ég tel að launamisrétti hafi aldrei verið eins himinhrópandi og nú og það bitnar fyrst og fremst á konum. Það má segja að það sé niðurlæging verkalýðshreyfingarinn- ar að sætta sig við þessa lágu taxta sem eng- inn getur í raun lifað á. Að vinna allan daginn og eiga ekki fyrir mat sínum er óþolandi. Með því að sætta sig við þessi laun er líka verið að ákveða laun allra tryggingarþega auk atvinnuleysisbóta, vísi- tölu og margs annars sem varðar líf al- mennings.“ — Ertu hætt að skipta þér af starfi stétt- arfélaganna? „Ég þótti of frek í verkalýðshreyfmgunni og flæmdist úr röðum Alþýðusambandsins, þar sem mér fannst misréttið hvað átakan- legast. En ég var varla horfm úr þeirra röð- um fyrr en ég var aftur farin að skipta mér af málum stéttarfélaga, og þá innan Kenn- arasambands íslands. Það er ólíkur vett- vangur. Ég hef verið í fulltrúaráði Kenn- arasantbandsins í nokkur ár undir forystu Svanhildar Kaaber. Það hefur verið stór- kostlegur tími. Aldrei hef ég orðið vör við óheilindi, eða flokkadrætti, og alltaf hafa mál verið lögð á þann veg fyrir að það hef- ur verið augljóst hvað átt er við. Það er ólíku saman að jafna eða innan Alþýðu- sambandsins. Ég tók þátt í að stofna Samtök levenna á vinnumarkaði. Við ætluðum okkur stóra hluti, jafnvel að ldjúfa verkalýðsforystuna, þannig að konur næðu forystu í sínurn mál- um. Við náðum eyrum fólks með ýmsu móti, stórum útifundum 1. maí í trássi við forystuna og studd- um konur eftir mætti til áhrifa innan hreyfmgarinnar en það virðast allir festast í þessu feni og fá sig ekki hreyft. Það er eins og eitthvert skrímsli teygi arma sína til okkar og dragi úr okkur allan mátt. Það vant- ar einhvern, einhverja með sverð og skjöld til að berjast við þetta skrímsli og sigra það. Það afl sem við þurfum býr auðvitað í okkur sjálfum og það vinnur þetta stríð enginn fyrir okkur. Við verðum að gera það sjálf. Sameinaðir stönd- um vér, sundraðir föllum vér.“ - Hvað frnnst þér helst hafa unnist í kvennabaráttu undanfarinna ára? „Á mörgum sviðunt hafa orðið gífurleg- ar breytingar. Það er með ólíkindum að í lok þessarar aldar skulum við sjá tvær kon- ur standa hæst í íslensku þjóðlífi. Forseta okkar, hana Vigdísi Finnbogadóttur og nú Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgar- stjórann í Reykjavík. Það hríslast um mann sælutilfmning. Þetta er annar heim- ur, annað land og ég trúi því að það verði ekki aftur snúið. Og ég segi af öllu hjarta, Guð blessi störf þeirra fyrir land og þjóð. Þessir síðustu dagar minna mig á þá stund þegar ég stóð ung stúlka á Þingvöllum fyrir 50 árurn, í ausandi rigningu, þegar lýð- veldið var hringt inn með öllum kirkju- klukkum landsins og vígt skírnarvatni him- insins. Þá stóð ég holdvot ásamt öðrum landsmönnum og söng Ó Guð vors lands. Síðan hef ég ekki verið söm manneskja. Þá vaknaði í mér þessi sterka þjóðerniskennd, sent hefur ekki sofnað síðan og fylgt mér inn í stjórnmálin og verkalýðshreyfmguna.“ — Hvað finnst þér hægt að gera til að bæta kjör kvenna? „Þeir sem verða undir í samfélaginu verða fyrst og fremst að frelsa sig sjálfir, 9

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.