Arnbjörg Sveinsdotlir Asta R. .lohannesdottir Guflný Guobjörnsdottir Siv Friflleiisdottir 19. júní býður nýjar þingkonur velkomnar til starfa, nöfn þeirra fara hér á eftir ásamt yfirliti yfir menntun og helstu trúnaðarstörf Arnbjörg Sveinsdóttir, Sjálfstðisflokki Hún er fædd í Reykjavík 18. febrúar 1956. Hún stundaði laganám við HÍ 1980-1982. Hefur verið í bæjarstjórn Seyðisfjarðar frá 1986, forseti hennar um skeið. í stjórn Sam- taka sveitarfélaga á Austurlandi, formaður 1991-1992. Á sama tíma var hún formaður Landshlutasamtaka sveitarfélaga. í stjórn héraðsskjalasafns. Asta R. Jóhannesdóttir, Þjóðvaka Húnerfædd 16. október 1949. Var viðnám í félagsvísindum og ensku við HÍ 1969-1973. Sat í útvarpsráði 1987-1995. í stjórn Landssambands framsóknarkvenna 1983-1989. í stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur 1983-1994. I framkvæmdastjórn Framsóknar- flokksins 1986-1995. í miðstjórn flokksins 1984-1995. Bryndís Hlöðversdóttir, Alþýðubandalagi Fædd á Selfossi 8. október 1960. Lauk lögfræðiprófi frá HÍ 1992.1 stjórn Abyrgðarsjóðs launa 1993-1995. í siðaráði landlæknis síðan 1994. Fulltrúi á Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf 1993-1995. í stjórn Kvenréttindafélags íslands frá 1992, formaður þess 1995. Guðný Guðbjörnsdóttir, Kvennalista Fædd í Reykjavík 25. maí 1949. BA-próf í sálarfræði frá Vassar College, Bandaríkjunum 1971. M.Sc-próf í sálarfræði frá háskólanum í Manchester í Englandi, 1974. Doktors- próf í uppeldisfræði frá háskólanum í Leeds, Englandi 1987. I barnaverndarnefnd ReykjavíTcur 1978-1982. í jafnréttisnefnd Reykjavíkur 1986-1990. í stjórn Rannsókna- stofu í kvennafræðum við HÍ síðan 1990. í fagráði hugvísindadeildar Vísindaráðs síðan 1994. Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista Hún er fædd í Varmahlíð í Reykjadal 20. október 1939. Hún lauk Stúdentsprófi frá MA 1960 og kennaraprófi frá KÍ 1961. Ritstjóri Vikunnar 1974-1979. Starfskona Samtaka um kvennalista 1989-1995. Formaður Ferðamálaráðs 1989-1993. Sat áður á þingi fyrir Kvennalista. Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki Fædd í Osló 10. ágúst 1962. Lauk stúdentsprófi frá MR 1982 og BS prófi í sjúkraþjálfun frá HÍ 1986. í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar frá 1990. Formaður SUF frá 1990-1992. í framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins 1990-1992. í nefnd um velferð barna og ung- linga 1992. Svanfríður Jónasdóttir, Þjóðvaka Hún er fædd í Keflavík 10. nóvember 1951. Lauk kennaraprófi frá KÍ 1972 og stúdents- prófi þaðan 1973. Hún var bæjarfulltrúi á Dalvík 1982-1990 og síðan 1994, forseti bæj- arstjórnar 1988 og síðan 1994. Varaformaður Alþýðubandalagsins 1987-1989. Varafor- maður Þjóðvaka 1995. 12