Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						RANNSOKNIR

Ný sýn á frœðigreinarnar

Fléttur -fyrsta rit í ritröð Rannsóknastofu í Kvennafrœðum komið út.

Rannsóknastofa

í Kvennafræð-

um við HI tók

til starfa árið 1991 samkvæmt reglugerð

frá menntamálaráðuneytinu. Forstöðu-

maður stofunnar er Þórunn Sigurðar-

dóttir en í stjórn hennar eru Guðný

Guðbjörnsdóttir dósent, Helga Kress

prófessor, Kristín Björnsdóttir dósent,

Guðbjörg Jóhannesdóttir stúd. theol,

Rannveig Traustadóttir lektor og Sig-

ríður Th. Erlendsdóttir sagnfræðingur.

Rannsóknastofan er til húsa skammt frá

Tæknigarði í húsi sem ber hið stór-

brotna nafn Sumarhöll. 19. júni sótti

Rannsóknastofuna heim til að grennsl-

ast fyrir um starfsemina.

Þórunn fékk áhuga á kvennafræðum er

hún var við nám í íslensku og almennri

bókmenntasögu við Háskóla Islands.

„Það var Helga Kress bókmenntafræð-

ingur sem hélt fyrsta námskeiðið í

kvennafræðum við Háskóla fslands

skólaárið 1980-1981 og ég var í hópn-

um sem tók það. Við mynduðum les-

hring og höfum hist reglulega síðan, um

það bil einu sinni í mánuði, nú í fimmt-

án ár, og lesið saman kvennabókmennt-

ir. Þegar ég var nýkomin heim frá

Bandaríkjunum 1992, þar sem ég hafði

verið við störf á íslenska bókasafninu í

Cornellháskóla, Fiskesafninu, var ég

beðin um að vinna við gagnagrunn um

íslenskar kvennarannsóknir sem Rann-

sóknastofa í kvennafræðum hafði

hrundið af stað. Lætur nærri að nú séu

um 300 titlar, bækur og greinar, komnar

í gagnabankann."

Að auki hefur Þórunn unnið við stjórn-

sýslu á vegum stofunnar og útgáfustörf,

en fyrirlestrar eru haldnir reglulega og

fréttabréf gefin út þrisvar á vetri. Sam-

starf er einnig við rannsóknastofur er-

lendis, samtök kvennafræðinga í Evr-

ópu, WISE, en samtökin eru opin ein-

staklingum og stofnunum sem áhuga

hafa á kvennafræðum. WISE gefur út

þverfaglegt tímarit ársfjórðungslega og

fréttabréf fjórum sinnum ári. Auk þess

er starfandi samráðshópur um norrænar

kvennarannsóknir og á Rannsóknastof-

Þórunn Sigurðardóttirforstöðumaður Rannsóknarstofu í Kvennafrceðum

an fulltrúa í honum. Hópurinn starfar á

vegum norrænu ráðherranefndarinnar

og kom tímaritinu NORU af stað. „A

Nordisk Forum í fyrra voru svo mynduð

samtök kvennafræðinga, Foreningen

NORA, og þau gefa nú tímaritið NORU

út, en það birtir greinar á sviði kvenna-

fræða á ensku. Helga Kress prófessor er

í ritstjórninni fyrir íslands hönd, en enn

sem komið er hefur engin grein birtst

eftir íslenska konu og vil ég hér með

hvetja íslenskar konur til að senda grein

til NORU," segir Þórunn.

í undirbúningi er nú ráðstefna um ís-

lenskar kvennarannsóknir sem haldin

verður í samvinnu við Mannréttinda-

skrifstofu Islands. Ráðstefnan er haldin

í tilefni þess að 10 ár eru nú liðin síðan

fyrsta ráðstefnan var haldin um íslensk-

ar kvennarannsóknir. Ráðstefnan verður

þverfagleg og á að endurspegla stöðu

íslenskra kvennarannsókna árið 1995.

Verður bæði boðið upp á fræðilega fyr-

irlestra og erindi úr kvennabaráttunni. I

lok ráðstefnunnar er fyrirhugað að gefa

út ráðstefnurit. Ráðstefnan verður hald-

in í húsnæði Háskólans helgina 20.-22.

október.

Á vegum Rannsóknastofunnar kom

hingað til lands Claire Ann Smearman,

lögfræðingur og kennari í kvennafræð-

um við Towson State University í

Baltimore. Hún hélt á haustmisseri

námskeið sem bar yfirskriftina „femin-

ist legal theory" en

auk þess flutti hún

opinberan fyrirlest-

ur um kynferðislega

áreitni og leiddi

vikulega málstofu

um         feminískar

fræðikenningar.

Þórunn segir veru

hennar hér hafa ver-

ið vítamínsprautu

fyrir starfsemina,

einkum með tilliti

til vaknandi áhuga

stúdenta, og nú sé í

undirbúningi að

gefa nemendum við HÍ kost á 30 ein-

inga þverfaglegu námi í kvennafræðum,

að öllum líkindum frá hausti 1996.

„Kvennafræðin er rannsóknarstefna

sem kemur með nýja sýn á hinar hefð-

bundnu fræðigreinar. Viðfangsefnið er

skoðað frá ákveðnu sjónarhorni -

kvennafræðilegu sjónarhorni, en þar er

„kynferði" eitt af lykilhugtökunum.

Rannsóknir í kvennafræðum stefna m.a.

að því að skilja og skýra mismunandi

stöðu kvenna og karla í þjóðfélaginu og

fjalla þannig alveg eins um karla og

konur. Það er mikil gróska í kvenna-

rannsóknum víða um heim og íslensk

fræðimennska þar alls ekki undanskilin.

Islenskar kvennarannsóknir hafa verið

með miklum blóma undanfarinn áratug

og lengur".

I Fléttum, fyrsta riti í ritröð Rannsókna-

stofunnar, er að finna greinar eftir Sig-

ríði Þorgeirsdóttur heimspeking, Helgu

Kress bókmenntafræðing, Ragnhildi

Richter bókmenntafræðing, Ingu Dóru

Björnsdóttur mannfræðing, Sigríði

Dúnu Kristmundsdóttur mannfræðing,

Kristínu Björnsdóttur hjúkrunarfræð-

ing, Rannveigu Traustadóttur félags-

fræðing, Guðrúnu Jónsdóttur félagsráð-

gjafa og Guðnýju Guðbjörnsdóttur upp-

eldissálfræðing. Greinarnar eru ýmist

unnar upp úr fyrirlestrum sem fluttir

hafa verið á vegum Rannsóknastofunn-

ar eða samdar sérstaklega fyrir ritið.

Viðtal: Valgerður Katrín Jónsdóttir  •  Ljósmynd: Rut Hallgrímsdóttir

16

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40