Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						ATHAFNAKONA,

tók sumarfríið mitt í barneignafrí, því það

voru engin barneignarfrí á þessum tíma.

Ég varð því að nota mánaðarsumarfrí til

að eiga barnið og hélt svo áfram með ný-

fætt barnið í burðarrúmi í bílnum. Stopp-

aði bílinn svo einhvers staðar á góðum

stað og gaf barninu að drekka.

En ég hætti eftir að ég átti fimmta barnið,

enda nóg að gera heima fyrir. Eg hef ver-

ið fremur ströng móðir, hef lagt mikla

áherslu á að halda ag;> og að börnin séu

kurteis og ég veit að það hefur komið

þeim vel."

BROTIÐ ILMVANTSGLAS

VAR KVEIKJAN

Það var algjör tilviljun að Áslaug Hall-

dórsdóttir fór að flytja inn snyrtivörur fyr-

ir 15 árum, en fyrirtækið hefur vaxið og er

orðið umfangsmikið. „Eg hafði flogið

með Finnair og keypt mér ilmvatnsglas í

vélinni, en ilmvatnið hét því skemmtilega

nafni „Diamond in a snow". Yngsti sonur

minn braut glasið óvart þegar heim var

komið og ég fór að reyna að ná mér í ann-

að eins. Þetta fékkst ekki hér svo ég skrif-

aði út og áður en ég vissi af var ég komin

með umboð fyrir Lumene snyrtivörurnar

en þær eru framleiddar hjá þriðja stærsta

lyfjafyrirtæki Evrópu.

Börnin mín hafa hjálpað mér gríðarlega

mikið. Ég hef tekið börnin mikið með til

útlanda, bæði til sólarlanda, Englands og

Sviss en þar hafa þau verið í skóla á sumr-

in. Það var mikil ábyrgð lögð á dóttur

okkar að passa alla strákana, en það gerði

hún með sóma. Síðustu árin hafa strák-

arnir hjálpað mikið við fyrirtækið og séð

alveg um það þegar ég hef farið utan.Eg

hef mjög gaman af að ferðast, hef farið

margar heimsreisur."

- Við erum að tjalla um föðurhlutverkið í

þessu blaði. Var bóndi þinn duglegur að

hjálpa þér með börnin?

„Já, hann hafði börnin í körfunni sín meg-

in á næturnar og vaknaði til þeirra, rétti

mér þau ef þau þurftu að drekka. En ég

hef ekki viljað að hann hjálpaði mér við

húsverkin, hann hefur varla fengið að

koma inn í eldhús, það er mitt svæði. Við

höfum haft ákveðna verkaskiptingu þótt

við höfum stundum skipt á störfum, eins

og þegar ég keyrði fyrir hann vörubílinn á

leiðinni heim úr vegavinnu um árið. Ég

tók að mér að elda ofan í 12 vegavinnu-

karla einn mánuð þegar unnið var að Lár-

ósum í Grundarfirði. Það voru erfiðar að-

stæður þarna, hvergi rennandi vatn og

ekkert rafmagn, en karlarnir voru yndis-

legir, alltaf búnir að ná í vatn fyrir mig á

morgnanna. Það var mikið að gera, ég

vaknaði yfirleitt klukkan 6 á morgnanna

og fór ekki að sofa fyrr en tvö á næturnar.

Eg átti þrjú börn þá, tvö þau elstu fóru í

sumarbúðir en Jón Kjartan, 5 ára, fór með

mér, hann kallaði alla vegavinnukarlana

„pabba".

Síðasta kvöldið var haldin veisla og þar

sem bóndinn, sem var einn af vegavinnu-

körlunum, hafði skemmt sér eins og hinir

og þar sem ég var með meirapróf fannst

honum betra að ég æki bílnum suður til

Reykjavíkur og gekk það vel, enda farið

hægt. En það er ógleymanlegur akstur!

Eftir að dóttir mín fór að heiman, en hún

er gift þriggja barna móðir í dag, hafa

strákarnir verið mjög duglegir að hjálpa

til við húsverkin, hafa gengið í öll verk og

sinnt yngri bræðrum sínum. Þeir hafa tek-

ið þá á morgnana og baðað og gengið í öll

verk. í dag eru barnabörnin 7 frá 3 -18

ára. Amma reynir að hafa smá aga, þó hún

láti kannski meira eftir þeim en sínum

eigin börnum. Ég held alltaf sambandi við

Jónas Bjarnason, Andrés Ásmundsson og

hana Þórdísi mína. Þeim öllum á ég mikið

Fréttir úr starfi KRFÍ

Vorblót KRFI

Vorblót var haldið á skrifstofu KRFÍ

að Hallveigarstöðum þann 19. maí.

Þar fögnuðu núverandi og fyrrver-

andi stjórnarkonur sumri, en vorblót-

ið var haldið í tilefni af formanns-

skiptum félagsins. Boðið var upp á

léttar veitingar og hljómuðu margar

fagrar söngraddir um nágrenni Hall-

veigarstaða þegar líða tók á kvöldið.

Kvennaráðstefn-

an send út í sveit

Undirbúningur að NGO ráðstefnu

Sameinuðu þjóðanna í Peking er í

fullum gangi. Ráðstefnan var flutt til

Huairou en einnig verður fjarskipta-

miðstöð í Peking í nágrenni við hina

opinberu ráðstefnu Sameinuðu þjóð-

anna. Tekið verður á móti öllum

skráðum þátttakendum, sem voru um

36 þúsund talsins 30. apríl sl. Allir

skráðir þátttakendur fá vegabréfsá-

ritun og geta ráðið því hvort þeir

dvelja á hótelum í Huairou eða Pek-

ing. Á þriðja tug íslenskra kvenna

hefur látið skrá sig. Séð verður um

að hafa næg farartæki til að flytja

þátttakendur milli Huairou og Pek-

ing. Samkomulag um þessi atriði

náðist milli Irene Santiago fram-

kvæmdastjóra og kínverskra yfir-

valda.

Gróðursetning í

Heiðmörk

Hin árlega gróðursetningarferð var

farin í Heiðmörk þann 4. júlí. Þátt-

takendur létu aftakaveður ekki á sig

fá og gróðursettu 170 plöntur í rign-

ingu ogroki!

Herdís fékk

styrkinn

Menningar- og minningarsjóður

kvenna veitti Herdísi Dröfn Bald-

vinsdóttur 50 þúsund króna styrk, en

Herdís vinnur nú að doktors-

rannsókn sinni í Bretlandi. Herdís

lauk BA-prófi frá HÍ1986 og MAfrá

Lancaster University 1987. Doktors-

rannsókn hennar fjallar um þróun

samskipta og tengsla aðila á ís-

lenskum vinnumarkaði, þ.e. verka-

lýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda

og ríkisins, sem átt hefur sér stað frá

tímum viðreisnarstjórnarinnar með

tilliti til valds og ákvörðunartöku.

37

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40