II F R A M T I Ð ! Við eigum því láni að fagna að geta aflað raforku með vatnsafli. Það veldur ekki loftmengun og eyðist ekki þó af sé tekið. Landsvirkjun kappkostar að vinna að nýtingu þessarar auðlindar í sátt við umhverfið þjóðinni til heilla. Óbeisluð umhverfisvæn orka Islands er meira en tíföld sú orka sem íslendingar nýta nú til raforkuvinnslu og eru orku- lindirnar stærsta ónýtta auðlind Iandsins. Ódýr um- hverfisvæn orka verður hér eftir sem hingað til undir- staða góðra lífskjara og framfara á öllum sviðum. Landsvirkjun hefur haft forystu um að stuðla að aukinni nýtingu orkulinda landsins jafnt til almennra nota sem orkufreks iðnaðar. Fyrirtækið framleiðir nú rúmlega 90% alls rafmagns á Islandi og flytur það og selur í heildsölu til almenningsrafveitna á sama verði um land allt. Það er metnaður Landsvirkjunar að sjá landsmönnum öllum fyrir sem bestri þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. MJ Landsvirkjun -ft '* ¦¦**.