Fréttablaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 07.12.2010, Blaðsíða 24
HANNYRÐIR Heimilisiðnaðarfélag Íslands var stofnað 12. júlí árið 1913. Félagið vinnur að því að viðhalda þjóðlegum íslenskum heimilisiðnaði, auka hann og efla. Félagið hefur aðset- ur að Nethyl 2e. Þar er verslun, skrifstofa félagsins og Heimilisiðnaðarskólinn þar sem boðið er upp á markvisst nám í mörgum greinum heimilisiðnaðar, handmennta og lista. „Mér finnst mjög gaman að prjóna og ég man eftir mér sex ára að æfa mig á vöffluprjóni hjá langömmu,“ segir Una Ósk Runólfsdóttir hlæj- andi þegar hún er spurð hvenær hún hafi lært að handleika prjóna. Núna notar hún hverja lausa stund til að grípa í þá og búa til fallegar flíkur á sig, börnin sín þrjú og aðra vini og vandamenn. Mamma henn- ar, Halldóra Georgsdóttir, er á sömu línu og oft sitja þær mæðgur saman og sinna þessu hugðarefni sínu. „Við prjónum mest úr íslenskum lopa en líka úr norskri ull sem er enn mýkri en sú íslenska,“ segir Una. Hún segir Álafossbókunum mikið flett þegar komi að vali á mynstrum og uppskriftum en þær breyti þeim gjarnan eftir eigin höfði og móti flíkina að smekk og lögun notandans. - gun Prjónaskapurinn er eitt af því sem tengir þær mæðgurnar, Unu og Halldóru. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Í stanslausu prjónastuði Prjónakunnáttan virðist stundum fylgja með móðurmjólkinni. Þannig var það hjá Unu Ósk Runólfsdótt- ur. Hún hefur prjónað frá unga aldri og deilir áhugamálinu með mömmu sinni, Halldóru Georgsdóttur. Þetta snotra pils er reyndar ekki prjónað heldur heklað með fastahekli. Þessar opnu peys- ur eru úr norsku ullargarni. Hlýlegir kjólar úr plötulopa, bryddaðir með skrautgarni. Góðar krakkapeysur fyrir leikskólann þegar kuldinn bítur. Aðventuna má nýta til að búa til jólaskraut og er sniðugt að eyða einni og einni kvöldstund á stuttu hannyrðanámskeiði í desember. Námskeið í hekli fer fram annað kvöld í hannyrðaversluninni Stork- inum, milli klukkan 18 og 21. Sólveig Sigurvinsdóttir kennir þar að hekla stjörnur og fer yfir eins margar uppskriftir og tíminn leyfir á einu kvöldi. Eins verður farið yfir hvernig stífa á stjörn- urnar svo þær megi hengja á jóla- tréð eða nota sem skraut á jóla- pakkana. Þátttakendur þurfa að hafa með sér heklunálar í nokkr- um grófleikum en garn í prufur er innifalið. Þátttökugjald er 5.000 krónur en nánari upplýsingar er að finna á www.storkurinn.is. - rat Heklað fyrir tréð Stjörnurnar má hengja á jólatré eða nota sem skraut á jólapakka. www.istex.is Sápan og næringin er sérstaklega framleidd fyrir þvott á ullarflíkum og öðrum viðkvæmum fatnaði. Engin bleikiefni eða ensím. Ný sápa fyrir íslensku ullina P IPA R A R /TB W A • B W A • S ÍA • S ÍA 10306060664444

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.