Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 10.12.2010, Blaðsíða 70
Bækur ★★★ Takk útrásarvíkingar Lára Björg Björnsdóttir Hnyttin þjóðfélagsrýni Lára Björg Björnsdóttur hefur vakið athygli fyrir pistla með sérstæð- um ritstíl og kaldhæðnum tón. Á skömmum tíma hefur henni tekist að verða einn af vinsælustu pennunum á netinu. Hver pistill hennar fær hundruð „læka“ og lesendur keppast við að deila pistlunum á sam- skiptamiðlum. Það kemur því ekki á óvart að hún þreifi fyrir sér utan netsins og gefi út þessa fyrstu bók sína, sem hún nefnir Takk útrásarvíkingar. Frasi sem á vel við í íslensku samfé- lagi í dag. Blórabögglar við hæfi, að minnsta kosti að mati Láru Bjargar. Aðalpersóna bókarinnar er Lára Björg sjálf. Við fáum innsýn í atburði og áföll í hennar lífi, allt frá æsku- árum til efnahagshruns. Hrunið er reyndar alltumlykjandi, bókin hefst til dæmis á mjög skemmtileg- um kafla þar sem Lára, þá starfs- maður Landsbankans, er skyndilega umkringd víkingasveitinni sem mætt er í bankann til að vernda starfsmenn fyrir aðsteðjandi hættu. Vinkonur Láru og fjölskylda eru gildar persónur í bókinni, ekki síst hinn fyndni og ofverndandi pabbi hennar sem hringir sífellt í hana, til dæmis til að vara hana við hálku í tilteknum hverfum. Lára Björg beitir fyrir sig sjálfshæðni og íróníu. Með því að beina spjótunum að sjálfri sér fær Lára Björg um leið skot- leyfi á allt sitt umhverfi og lýsir því oft á óborganlega fyndinn og ýktan hátt. Stíllinn er nútímalegur með löngum setningum, mörgum lýsingarorðum og ýmiss konar innskotum, oft hálfgert talmál á köfl- um. En það virkar og í raun merkilegt að þetta skuli vera fyrsta bók höfundar miðað við hversu afgerandi stíll hennar er orðinn. Reyndar er stíllinn á köflum svo afgerandi að hætt er við að hann verði þreyt- andi til lengdar og því hyggilegt að hafa bókina ekki lengri. Takk útrásarvíkingar er hressileg bók, skemmtileg og oft ótrúlega fyndin. En hún verður samt ekki afgreidd sem hreinræktuð afþrey- ingarbók, þetta er líka ákveðin heimild um þann glundroða sem varð í íslensku samfélagi á árinu 2008. Hún segir frá viðbrögðum einstæðrar móður við efnahagshruninu og kreppunni í gamansömum stíl. Undir niðri blundar alvara og sú mynd sem hér fæst af mannlífinu á þess- um merkilegu tímum segir sína sögu. Álfrún Pálsdóttir Niðurstaða: Hnyttin og kaldhæðin þjóðfélagsrýni þar sem margir munu sjá sjálfum sig bregða fyrir. Fín frumraun. 46 10. desember 2010 FÖSTUDAGUR Tónlist ★ Il grande tenore Kristján Jóhannsson Íþrótt, ekki músík Kristján Jóhannsson náði á sínum tíma eftirtektarverðrum árangri á erlendri grund. Það komast ekki allir söngvarar á sviðið í Metropolitan-óperunni. Hann er kraftmikill og sviðið fer honum vel. Hann á greinilegt auðvelt með að koma fram. Gallinn við Kristján er að hann er ekki sérlega músíkalskur. Hann hefur litla tilfinningu fyrir hinu óáþreifanlega í tónlistinni, skáld- skapnum og fegurðinni. Röddin er (eða var) flott en það er ekki nóg. Dýptina í túlkunina vantar allt of oft. Kristján syngur flest eins. Hann líkist leikara sem hefur bara tvenn svipbrigði. Hápunktarnir í aríunum eru ekki hámark tilfinn- ingaólgu sem hrífur hlustandann. Þeir eru bara íþróttaafrek, stangar- stökk, vítaspyrna. Ekki músík. Þetta kemur berlega í ljós á nýútkominni þrefaldri geislaplötu. Fyrstu upptökurnar eru frá 1970, þær síðustu frá því í ár. Kristján er magnaðastur í litlum lögum þar sem hann má ekki þenja sig. Þau koma mörg vel út. Óperuaríurnar eru hins vegar sjaldnast spennandi í meðförum hans. Á köflum eru þær bara samansafn af klisjum. Tónlistarsögulega séð er þetta ágæt útgáfa. Hún gefur góða mynd af Kristjáni á mismunandi skeið- um. En fyrir þá sem unna tónlist og vilja hlusta á alvöru túlkun og alvöru list er best að leita á önnur mið. Niðurstaða: Fremur klisjukennd og einhæf túlkun er allt of algeng í söng Kristjáns Jóhannssonar. Tónlist ★★★★ Sálmar tímans Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarsson Vertu, Guð faðir … Einn mergjaðasti sálmur sem við eigum er Vertu, Guð faðir, faðir minn eftir Jón Leifs. Það er einföld tónsmíð, laglínan leitar stöðugt upp, en undir niðri liggur sami hljómurinn. Einfaldleikinn skapar seið sem erfitt er að lýsa. Í Sálmum tímans, geislaplötu Sigurðar Flosasonar saxófónleik- ara og Gunnars Gunnarssonar organista er þetta lag sett í djass- búning. Laghendingar Jóns taka á sig frjálslegt yfirbragð. Svo koma impróvíseraðar tónahendingar organista og saxófónleikara sem eru óvæntar, en áleitnar. Þær eru merkilega eðlileg viðbót við frum- verkið. Útkoman er sannfærandi, heildstæð og umfram allt mögn- uð. Svipaða sögu er að segja um annað á plötunni. Þarna er hver fagur sálmurinn á fætur öðrum. Saxófón leikurinn er hástemmd- ur, blátt áfram og einlægur. Þegar Sigurður leikur af fingrum fram er það svo eðlilegt og fallegt að maður veit ekki hvar sálmurinn endar og impróvisasjónin tekur við. Sömu sögu er að segja um orgelleikinn. Hann einkennist af smekkvísi og frábæru raddvali. Óhætt er að mæla með þessari plötu. Niðurstaða: Tilfinningarík og skemmtileg túlkun á nokkrum fegurstu sálmum íslenskra tónbók- mennta. Tónlist ★★ Ideale Gissur Páll Gissurarson Blóðlaus guðfaðir Gissur Páll Gissurarson tenór hefur vakið verðskuldaða athygli á undanförnum árum. Rödd hans er fallega mjúk og ég hef oft heyrt hann syngja af sannri tilfinningu og listrænni innsýn. Geislaplata sem inniheldur ítölsk lög – og líka íslensk – kemur því á óvart. Greinilegt er að hún hefur verið gerð af metnaði. Heil hljómsveit spilar með Gissuri, ekki bara ein undirleikaralufsa. En það dugir ekki alltaf. Gissur syngur fallega og af réttu tilfinningunni, en vandar sig of mikið. Það er of mikil skynsemi í söng hans. Á diskinum er að finna lagið fræga eftir Nino Rota úr Guð- föðurnum. Af hverju syngur Gissur það á íslensku? Það er svo miklu flottara með ítölskum texta. Kannski er það ósanngjarnt, en maður freistast til að bera Giss- ur saman við tenórinn Roberto Alagna, sem líka hefur sungið þetta lag. Alagna er af sikileyskum ættum, og það er blóðhiti í túlkun hans. Gissur virðist hins vegar ekki trúa almennilega á það sem hann er að gera. Fullmikil endur- ómun í upptökunni gerir lagið enn undarlegra. Svipaða sögu er að segja um annað á plötunni. Þetta er synd, því ég held að Gissur sé í rauninni frábær tón- listarmaður. Greinilegt er að list- ræn stjórn útgáfunnar hefði þurft að vera betri. Jónas Sen Niðurstaða: Gissur Páll Gissurarson syngur fallega, en mætti vera frjáls- legri og ástríðufyllri. Af stangarstökki og mögnuðum seið HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 10. desember ➜ Dansleikir 23.00 Hljómsveitin Sixties verður með dansleik á Gallery - Bar 46 að Hverfis- götu 46 í kvöld. Dansleikurinn hefst kl. 23 og kostar 1.000 krónur inn. ➜ Tónleikar 12.15 Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur efna til hádegistónelika á Kjarvalsstöðum kl. 12.15 í dag undir yfir- skriftinni Glettur með Tríói Reykjavíkur. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. 20.00 Í tilefni af útgáfu plötunnar Fúsi Halldórs – vin- sælustu lögin verða haldnir tónleikar í Salnum, Kópavogi, þar sem landsþekktir lista- menn túlka lög Sig- fúsar Halldórssonar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðasala á salurinn.is. 20.30 Í Landsnámssetrinu verða haldnir jólatónleikar með Melchior í kvöld kl. 20.30. Sérstakur heiðursgestur á tónleikunum verður Ólafur Flosason. 21.00 Hljómsveitirnar gímaldin og félagar auk Saytan spila á tónleikum á skemmtistaðnum Bakkus í kvöld. Tón- leikarnir hefjast kl. 21 og aðgangseyrir enginn. 22.00 Hljómsveitirnar Myrká og Porquesi spila á tónleikum á Sódóma Reykjavík, að Tryggvagötu 22, í kvöld. Húsið opnað kl. 22 og 1.000 króna aðgangseyrir. 18 ára aldurstakmark. 22.00 Hljómsveitin Dikta verður með tónleika á Græna hattinum, Akureyri, í kvöld. Tónleikarnir hefjast kl. 22 og er forsala í verslun Eymundsson. 22.00 Í kvöld efnir Record Records til tónleika á Faktorý þar sem fram koma hljómsveitirnar Ensími, Bloodgroup, Of Monsters and Men og Sing for me Sandra. Húsið opnar kl. 22 og er 1000 króna aðgangseyrir. Forsala er á www. midi.is. ➜ Málþing 20.00 Stofnun Vig- dísar Finnbogadótt- ur í erlendum tungu- málum til málþings um Albert Camus undir yfirskriftinni „Fjögur högg á dyr ógæfunnar”. Málþing- ið verður haldið í sal Þjóðminjasafnsins frá kl. 14 - 16. ➜ Forsýning 20.30 Frumsýning á dansleikhús- gjörningi fjöllistahópsins Skyr Lee Bob, Square Wunder Globe verður í kvöld í Gerðasafni í Kópavogi. Sýningin hefst kl. 20.30. Miðaverð er 2.000 krónur og eru miðar seldir við inngang. ➜ Söngur 14.00 Gleðigjafarnir í Gullsmára koma saman og syngja í félagsheimil- inu Gullsmára 13, Kópavogi, í dag kl. 14. Sturla Guðbjarnason stjórnar og harmonikkuleikararnir Guðni, Sigurður og Guðlaugur leika undir söng. Allir velkomnir. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Jóladagatal Norræna hússins 1.-23. des. kl: 12.34 27.DES 19.DES Ólafur Arnalds Seabear Sudden Weather Change Algjör Sveppi - Dagur í lífi stráks Nýtt leikverk eftir Jón Atla Miðasalan er opin virka daga frá kl. 13-15 Sími: 527 2100 www.tjarnarbio.is Tjarnargötu 12 - 101 Reykjavík Mojito Augastein – Á senunni Ævintýrið um 12.DESkl. 14 OG 16 10.DES KL. 20:00 útskriftarsýning DanslistaskólaJSB 12.DES 16.DES KL. 20:30 FRAMUNDAN: 28.-30.des Hátíð fer að höndum ein Kórar og tónlistarfólk Hallgrímskirkju bjóða upp á samfellda tónlistardagskrá LAUGARDAGINN 11. DESEMBER KL. 14-17 Aðgangur kr. 1.000/ ókeypis fyrir yngir en 16 ára Heill þér, hafsins stjarna AÐVENTUTÓNLEIKAR í Seltjarnarneskirkju Valgerður Guðnadóttir Einsöngvari Haukur Gröndal Steingrímur Þórhallsson Þorgrímur Jónsson Klarinett Orgel og píanó Kontrabassi Stjórnandi Magnús Ragnarsson Miðvikudaginn 15. des. kl. 20:00 Sunnudaginn 12. des. kl. 20:00 Miðar til sölu hjá félögum, í tólf tónum og við innganginn. Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.