11. mars 2011 FÖSTUDAGUR2 SPURNING DAGSINS Súrmjólk á tilboði! Ávaxta- og karamellu- súrmjólk á tilboði í mars 09 -0 35 4 / H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA Anna, þarf ekki hundaheppni til að vinna þessa keppni? ?Nei, þetta eru þrotlausar æfingar allan ársins hring, bæði fyrir kúsk og hunda.? Anna Marín Kristjánsdóttir er í stjórn Sleðahundafélags Íslands, sem stendur fyrir fyrsta Íslandsmeistaramótinu í hundasleðaakstri á Mývatni um helgina. MENNTAMÁL Katrín Jakobsdóttir menntamálaráð- herra tók í gær við undirskriftalista frá tíundu bekkingum þar sem skorað er á hana að afnema hverfaskiptingu í framhaldsskólum. Rakel Ýr Birgisdóttir, nemandi í 10. bekk í Lauga- lækjarskóla, safnaði ásamt félögum sínum um þús- und undirskriftum meðal jafnaldra þeirra. Það er um fjórðungur árgangsins. Samkvæmt innritunarreglum sem tóku gildi í fyrravor skulu að minnsta kosti 40 prósent nýnema í hverjum framhaldsskóla koma úr grunnskólum í grenndinni. Rakel Ýr telur það hins vegar réttlætis- mál að nemendur fái að velja hvar þeir stundi nám. ?Mér finnst að við, framtíð þjóðarinnar, eigum að fá að velja hvar við fáum okkar menntun. Það á ekki að bitna á fólki hvar foreldrar þess kaupa hús,? segir Rakel Ýr. ?Mín hugmynd er sú að skólarnir láti loka- einkunnir gilda þegar þeir taka inn nemendur í vor en fyrir næsta ár verði búið að finna einhvern sam- ræmdan stuðul sem skólarnir geta miðað við,? segir Rakel spurð um hvernig best sé að leysa málið. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra bendir á að aðsókn í framhaldskóla hafi aldrei verið meiri. Það hafi verið gott að heyra sjónarmið nemenda nú þegar menntamálayfirvöld reyni að finna lausnir sem sem flestir eru sáttir við. - bg Tíundu bekkingar afhentu menntamálaráðherra um þúsund undirskriftir: Vilja afnema hverfisskiptinguna UNDIRSKRIFTIRNAR AFHENTAR Menntamálaráðherra tók við undirskriftum 10. bekkinga í gær. Ungmennin vilja fá að velja hvert þau sækja sína menntun. FRÉTTABLAÐIÐ PJETUR SAMGÖNGUR ?Fullyrðingar um að vegatollar standi undir gerð Vaðla- heiðarganga er í besta falli ósk- hyggja,? segir í nýútkomnu blaði Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). ?Í versta falli eru áhugamenn um gerð ganganna vísvitandi að blekkja stjórnvöld, vitandi að gal- tómur ríkissjóður mun þurfa að taka á sig verulegan hluta af kostn- aðinum,? segir áfram í blaði FÍB. Þar er ítarlega farið í saumana á áætlunum um kostnað, umferð og tekjur vegna Vaðlaheiðarganga. Samkvæmt núverandi mati félagsins Greiðrar leiðar, sem á 49 prósenta hlut í nýstofnaða félaginu Vaðlaheiðargöngum hf. á móti Vegagerðinni, mun kostnaður við Vaðlaheiðargöng verða 10,4 millj- arðar króna. FÍB hefur hins vegar reiknað út að heildarkostnaður með stofn- kostnaði og fjármagnskostnaði verði á bilinu 14,5 til 17,3 millj- arðar króna eftir því hvaða vext- ir fáist. ?Áætlanir Greiðrar leiðar gera ráð fyrir þriggja prósenta fjár- magnskostnaði,? segir Runólfur Ólafssson, framkvæmdastjóri FÍB. Hann fullyrðir að enginn fjárfest- ir vilji koma að slíkri framkvæmd sem beri í sér ákveðna áhættu, meðal annars vegna vatnsaga, með þriggja prósenta ávöxtun. ?Til samanburðar hefur fjármagns- kostnaður vegna Hvalfjarðarganga verið um 9 prósent,? bendir Run- ólfur á. Þá dregur FÍB í efa áætlan- ir Greiðrar leiðar um umferð um göngin, sérstaklega sé hlutur ganganna í framtíðarumferð um Vaðlaheiði ofreiknaður að sumar- lagi. Þá þurfi, samkvæmt útreikn- ingum FÍB, vegatollar að vera minnst 1.100 krónur, en ekki 800 krónur eins komi fram í áætl- unum Greiðrar leiðar. ?Hver vill borga 1.100 krónur til að spara 400 krónur og níu mínútur,? spyr FÍB sem telur einsýnt að mik- ill kostnaður lendi á ríkissjóði á sama tíma og brýnni verkefni bíði, til dæmis Norðfjarðar göng. Ótækt sé að ?lauma? mörg hundruð króna árlegum skuldbindingum á ríkis- sjóð. ?Í þessari framkvæmd er hug- myndin að ríkið ábyrgist allar lán- veitingar. Þá er eðlilegt að uppi á borðum séu allar upplýsingar um hvort þetta sé hagkvæmt eða mögulegt fyrir sjálfsaflafé ein- vörðungu,? segir Runólfur. ?Það þarf að skýra það nánar að ríkis- sjóður, sem í öðru orðinu er sagður ekki eiga krónu með gati til nokk- urra framkvæmda, getur allt í einu orðið ábyrgur fyrir 10,4 milljarða króna framkvæmd.? gar@frettabladid.is Telja Vaðlaheiðargöng ekki standa undir sér Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir Vaðlaheiðargöng of stutt til að réttlæta svo dýra framkvæmd. Útreikningar standist ekki. Miklum skuldbindingum sé ?laumað? á ríkissjóð og skattgreiðendur muni að lokum ?fá göngin í hausinn?. GANGAGERÐ Áætlað er að byggja níu kílómetra göng undir Vaðlaheiði. FÍB segir það langt frá því brýnustu vegaframkvæmdina og spyr hvernig galtómur ríkissjóður geti ábyrgst slíkt verkefni á meðan önnur mikilvægari sitji á hakanum. Myndin er frá Héðinsfjarðargöngum. MYND/VEGAGERÐIN Hver vill borga 1.100 krónur til að spara 400 krónur og níu mínútur. BLAÐ FÉLAGS ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA LÖGREGLUMÁL Yfirheyrslur héldu áfram í gær yfir tveimur fyrrver- andi starfsmönnum Kaupþings sem fyrst voru handteknir hér á miðvikudag vegna rannsóknar Serious Fraud Office í Bretlandi á bankanum. Starfsmennirnir tveir sem um ræðir eru Bjarki H. Diego, sem var framkvæmdastjóri útlána hjá bankanum, og Guðmundur Þór Gunnarsson, sem var viðskipta- stjóri á útlánasviðinu. Sjö voru handteknir á miðviku- dag í Bretlandi; bankastjórarnir Sigurður Einarsson og Ármann Þorvaldsson, Guðni Níels Aðal- steinsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fjárstýringar, Tchenguiz-bræðurnir Robert og Vincent og tveir nánustu sam- starfsmenn þeirra. Sjömenningarnir voru allir látnir lausir að loknum yfir- heyrslum í fyrradag með því skilyrði að þeir myndu mæta sjálfviljugir til skýrslutöku á næstunni. Til rannsóknar eru meintar ólögmætar lánveitingar til Roberts Tchenguiz örfáum mán- uðum fyrir bankahrun upp á jafn- virði ríflega hundrað milljarða íslenskra króna. - sh Kaupþingsmönnum sleppt í Bretlandi gegn loforði um að þeir mæti aftur: Yfirheyrslum fram haldið hér heima SIGURÐUR EINARSSON ROBERT TCHENGUIZ DÓMSMÁL Eiginmaður og tvö börn konu sem lést úr heilablæðingu á Landspítalanum árið 2001 fá greiddar alls 3 milljónir króna í skaðabætur. Mistök voru gerð þegar konan fór í glasafrjóvgun eftir að hafa glímt lengi við ófrjósemisvanda- mál. Vegna ófullnægjandi með- ferðar við meðgöngueitrun lést hún af heilablæðingu. Íslenska ríkið hafði fallist á bætur til handa fjölskyldunni en deilt var um bótafjárhæð fyrir héraðsdómi. Dóttir hjónanna, fædd árið 2001, er mikið fötluð og er það meðal annars rakið til heilablæð- ingar í fæðingunni. - sv Dæmdar bætur eftir andlát: Eiginmaður og börn fá bætur NEYTENDUR Mikill verðmunur var milli apóteka í nýlegri könnun verðlagseftirlits ASÍ á heilsu- og snyrtivörum, en lægsta verðið var oftast í Rimaapóteki, í sjö tilvikum af 31. Lyf og heilsa reyndist oftast hafa hæsta verðið, í sex tilvikum. Munurinn á milli apóteka var almennt mikill, oftast um eða yfir 20 prósentum. Mestur munur, 105 prósent, var á verði á kvikasilfursmælum. Lægsta verðið var 324 krónur, í Reykjavíkurapóteki, en hæsta verðið var í Skipholtsapóteki og Lyfjum og heilsu, 665 krónur. - þj Verðkönnun ASÍ: Oftast ódýrt í Rimaapóteki VERÐKÖNNUN Rimaapótek var oftast með lægsta verðið í könnun ASÍ. WISCONSIN, AP Repúblikanar í öldungadeild ríkisþings Wis- consin í Bandaríkjunum sam- þykktu í fyrra- kvöld umdeilt frumvarp sem sviptir flesta opinbera starfs- menn samn- ingsrétti í gegnum verka- lýðsfélög. Frumvarp- ið hefur verið bitbein repúblikana og demó- krata í nokkrar vikur og höfðu þingmenn demókrata flúið til Illinois-ríkis til þess að koma í veg fyrir atkvæðagreiðslu um málið. Repbúblikanar breyttu hins vegar frumvarpinu, sem gerði þeim kleift að ganga til atkvæða um það. Ríkisstjórinn Scott Walker hefur lengi barist fyrir frumvarpinu, sem hann segir nauðsynlegt til þess að taka á fjárhagsvanda ríksins. - bg Sviptir rétti í Wisconsin-ríki: Umdeilt frum- varp samþykkt SCOTT WALKER EFNAHAGSMÁL Peningastefnu- nefnd Englandsbanka, seðla- banka Bretlands, tilkynnti í gær að stýrivöxtum yrði haldið í 0,5 prósentum. Vaxtastig hefur nú haldist óbreytt þar í landi í tvö ár. Þetta var í takti við vænting- ar. Breska dagblaðið Guardian segir vaxtastig kunna að hækka þegar líður á árið, ekki síst þar sem aukinn þrýstingur sé á vaxtahækkun innan peninga- stefnunstefndar Englandsbanka í skugga verðbólguskots. Verð- bólga mælist nú fjögur prósent, sem er tvöfalt hærra en verð- bólgaumarkmið Englandsbanka hljóðar upp á. - jab Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi: Hafa ekki verið lægri í tvö ár BRETLAND David Cameron, forsætis ráðherra Breta, gefur lítið fyrir hótanir Írana um að sniðganga Ólympíuleikana sem fara fram í London á næsta ári. Íranar halda því fram að merki leikanna, sem er útfærsla af ártalinu 2012, sé óþægilega líkt orðinu Zion, sem þýðir Jerúsalem eða Ísrael á hebresku. Cameron vísaði því á bug og sagði að þetta væri fáranleg átylla. ?Ef Íranar vilja ekki koma þurfa þeir ekki að koma. Þeirra verður ekki saknað.? - þj Íranar ósáttir við merki ÓL: Cameron vísar ásökunum frá