11. mars 2011 FÖSTUDAGUR8 ATVINNUMÁL Til að losna við gjald- eyrishöft að fullu þurfa Íslending- ar væntanlega að taka upp annan gjaldmiðil, að m at i Helga Magnús sonar, formanns Sam- taka iðnaðarins (SI). Það telur hann undir - strika mikil- vægi þess að Íslendingar freisti þess af fullu afli að ná viðunandi samningum við Evrópu- sambandið. Þetta kom fram í ræðu Helga á Iðnþingi í gær. ?Með hagstæðum samning- um eigum við erindi í ESB. Ann- ars ekki og þá þurfum við að halda áfram að hokra hér með þá íslensku krónu sem erlendir fjár- festar hafa nú gefist upp á ? hvort sem okkur líkar betur eða verr,? sagði Helgi. Helgi sagði Íslendinga enn fasta í viðjum hrunsins; vonbrigðum, tortryggni og reiði. Of margir væru uppteknir af hatri og refsi- gleði sem torveldaði okkur að komast úr sporunum. Nokkur fyrirtæki hefðu þó náð alla leið í harðri alþjóðlegri sam- keppni, sem væri vel af sér vikið. Nefndi hann Össur og Marel sem dæmi. ?Því sárara er það fyrir þau og aðra í atvinnulífinu að upplifa að sú umgjörð sem stjórnvöld búa okkur er óviðunandi,? segir Helgi. ?Þegar við segjum það, erum við gjarnan vænd um þröng flokks- pólitísk viðhorf, andúð í garð ráð- andi afla eða enn furðulegri hvat- ir,? sagði hann. Hins vegar hefði málflutningur samtakanna feng- ið stoð í orðum stjórnarformanns Össurar í viðtali í Fréttablaðinu um síðustu helgi. Hann gagnrýndi hversu erfitt væri að reka alþjóð- legt fyrirtæki á Íslandi. Þá sagði hann að Íslendingar þyrftu að hætta að verða sér til minnkunar á alþjóðlegum vett- vangi með því að hóta þjóðnýt- ingu lögmætra erlendra fjárfest- inga að hætti Bólivíu og Ekvador. Í ræðu sinni á þinginu vék Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI, að stöðu nýsköpunarfyrirtækja. Hann fagnaði lögum um eflingu nýsköpunarfyrirtækja frá síðasta ári, og sagði þau styrkja sam- keppnishæfi Íslands í þróun og nýsköpun. Orri segir þó að því miður hafi hluti þeirra laga, sem laut að skattaafslætti vegna fjárfest- inga í nýsköpunarfyrirtækjum, verið felldur úr gildi síðar, vegna athugasemda frá ESA, Eftirlits- stofnunar EFTA. ?Ég vona að sá hluti komi aftur til framkvæmda í ár,? segir Orri í samtali við Fréttablaðið. stigur@frettabladid.is, thorgils@frettabladid.is BESSASTAÐIR Kostnaður skatt- greiðenda við hvern dag sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var erlendis í fyrra var um 217 þúsund krónur samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins. Árið áður var meðaltalskostnaðurinn 163 þúsund fyrir hvern dag. Heildarkostnaður við ferða- lög forseta Íslands og forsetafrú- ar var ríflega 9,7 milljónir króna á síðasta ári, og um 4,4 milljón- ir árið 2009. Þetta kemur fram í svari embættis forseta Íslands við fyrirspurn Stöðvar 2. Meðaltalskostnaður á dag er misjafn milli ára. Þar skiptir miklu hversu margar ferðir eru farnar, hversu langt er farið og hvort forsetafrúin er með í för. Greiðslur vegna fargjalda, gist- ingar, dagpeninga og annars ferða- kostnaðar Ólafs Ragnars námu ríf- lega 6,9 milljónum í fyrra. Við það bætast greiðslur vegna fargjalda Dorritar Moussaieff forsetafrúar, alls um 2,8 milljónir. Dorrit hefur aldrei þegið dagpeninga á ferða- lögum. Árið 2009 voru greiðslur vegna fargjalda, gistingar, dagpeninga og annars ferðakostnaðar Ólafs Ragnars rúmlega 3,8 milljónir. Greiðslur vegna fargjalda Dorrit- ar voru um 600 þúsund krónur. Við þennan kostnað bætast greiðslur til handhafa forseta- valds í fjarveru Ólafs Ragnars. Forsætisráðherra, forseti Alþing- is og forseti Hæstaréttar skipta með sér sem samsvarar launum forseta fyrir hvern dag sem forset- inn er ekki á landinu. Samkvæmt útreikningum Fréttablaðsins nema þær greiðslur um 20 þúsund krón- um á dag fyrir hvern handhafa forsetavalds. Samanlagt fengu handhafarnir þrír tæplega 5,2 milljónir króna í aukagreiðslu vegna þessa í fyrra, og tæplega 3,2 milljónir árið áður. - bj Kostnaður við ferðalög forseta Íslands og forsetafrúar til útlanda var ríflega 9,7 milljónir króna í fyrra: Ferðalögin kosta 217 þúsund krónur á dag Á INDLANDI Forseti Íslands og forsetafrú heimsóttu Indland í janúar í fyrra. 1 Hvað heita Tchenguiz-bræðurnir sem voru í hópi helstu viðskiptavina Kaupþings? 2 Nýir aðilar ætla að hefja rekstur bókabúðar í húsnæði gömlu Máls og menningar við Laugaveg. Þeir reka bókabúð fyrir, hvað heitir hún? 3 Hver var markahæstur Íslend- inga í handboltalandsleiknum gegn Þjóðverjum á miðvikudag? SVÖR 1. Robert og Vincent 2. Iða 3. Guðjón Valur Sigurðsson með tólf mörk LYNX YETI TUV 1300 ÁRGERÐ 2007 1.299.000 kr. Verð áður 1.680.000 kr. LYNX RAVE 800 ÁRGERÐ 2006 950.000 kr. Verð áður 1.250.000 kr. LYNX RE 600 HO ÁRGERÐ 2007 990.000 kr. Verð áður 1.250.000 kr. SKI-DOO MXZ 800 ÁRGERÐ 2003 690.000 kr. Verð áður 790.000 kr. LYNX RAVE 800 ÁRGERÐ 2007 1.299.000 kr. Verð áður 1.490.000 kr. SKI-DOO SUMMIT 800 ÁRGERÐ 2007 1.200.000 kr. Verð áður 1.300.000 kr. SKI-DOO MXZ 440 ÁRGERÐ 2006 599.000 kr. Verð áður 850.000 kr. 200 3 200 7 200 6 200 7 200 7 200 7 ? FULLT HÚS ÆVINTÝRA 200 6 REYNSLUBOLTAR TILBÚNIR Í SNJÓINN! NOTAÐIR VÉLSLEÐAR Í ELLINGSEN Beint samband við sölumenn: Þór Ragnar: 820-1418 / Karl H. Jónsson: 840-1757 Vilja nýjan gjaldmiðil til að losna undan höftunum Formaður SI segir gjaldeyrismál undirstrika mikilvægi þess að ná viðunandi samningum við ESB. Erlendir fjárfestar hafi gefist upp á íslensku krónunni. Varar við hótunum yfirvalda um þjóðnýtingu fyrirtækja. HELGI MAGNÚSSON TEFLT AF KAPPI Önnur umferð MP Reykjavíkurskákmótsins fór fram í gær. Þröstur Þórhallsson vann góðan sigur á Þjóðverjanum Jan Gustafsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DANMÖRK Stjórnarflokkurinn Venstre hyggst ekki leggja til að hámarkshraði á dönskum hrað- brautum verði lækkaður úr 130 kílómetrum á klukkustund niður í 110, þrátt fyrir tilmæli fjöl- margra umhverfissamtaka. Félag bifreiðaeigenda í Dan- mörku heldur því fram að lækk- un hámarkshraða muni skila nær fimmtungssamdrætti í eldsneytis notkun. Mörg stór- fyrirtæki þar í landi hafa dregið úr hraða til að spara eldsneyti og minnka útblástur gróðurhúsaloft- tegunda. Flutningshraði er þó mikilvæg- ari í augum Venstre, segir tals- maður flokksins. - þj Umferðin í Danmörku: Vilja ekki lægri hámarkshraða KRISTJÁNSBORGARHÖLL Ákall um lækkun hámarkshraða í Danmörku mun ekki koma til kasta þingmanna á næstunni. ÍSLENSKUR IÐNAÐUR Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, segir að umgjörð stjórnvalda um atvinnulífið sé óviðunandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SKÁK Þröstur Þórhallsson lagði þýska stórmeistarann Jan Gustafs- son í annari umferð MP Reykja- víkurskákmótsins í gær. Meistari síðustu þriggja ára, Hannes Hlífar Stefánsson, mátti sætta sig við tap gegn Hvítrúss- anum Önnu Sharevich. Þröstur er með tvo vinninga það sem af er móti, eins og Jón Viktor Gunnarsson og Bragi Þorfinnsson. Meðal annarra úrslita má nefna að Englendingurinn Luke McShane lagði Norðmanninn Björn Tiller. Mótið í ár er einnig minningar- mót um Inga R. Jóhannsson skák- meistara, auk þess að vera bæði Norðurlandamót í opnum flokki og kvennaflokki. - þj Önnur umferð MP Reykjavíkurskákmótsins: Þröstur lagði Jan Gustafsson að velli VEISTU SVARIÐ?