11. mars 2011 FÖSTUDAGUR10 DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur úrskurðað að slita- stjórn Kaupþings beri að hafna kröfu í bú bankans frá dóttur- félagi Kaupþings á eyjunni Mön. Krafan nemur 463 milljónum punda, jafnvirði um 87 milljarða króna. Kaupþing Singer & Friedlander Isle of Man Limited (Kaupþing á Mön) var hluti af Kaupþingssam- stæðunni og byggði kröfu sína á því að Ingólfur Helgason, for- stjóri Kaupþings á Íslandi, hefði með ábyrgðaryfirlýsingu til Fjár- málaeftirlitsins á Mön árið 2005 skuldbundið móðurfélagið til að verja fjárhagslegan stöðug- leika dótturfélagsins og tryggja í hvívetna að það gæti staðið við skuldbindingar sínar. Kaupþing á Mön er nú í slita- meðferð og duga eignirnar ekki upp í skuldir. Því var farið fram á að þrota- bú móðurfélags- ins greiddi það sem upp á vant- aði í samræmi við ábyrgðar- yfirlýsinguna. Kröfunni var hafnað með þeim rökum að Ing- ólfur, sem var sem áður segir bankastjóri Kaupþings á Íslandi, hafi ekki haft umboð til að skrifa undir yfirlýsinguna fyrir hönd móðurfélagsins, sem hafi ekki haft um hana vitneskju eða stað- fest hana. Á þetta fellst héraðs- dómur. - sh Kröfu dótturfélags Kaupþings um 87 milljarða hafnað: Fór út fyrir umboð sitt REYKJAVÍK Þeir sem koma að fyrir- huguðum breytingum á skóla- starfi í Reykjavík eiga að skila inn umsögnum vegna tillagna fyrir 25. mars næstkomandi. Lagðar voru fram ýmsar fyrir- spurnir um málið á borgarráðs- fundi í gærmorgun af hálfu Sjálf- stæðisflokks. Meðal þeirra var hversu langur tími yrði gefinn til þess að fara yfir umsagnir hags- munaaðila áður en endanleg til- laga yrði lögð fyrir. ?Meirihluti Samfylkingar og Besta flokks hefur stefnt að því að senda leikskóla- og skóla- stjórn endum uppsagnarbréf fyrir 1. apríl,? segir Júlíus Víf- ill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- f lok ks . ?Og verða gerðar breytingar á þessari tíma- áætlun í ljósi þess hve skammur tími er til stefnu?? Jón Gnarr borgarstjóri hefur boðað til fundar á laugardag, ásamt borgarfulltrúum Besta flokksins og Samfylkingarinnar, með foreldrum leik- og grunn- skólabarna í Grafarvogi. Er þetta vegna tillagna um sameiningu skóla. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í borgarráði lögðu fram fyrirspurn- ir varðandi fundinn. Meðal annars var spurt hvort áður hefði verið boðað til íbúafunda af æðsta emb- ættismanni borgarinnar ásamt einungis hluta borgar fulltrúa. Einnig var spurt hver greiddi kostnaðinn af umræddum fundi. - sv Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks gagnrýna meirihluta varðandi skólamál: Óeðlilega lítill tími til stefnu INGÓLFUR HELGASON ÖÐRUVÍSI NÁLGUN Bandaríkjaher hefur sent 40 kvenkyns landgönguliða til átakasvæða í Afganistan, einkum til að sjá um samskipti við konur og börn á þessum svæðum. NORDICPHOTOS/AFP JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON RÚSSLAND Rússneski hergagna- iðnaðurinn sló í fyrra sölumet í vopnasölu. Útflutningur á rúss- neskum vélbyssum, herþotum og skriðdrekum nam rétt tæpum 1.000 milljörðum króna. Þetta er ívið hærri upphæð en árið 2009. Salan í fyrra mun þó hafa verið töluvert undir væntingum. Rúss- neskir vopnasalar töldu að salan yrði um 150 milljörðum króna meiri en raunin varð. Þetta skýr- ist af því að nokkrir samningar sem verið hafa lengi í bígerð gengu ekki eftir. Það er opinber stofnun, Roso- boronexport, sem sér um alla lög- lega vopnasölu frá Rússlandi. Kínverjar eru stærstu einstöku kaupendur rússneskra vopna en 10 prósent af vopnaútflutningi Rússa eru til Kína. - bg Rússnesk vopn rokseljast: Selja vopn fyrir 1.000 milljarða DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða skil- orðsbundið fangelsi og til greiðslu 25 milljóna í sekt til ríkissjóðs vegna brota gegn skattalögum. Maðurinn starfaði sem fram- kvæmdastjóri og prókúruhafi fyrir einkahlutafélag. Hann stóð ekki skil á virðisaukaskatt- skýrslum á lögmætum tíma, né heldur skilagreinum vegna stað- greiðslu opinberra gjalda. Við ákvörðun refsingar var horft til þess að maðurinn játaði brot sín hreinskilnislega. - jss Dæmdur fyrir skattalagabrot: Skal greiða 25 milljónir í sekt LÍBÍA, AP Robert Gates, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær í bígerð að Atlants- hafsbandalagið, NATO, mælti fyrir flugbanni yfir Líbíu á meðan ófriður geisar þar. Þá yrðu skip á vegum bandalagsins send að ströndum Líbíu með hjálpargögn ef þeirra gerðist þörf. Ekki kemur hins vegar til greina að senda her inn í landið nema Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna álykti um hernaðar íhlutun, að sögn Gates. Gates hélt fund með blaða- mannafund í Brussel í gær að lokn- um samráðsfundi varnarmálaráð- herra aðildarríkja NATO þar sem farið var yfir stöðu mála í Líbíu. Hillary Clinton, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, tók í sama streng og landi hennar heima fyrir í Washington. Hún sagði meðal annars að skærist alþjóðaher í leikinn gæti það haft ófyrirsjáan- legar afleiðingar í för með sér. Á sama tíma lét her Múammars Gaddafí, einræðisherra Líbíu, sprengjum og skotum rigna jafnt úr lofti sem láði yfir uppreisnar- menn og híbýli í hafnarborginni Ras Lanuf í norðurhluta landsins. Íbúar borginnar flúðu frá heimil- um sínum, opinberum byggingum og sjúkrahúsum undan sprengju- rigningu. Þá hröktust hundruð uppreisnarmanna á jeppum í aust- ur til Egyptalands. Átökin í Líbíu hafa valdið því að olíuframleiðsla í landinu hefur dregist saman um tæplega sjötíu prósent og nemur hún nú hálfri milljón tunna á dag. Af þeim sökum hafa alþjóðleg matsfyr- irtæki fært niður lánshæfisein- kunnir landsins. Fitch færði láns- hæfi landsins niður í ruslflokk um mánaðamótin. Standard & Poor?s fylgdi í kjölfarið í gær þrátt fyrir að leiðtogar uppreisnarmanna hefðu lofað að standa við gerða samninga um alþjóðleg olíufyrir- tæki. NATO mælir fyrir hertum aðgerðum Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna sagði í gær fyrirhugað að NATO mælti fyrir um flugbann yfir Líbíu. Her Gaddafís lét sprengjum rigna jafnt yfir borgara sem uppreisnarmenn sem flýja í austurátt. UPPREISNARMAÐUR Á FLÓTTA Her Gaddafís einræðisherra beitti mikilli hörku gegn uppreisnarmönnum í hafnarborginni Ras Lanuf í gær. Rauði krossinn segir upp- reisnina í Líbíu borgarastyrjöld. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP