Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						18 11. mars 2011  FÖSTUDAGUR

Hinn 9. apríl næstkomandi mun atkvæðisbært fólk á Íslandi 

greiða atkvæði um það hvort lögin 

um samninga um Icesave við Breta 

og Hollendinga haldi gildi sínu.

Þegar brýn mál bíða ákvörðun-

ar er öðru mikilvægara að rök með 

og móti séu íhuguð af vandvirkni. 

Íslendingum er mjög margt betur 

gefið en að taka vitrænar ákvarð-

anir eftir skynsamlegar umræður 

og rökræður hverfa ótrúlega oft í 

misskilning og tittlingaskít.

Undanfarna áratugi hef ég sinnt 

lögmannsstörfum í Reykjavík fyrir 

mjög mismunandi viðskiptamenn. 

Í þeim störfum hef ég m.a. öðl-

azt þá reynslu að í deilum manna 

á milli, eða deilum fyrirtækja og 

stofnana, sé mikilvægt að freista 

þess að ná sáttum, semja frekar en 

að fara með mál fyrir dóm. Forn-

kveðið er: Betri er mögur sátt en 

feitur dómur. Boðskapurinn er að 

sjálfsögðu sá að með því að leysa 

mál með samningum veit hvor 

aðili um sig hvað hann hreppir og 

hverju hann sleppir. Jafnframt eru 

málin þá afgreidd og hægt að taka 

til við önnur og frjórri verkefni. 

Sumir Íslendingar á öllum tímum 

hafa verið miklir málafylgjumenn 

og haft yndi af því að argast í 

dómsmálum, hugsanlega sjálfum 

sér til ánægju en jafnframt öðrum 

til ama.

Að sjálfsögðu er það svo að 

engum kjósanda fellur að þurfa að 

?greiða erlendar skuldir óreiðu-

manna?, þó nú væri. Sú andúð má 

þó ekki koma í veg fyrir að Íslend-

ingar taki ábyrga afstöðu fyrir 

sig sjálfa, börn sín og annað ungt 

fólk. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), 

sem sinnir eftirliti með fram-

kvæmd samningsins um Evrópska 

efnahagssvæðið (EES), hefur nú 

komizt að þeirri bráðabirgða-

niðurstöðu að íslenzka ríkið hafi 

brotið EES-samninginn með því 

að bæta ekki erlendum innstæðu-

eigendum í Landsbanka Íslands 

að minnsta kosti þá lágmarks-

fjárhæð sem reglur EES kveða á 

um. Virtir íslenzkir lögfræðingar 

hafa komizt að annarri niðurstöðu. 

Skoðanir þeirra hafa þó ekki mikla 

vigt í samanburði við skoðun ESA. 

Felli íslenzkir kjósendur lögin um 

Icesave er nánast víst að ESA muni 

höfða mál fyrir EFTA-dómstóln-

um á hendur íslenzka ríkinu fyrir 

samningsbrot. Í langflestum til-

vikum sem ESA hefur höfðað mál 

fyrir EFTA-dómstólnum á hendur 

samningsríkjunum hefur dómstóll-

inn fallizt á kröfur eftirlitsstofn-

unarinnar. Yrði sú niðurstaðan 

stæði íslenzka ríkið uppi brotlegt 

við mikilvægan alþjóðasamning, 

sem Íslendingar eiga mikið undir. 

Og það sem verra er, Íslendingar 

stæðu þá uppi sem óreiðumenn 

sem ekki greiða skuldir sínar.

Bretar og Hollendingar þurfa 

ekki að höfða mál fyrir íslenzkum 

dómstólum né annarra ríkja til að 

heimta kröfur sínar vegna Icesave, 

raunar ósennilegt að þeir myndu 

gera það. Þótt fjárhæðirnar séu 

okkur háar eru þær lágar fyrir 

ríkissjóði Breta og Hollendinga. 

Íslendingar mundu gjalda þess á 

alþjóðavettvangi að vera óskila-

menn. Það frost sem hefur verið 

í framtakssemi Íslendinga undan-

farin tvö ár mundi halda áfram, 

traust okkar í útlöndum sem hefur 

sennilega farið heldur vaxandi 

undanfarin misseri mundi hverfa 

eins og vorsnjór í aprílregni. 

Við mat á því hvort stefna eigi 

málum til dóms verður ekki síður 

að huga að því hvað kunni að tap-

ast en hvað kunni að vinnast. Hætt 

er við því að Íslendingar yrðu litlu 

betur settir þótt íslenzka ríkið 

ynni mál sem höfðað væri fyrir 

íslenzkum dómstólum, fórnar-

kostnaðurinn kæmi fram á öðrum 

vettvangi. Ef íslenzka ríkið tap-

aði málinu er hætt við að Icesave-

samningurinn yrði eins og barna-

leikur hjá þeirri fjárhæð sem 

krafan yrði þá um.

Þeir sem komnir eru vel yfir 

miðjan aldur og efnalega vel sett-

ir þurfa í sjálfu sér engu að kvíða 

(öðru en spotti á erlendum grund-

um). Ungu fólki sem enn liggur 

mikið á mun sýnast efnalegar fram-

farir mjög miklu minni en það nú 

væntir. Framtíð þess væri stefnt í 

óvissu. Allt til þess að efla enn smá-

borgaraskap og fávizku þeirra sem 

vilja allt til vinna að koma höggi á 

þá sem veittu umboðið til samninga 

um lyktir Icesave-deilunnar. Hætt 

er við að stórmennskukast þeirra 

sem ævinlega vilja segja: Komdu ef 

þú þorir, sérstaklega ef þeir eru í 

tryggu skjóli, gæti reynzt dýrkeypt.

Skynsamir menn semja

Börnin okkar, samtök foreldra leikskólabarna í Reykjavík, 

harma vinnubrögð borgarinnar við 

undirbúning niðurskurðar og sam-

einingartillagna á leikskólum. For-

eldrar voru kallaðir til allt of seint 

og þeim gert að koma með tillögur 

um sparnað, sem þeir höfðu litl-

ar forsendur fyrir. Allt of þröngur 

umræðugrunnur var á hverfafund-

um um málið. Að ráðast í margar 

sameiningar og uppsagnir 60 leik-

skólastjóra á einu bretti er áhlaup 

og aðför að leikskólum borgarinnar. 

Í niðursveiflu þyrfti miklu frekar að 

hlúa að börnum í stað þess að rífa 

niður faglegt leikskólastarf.

Lítill fjárhagslegur ávinningur

Reykjavíkurborg virðist aðeins 

stefna að rúmlega eins prósents 

heildarhagræðingu við þessar 

sameiningar fyrir árið 2014, en þá 

verða áhrif sameininga komin vel á 

veg. Síðan má færa rök fyrir því að 

hagræðingin sé í raun mun minni, 

jafnvel ekki nema rúmlega ½ pró-

sent. Skýringin á því felst í því að 

sumir sparnaðarliðir eru í raun 

sýndarsparnaður, eins og sparn-

aður á innri leigu fyrir byggingar 

sem ekki verða byggðar. Auk þess 

bendir samrekstur í öðrum sveitar-

félögum til þess að aðeins helm-

ings líkur séu á að enginn sparnað-

ur náist, sbr. könnun sem Samband 

íslenskra sveitarfélaga lét vinna árið 

2010 og birt er á vefsíðu þeirra. Þar 

kemur fram að kostnaður hjá meira 

en helmingi sveitarfélaga jókst eða 

stóð í stað eftir samrekstur, sem 

sagt leiddi ekki af sér fjárhagsleg-

an ávinning. 

Börnin okkar kalla eftir yfirliti 

yfir víðtækar rannsóknir sem sýna 

fram á faglegan og fjárhagslegan 

ávinning af sameiningu leikskóla 

og einnig sameiningu leik- og grunn-

skóla. Þá er sérstaklega óskað eftir 

yfirliti yfir rannsóknir sem sýna 

fram á ávinning af sameiningu leik-

skóla með ólíkar stefnur. 

Faglegur ávinningur óskilgreindur

Það fer fáum orðum í skýrslu 

starfshópsins um faglegan ávinn-

ing af sameiningu leikskóla en sam-

kvæmt leiðbeiningum frá Sambandi 

íslenskra sveitarfélaga um sam-

rekstur er fjallað um mikilvægi 

þess að byrja á að skilgreina hvaða 

ávinningi stefnt er að, áður en haf-

ist er handa við undirbúning sam-

reksturs. Einnig er fjallað um mik-

ilvægi þess að hafa gott samráð við 

foreldra og starfsmenn. Foreldrar 

hafa áður bent á að þeir upplifi ekki 

að um samráð hafi verið að ræða. 

Megin rökin fyrir faglegum ávinn-

ingi í skýrslunni eru þessi ?sam-

eining starfsmannahópa sem starfa 

á ólíkan hátt getur leitt til þróunar 

nýbreytni í leikskólastarfi. Í stærri 

starfsmannahópum verður oft til 

fjölbreyttari þekking og reynsla? 

Við viljum benda á að við sameining-

ar verða leikskólarnir ekki í sama 

húsi og í fæstum tilvikum eru leik-

skólarnir á sömu lóð þannig að lítil 

tækifæri eru fyrir starfsfólk að hitt-

ast og deila þekkingu enda hittast 

starfsmenn ekki allir saman nema 

á starfsdögum. Þannig að meintur 

ávinningur af þekkingarflæði verð-

ur lítill þegar starfsfólk hittist nán-

ast aldrei. Því er enn alveg ósvarað 

hver hinn meinti faglegi ávinningur 

af sameiningu leikskóla eigi að vera. 

Mikil andstaða 

Af þeim 800 ábendingum sem bár-

ust í ábendingagátt voru 65% um 

sameiningu og meirihluti þeirra 

innihélt varnaðarorð eða mótmæli 

gegn niður skurði í menntakerfinu. 

Þetta endurspeglar vel þá miklu 

andstöðu sem er meðal foreldra 

gegn fyrirhuguðum sameiningum. 

Einnig sýndu foreldrar leikskóla-

barna andstöðu sína við frekari nið-

urskurð og sameiningar leikskóla 

þann 10. febrúar síðastliðinn þegar 

um eitt þúsund leikskólaforeldrar 

söfnuðust saman fyrir utan ráðhús-

ið. Það er með öllu óásættanlegt að 

ábendingar sem bárust í ábendinga-

gátt séu ekki gerðar opinberar, ef 

einhverjar eru nafngreindar á skóla 

eða persónur mætti afmá slíkt, en 

þetta eru afar mikilvægar upplýs-

ingar sem endurspegla hug foreldra 

og fagfólks í málinu.

Við teljum að farið sé allt of geyst 

í sameiningar leikskóla. Uppsagnir 

á 60 leikskólastjórnendum á einu 

bretti segir allt sem segja þarf um 

hversu glæfraleg og forkastanleg 

vinnubrögðin eru. Hvað ef eng-

inn leikskólastjóri sækir um aftur? 

Mikil þekking og reynsla getur tap-

ast út úr leikskólakerfinu. Að vinna 

þetta með áhlaupi og í mikilli and-

stöðu við bæði foreldra og fagfólk 

getur haft afdrifaríkar og óaftur-

kræfar afleiðingar fyrir leikskóla-

starf til framtíðar. Þetta er ekki for-

gangsröðun fyrir börnin í borginni.

Hvað vinnst með áhlaupi á leikskólana?

Icesave

Jakob R. 

Möller

hæstaréttarlögmaður

Leikskólar

Rósa 

Steingrímsdóttir,

formaður Barnanna 

okkar, samtaka foreldra 

leikskólabarna í Reykjavík

Því ber að fagna að skilanefnd gamla Landsbankans telur 

nú að meira fáist fyrir eignasafn 

bankans sem verður þá til þess 

að lækka eitthvað þær greiðslur 

sem ríkisstjórnir Bretlands, Hol-

lands og Íslands vilja að íslenska 

þjóðin taki á sig fyrir 

fjárglæframennina. 

Ég fagna því að börn-

in mín þurfi að greiða 

minna af skuldum ann-

arra. 

Hins vegar verðum 

við að muna að mat 

þetta byggir á mati 

skilanefndarinnar 

eða þeirra sem vinna 

fyrir hana en ekki sjálfstæðu mati 

óháðra aðila. Ég hef því ásamt 

nokkrum öðrum þingmönnum lagt 

fram þingsályktun um að sjálf-

stætt mat verði lagt á eignasafn-

ið áður en Íslendingar ganga til 

kosninga um Icesave III. Reikna 

ég með að ályktunin gangi fljótt 

og vel í gegnum þingið enda mik-

ilvægt fyrir alla að trúverðugleiki 

ríki um matið. Vonandi er eigna-

safnið enn betra en skilanefndin 

gerir ráð fyrir. 

Fyrir því má færa rök, að ef 

eignasafnið batnar og batnar líkt 

og kynnt var nýlega þá hlýtur að 

vera betra að bíða og sjá hver þró-

unin verður í stað þess að efna til 

skuldbindinga sem enginn hefur 

fært rök fyrir að okkur beri að 

axla. En getur verið að verðmæti 

eignasafnsins sveiflist til? Fyrir 

Icesave II atkvæðagreiðsluna var 

eignasafn Landsbankans metið 

á 1172 milljarða. Nú er talað um 

að það sé mjög ánægjulegt að það 

hafi hækkað upp í 1175 milljarða. 

Hvers vegna? Jú, vegna þess að 

í millitíðinni LÆKK-

AÐI það niður í 1132 

milljarða! Ekki minntist 

kynningarnefndin á þetta 

í gær. 

Þá komum við að þeirri 

undarlegu sýningu sem 

haldin var í fjármálaráðu-

neytinu nýlega er íslenska 

samninganefndin kynnti 

nýtt mat skilanefndarinn-

ar! Hvers vegna í ósköpunum var 

samninganefndin að kynna matið? 

Hvar var skilanefndin? Því miður 

þá sýnist mér að nú sé samninga-

nefndin ekki lengur samninga-

nefnd heldur kynningar nefnd 

þríflokksins (Sjálfstæðisflokks, 

Samfylkingar og VG). Það er ljóst 

að umboð það sem ég taldi mig 

veita samninganefndinni náði ekki 

til kynningarstarfs. 

Hver greiðir kynningar-

kostnaðinn? 

Icesave-kynningar-

nefndin

Icesave

Gunnar Bragi 

Sveinsson

alþingismaður 

Framsóknarflokks

Hver greiðir 

kynningar-

kostnaðinn?

Því er enn alveg ósvarað hver hinn meinti 

faglegi ávinningur af sameiningu leik-

skóla eigi að vera. 

Íslendingar yrðu litlu betur settir þótt 

íslenzka ríkið ynni mál sem höfðað væri 

fyrir íslenzkum dómstólum, fórnar-

kostnaðurinn kæmi fram á öðrum vettvangi.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64