Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 Nótan ? uppskeruhátíð tónlistarskólanna hefst með fortónleikum fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Suðurnes í Hátíðarsal Tónlistarskóla FÍH á morgun. Fimmtán atriði öðlast að þeim loknum þátttökurétt á lokatónleika Nótunnar á landsvísu í Langholtskirkju 26. mars. Nánar á www.notan.is Matreiðslubókahöfund-urinn Yesmine Olsson gerði sér lítið fyrir og hreppti bronsverðlaun í flokki indverskra matreiðslu- bóka á stærstu matreiðslubóka- verðlaunahátíð heims í París á dögunum. Keppnin ber yfirskrift- ina Gourmand World Cookbook Awards og voru þátttakendur frá 154 löndum. Það er metþátttaka en talið er að 26.000 matreiðslu- bækur séu gefnar út í heiminum ár hvert og eykst fjöldi þeirra ár frá ári. Keppt var í 53 riðlum og verm- ir nýjasta bók Yesmine Olsson, Yesmine framandi og freistandi í eldhúsinu heima, þriðja sætið í fjölbreyttum flokki indverskra matreiðslubóka ?Þetta er í annað skipti sem ég tek þátt og besti árangur minn hingað til,? segir hún glöð í bragði en þess má geta að Íslendingar hafa áður tekið þátt í keppninni með góðum árangri. Umfram heiðurinn sem verðlauna- hafarnir hljóta segir Yesmine til- ganginn með verðlaununum meðal annars þann að matreiðslubóka- höfundar fái tækifæri til að hitta erlenda útgefendur og freista þess að fá bækur sínar þýddar og gefn- ar út í öðrum löndum. Bók Yesmine hefur þegar verð þýdd á þýsku og gefin út í Austurríki og segir hún jafnvel möguleika á frekari útgáfu erlendis. ?Þetta er þriðja mat- reiðslubókin mín en hinar tvær eru uppseldar hjá útgefanda svo þetta virðist vera að virka.? Nýjustu bókinni fylgir DVD- geisladiskur og á honum byggja sjónvarpsþættir sem hafa verið sýndir á RÚV að undanförnu en síðasti þátturinn var í gær. ?Ég er svo að vinna að gerð nýrrar mat- reiðslubókar í Svíþjóð auk þess sem ég stend fyrir matreiðslunám- skeiðum í Veisluturninum sem byggja á bókunum mínum en þess má geta að næsta námskeið verður haldið næstkomandi þriðjudag.? vera@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Heiður og tækifæri Yesmine Olsson hreppti bronsverðlaun fyrir nýjustu matreiðslubókina sína í París á dögunum.