4 föstudagur 11. mars ? Lifið og hlæið útlit ? Kæra Sigga Dögg! Ég er búin að vera í sambúð með unnusta mínum í þrjú ár og yfirleitt erum við nokkuð lukkuleg. Þegar okkur lendir saman er það oftast vegna smávægilegra hluta sem við koma heimilishaldi. Ég er ekkert allt of þrifin sjálf, er gjörn á að láta föt liggja á gólfinu alltof lengi og finnst hund- leiðinlegt að vaska upp, en ég skil að þetta er eitthvað sem þarf bara að gera. Unnusti minn virðist ekki vera á sama máli og það er nánast ómögulegt að fá hann til að hjálpa við þrifin og hann ofnotar setninguna: Ég sé bara ekki þennan skít þannig að hvernig á ég að geta þrifið? Kanntu einhver ráð til að gera hann virkari í heimilishaldinu? Svar: Þegar stórt er spurt! Ég er einmitt sú sem held yfirborði heim- ilisins hreinu en er ekki mikið fyrir að þrífa ?ósýnilega? skítinn. Maður- inn minn á hinn bóginn ryksugar undir húsgögnunum og á bak við þau og það er nokkuð sem ég hef aldrei pælt í að gera. Þetta leysir þó tæpast þinn vanda. Óþrifnaður, eða skítaþröskuldurinn, er einstaklingsbund- inn og því er þetta eitt af þeim málum sem hvert par þarf að koma sér saman um þegar það hefur sambúð. Hér er málamiðlun lykilorðið og nú reyn- ir á hæfni ykkar í samskiptum sem byggja á þolin- mæði, skilningi og sveigjanleika. Það þarf samt að fara varlega í skilgreiningar á skít og hverslags þrif- um hver þarf að sinna og hversu reglulega þeim skal sinnt. Ég hef heyrt konur ráðleggja hvor ann- arri ýmislegt misskynsamlegt þegar kemur að því að virkja makann og gott ef þær ráðleggingar snú- ist oftar en ekki um kynferðislega neitun og aðhald. Ég mæli ekki með því enda græðir þú ekkert á því nema meiri skít og pirring. Hér tel ég að það þurfi að taka uppeldisfræðilega á málunum. Þú þarft að setja upp verðlaunakerfi fyrir ykkur bæði. Þó hann sjái ekki skít- inn þá gilda reglur á heimilinu og þetta er bara eitt af því sem þarf að gera. Heimilið er ekki svo frábrugðið hreinlæti líkamans, báðu þarf að sinna reglulega. Það gildir líka fyrir þig hvað varðar frágang á fatnaði því það er erfitt að skúra þegar hindranir eru á vegi manns. Nú komið þið ykkur saman um þrifdag, skiptið niður verkum og verðlaunið ykkur svo að verklokum. Fólk þrífur á ólíkan hátt og misvel og það er eitt- hvað sem maður þarf að sætta sig við. Ef þér finnst hlutirnir illa gerðir þá kannski ættir þú að slaka á kröfunum eða gera þá sjálf. Það er fátt meira óþolandi en að hafa þriflögguna yfir sér kvartandi og kveinandi yfir því að borðtuskunni sé ekki snúið rétt á borðinu. Það er engin ein rétt leið og ef einhver vill þurrka af í kassamunstri en ekki áttlaga þá má það líka. Aftur að verðlaunakerfinu, persónulega finnst mér mjög hvetjandi að geta hugsað mér gott til glóðarinnar þegar ég þríf klósett- skálina því það þykir mér leiðinlegt að gera. Ef þrifmálin fara að verða stórmál á ykkar heimili og orsök deilna þá má líka kanna hvort þið séuð tilbúin til að borga reglulega utanaðkomandi manneskju fyrir þrifin. Það er atvinnuskapandi, fríar ykkar tíma og þið hættið að rífast og þar með er málið leyst! Hér tel ég að það þurfi að taka uppeldisfræði- lega á málun- um. Þú þarft að setja upp verð- launakerfi fyrir ykkur bæði. Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur KONUDAGSSÁPA Þessi sápa frá L?Occitane er gerð í sam- vinnu við sápuverksmiðju í Búrkína Fasó sem rekin er eingöngu af konum. Sápan inniheldur shea-smjör og er framleidd í tilefni af al- þjóðlegum konudegi sem var 8. mars síðastliðinn. G oðsögnin Carine Roitfeld, fyrrverandi ritstjóri franska Vogue, sagðist ætla að sigla á ný mið eftir starf sitt hjá tímaritinu. Samkvæmt heimildum gæti þó vel verið að Roitfeld haldi sig við það sem hún gerir best og stofni franska Harper?s Bazaar. Samkvæmt Hintmag.com gæti verið að Roitfeld muni stofna franska Harper?s Bazaar í nán- ustu framtíð. Verði ekkert úr því hefur henni boðist starf sem list- rænn ráðgjafi tískuhússins YSL og hefur Dior einnig sýnt áhuga á að fá hana til starfa sem stílista. Það kemur mörgum á óvart að Roitfeld ætli sér að halda áfram í sama bransa og þá sérstaklega að hún hafi kosið að fara í beina samkeppni við franska Vogue. Flestir töldu að Roitfeld myndi finna sér starf sem stílisti en hún hóf einmitt feril sinn innan tísku- bransans sem slíkur. Í viðtali við Style.com sagði Roitfeld að framtíðin væri enn óráðin en að hún ætlaði sér að halda áfram að starfa innan tísku- heimsins. ?Ég veit ekki hvaða leið ég mun velja. Annað hvort held ég áfram í fjölmiðlum eða ger- ist músa einhvers.? Hún staðfesti einnig að samband hennar og Emmanuelle Alt, arftaka hennar hjá franska Vogue, væri ekki gott og gæti það verið ástæðan fyrir því að hún ætli sér í samkeppni við sinn gamla vinnustað. - sm Carine Roitfeld gæti stofnað franska Harper?s Bazaar: Í samkeppni við VOGUE Goðsögn Carin Roitfeld gæti stofnað franska Harper?s Bazaar og farið í beina samkeppni við sinn gamla vinnustað, franska Vogue. NORDICPHOTOS/GETTY NAHM er nýtt hönnunartvíeyki sem samanstendur af hönnuð- inum Nary Manivong og Ally Hilfiger, dóttur hönnuðarins Tommy Hilfiger. Tvíeykið sýndi sína fyrstu línu á tískuvikunni í New York sem fram fór í lok febrú- ar. Manivong og Hilfiger ákváðu að skapa heila línu út frá hinum klassíska skyrtukjól og tókst þeim ætlunarverk sitt ágætlega. Línan inniheldur meðal annars síða og stutta skyrtukjóla í svörtum og ryðlitum tónum og eru flest snið- in víð og þægileg. Byrjunin lofar góðu og verður gaman að fylgjast með framhaldi þessa tvíeykis. - sm NAHM frumsýnir sína fyrstu línu: Ágætis byrjun Góð byrjun Hönnunartvíeykið NAHM sendi frá sér sína fyrstu línu núna í febrú- ar og lofar byrjunin góðu. Línuna unnu þau út frá hinum klassíska skyrtukjól eins og myndirnar sýna. NORDICPHOTOS/GETTY www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40 30%-50% af skíðum Allt að 70% af fatnaði 20% af skíðagleraugum 20-50% af skíðahjálmum 50% af snjóbrettum 20-50% af skíðapokum 20-50% af hönskum og húfum