Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						6 föstudagur  11. mars

eftir það vinnu við leikhús. Kona 

að nafni Systa Thors, sem ég kalla 

alltaf sminku mömmu mína, tók 

mig undir sinn verndar væng og í 

gegnum hana komst ég inn í Þjóð-

leikhúsið og Loft kastalann. Um 

svipað leyti kynntist ég ljósmynd-

aranum Ara Magg sem var líka að 

stíga sín fyrstu skref í bransanum 

á þessum tíma, þó kominn að-

eins lengra en ég, og við fórum að 

vinna einhver verkefni saman og 

eitt leiddi eiginlega bara að öðru.?

Fríða María viðurkennir það 

hafa komið sér og fjölskyldunni 

á óvart að hún hafi fetað þessa 

braut enda hafi hún aldrei verið 

sérstaklega mikil pæja. ?Þessu 

kynntist ég bara óvart og fattaði 

í kjölfarið að starfið getur bæði 

verið spennandi og fjölbreytt. 

Mamma varð mjög hissa og ég 

held að fáir hafi séð þetta fyrir og 

þá allra síst ég sjálf. Ég var alltaf 

svolítil strákastelpa í mér því allt 

þetta pæjustand átti ekki vel við 

mig,? segir hún brosandi. 

NAUÐSYNLEGT AÐ BRJÓTA 

UPP RÚTÍNUNA

Í gegnum árin hefur Fríða María 

komið að fjölda verkefna og vann 

meðal annars við gerð sjónvarps-

þáttanna Tíma nornarinnar og 

kvikmyndarinnar Mömmu Gógó 

auk fjölda erlendra og innlendra 

auglýsinga, tónlistarmyndbanda, 

tískusýninga og tískumyndaþátta. 

Aðspurð segist Fríða María hafa 

gaman af starfi sínu sem hún segir 

skemmtilega fjölbreytt. ?Stundum 

er þetta mikil rútína en svo koma 

alltaf krefjandi og skapandi verk-

efni inni á milli sem gerir þetta 

þess virði, mér finnst nefnilega 

nauðsynlegt að brjóta aðeins 

upp í rútínunni reglulega. Svo 

fer þetta mikið eftir samstarfs-

fólkinu og starfs umhverfinu, 

sum verkefni sem virka kannski 

óspennandi á pappír geta verið 

þræl skemmtileg bara vegna 

hópsins og stemningar innar sem 

myndast innan hans.? 

Fríða María starfar helst hér 

á landi en tekur gjarnan að sér 

verkefni fyrir ýmsa erlenda aðila 

sem koma hingað til að vinna 

tónlistarmyndbönd, auglýsingar 

eða tískuþætti. ?Ég er ekki að 

leita annað eftir vinnu enda er 

nóg að gera hér. Það mundi líka 

þýða minni tíma með fjölskyldu 

minni,? útskýrir hún. Fríða María 

er gift og á tvö börn, stúlku á 

þrettánda ári og átta ára gamlan 

strák. Hún segir langa vinnudaga 

taka sinn toll af heimilislífinu en 

segir fjölskylduna sýna sér mik-

inn skilning. ?Vinnu dagurinn 

getur verið mjög langur og það 

getur verið svolítið erfitt að sam-

ræma vinnuna og fjölskyldu lífið. 

Fjölskylda mín er orðin vön því, 

sem er ekki endilega jákvætt, 

og eru börnin hætt að kippa sér 

upp við það að ég komist ekki 

á tónleika eða skóla sýningar 

heldur upplifi þetta í gegnum 

myndbands upptökur, það er ekki 

skemmtilegt. Álagið á makann 

getur líka oft á tíðum verið allt-

of mikið.? 

Það getur verið erfitt að plan-

leggja fram í tímann þegar maður 

starfar sjálfstætt og viðurkennir 

Fríða María að það sé nokkuð 

sem hún eigi erfitt með að taka 

í sátt. ?Mér finnst ekkert mál að 

vinna langa daga ef ég vissi svo 

nákvæm lega hvenær ég ætti frí, 

en í þessum bransa er erfitt að 

skipuleggja fram í tímann.? 

MJÖG HEIMAKÆR

Blaðamaður spyr Fríðu Maríu 

hvort hún fái frið frá vinkonum 

og fjölskyldumeðlimum á frí-

dögum sínum eða hvort hún sé 

gjarnan fengin til að aðstoða 

við helgar förðunina? ?Nei, ég er 

blessunarlega nokkuð laus við 

það,? segir hún og brosir. ?Ég held 

að mínir nánustu fatti það að 

maður nennir ekki alltaf að vera í 

vinnunni. Ég man bara eftir einu 

partíi stuttu eftir að ég kláraði 

förðunar skólann þar sem ég farð-

aði eina vinkonuna og þá var allt 

í einu komin röð og allt kvöldið 

fór í þetta. Auðvitað kemur fyrir 

að maður aðstoði sína nánustu 

?Fyrir þrettán 

árum sagðist 

ég ætla að hætta í 

bransanum þegar ég 

væri orðin 35 ára því 

þá væri maður líklega 

orðinn of gamall.?

Viðtal: Sara McMahon

Ljósmyndir: Bernhard Kristinn

Datt óvart í framtíðarstarfið Fríða María Harðardóttir leiddist óvart út í förðunarstarfið. Hún hefur unnið sem förðunarfræðingur í þrettán ár og

FÓR ÓVAR  FÖRÐUNARSTAR

Fríða María Harðardóttir 

hefur starfað sem förð-

unarfræðingur undan-

farin þrettán ár. Á þeim 

tíma hefur hún náð að 

skapa sér nafn sem einn 

fremsti förðunarfræð-

ingur landsins og tekið 

að sér fjölda verkefna. 

Fríða María ólst upp í Skerjafirð-

inum og segir hverfið vera nán-

ast eins og lítið þorp í miðri borg-

inni. ?Það var mjög skemmtilegt 

að alast þarna upp. Krakkarnir í 

hverfinu léku sér alltaf saman 

þrátt fyrir að vera á mismun-

andi aldri og það var alltaf mjög 

skemmtileg stemning sem ríkti 

þarna,? segir Fríða. 

Móðir hennar er færeysk og 

faðir hennar frá Vestmanna-

eyjum og segist Fríða María því 

vera mikill eyjarskeggi í sér. ?Afi 

minn og amma fluttu til Íslands 

þegar móðir mín var unglingur og 

bjuggu alltaf hér. Þrátt fyrir það 

finn ég fyrir sterkum tengslum til 

Færeyja og þá sérstaklega í gegn-

um afa minn sem fór með barna-

börnin eitt og eitt sumar til Fær-

eyja. Mér líður alltaf voðalega vel í 

Færeyjum og reyni að fara í heim-

sókn þegar ég get,? útskýrir Fríða 

og bætir við að það sama gildi um 

Vestmannaeyjar. ?Ég er alltaf að 

vonast eftir því að þeir lagi þessa 

nýju höfn svo ég geti farið oftar. 

Vandamálið er að ég verð svo sjó-

veik og það hefur svolítið stopp-

að mig í að fara eins oft og mig 

langar til.? 

Móðir Fríðu Maríu er matgæð-

ingurinn og veitingakonan Mar-

entza Poulsen og þegar Fríða er 

innt eftir því hvort hún sé jafn 

mikill ástríðukokkur og móðir sín 

svarar hún hlæjandi: ?Nei. Mat-

argerðargeninu var svolítið mis-

skipt, bróðir minn fékk töluvert 

meira af því en ég þó ég vilji nú 

ekki meina að ég sé al slæmur 

kokkur. Pabbi eldaði oft handa 

okkur þegar við vorum börn þar 

sem mamma vann gjarnan á 

kvöldin og þá fengum við oft eitt-

hvað sem kallað var ?ísskápa-

slys? og samanstóð af hinu og 

þessu sem fannst í ísskápnum. 

Ætli ég hafi ekki erft svolítið af 

kokkahæfileikum beggja foreldra 

minna.?

ÓVART ÚT Í FÖRÐUN

Fríða María stundaði myndlistar-

nám í Myndlista- og handíðaskóla 

Íslands og útskrifaðist þaðan árið 

1998. Hún átti von á sínu fyrsta 

barni þegar þetta var og fannst 

því skynsamlegra að leita sér að 

fastri vinnu eftir útskrift heldur 

en að reyna fyrir sér sem lista-

maður. ?Ég fór að vinna í verslun 

í Kringlunni sem var við hliðina 

á förðunarvöruverslun sem rak 

einnig förðunarskóla. Ég var alltaf 

eitthvað að sniglast þarna í kring 

og ákvað að taka eitt námskeið 

um sumarið og fékk fljótlega 

Íslenski dansflokkurinn

S

ý

n

t

 

í

 

B

o

r

g

a

r

l

e

i

k

h

ú

s

i

n

u

 

9

.

 

m

a

r

s

 

?

 uppselt11.

 

m

a

r

s

 

?

 uppselt12. 

m

a

r

s

 

?

 uppselt13. m

a

r

s

 

?

 aukasýning

M

i

ð

a

s

a

l

a

 

í

 

s

í

m

a

 568 8000 

e

ð

a

 www.id.is

Lokasýning sunnudaginn 13. mars

4

.

 

m

a

r

s

 

?

 uppselt5. m

a

r

s

 

?

 uppselt6. 

m

a

r

s

 

?

 uppselt8. m

a

r

s

 

?

 uppselt

SOHO/MARKET Á FACEBOOK

Grensásvegur 16 - sími 553 7300 

Opið mán-fös 14?19. Laugd. 12?17

FULL BÚÐ AF 

NÝJUM VÖRUM

 

Leggings, bolir, kjólar, töskur, 

skart og mfl.

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64