Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						11. MARS 2011  FÖSTUDAGUR2 ? mottumars ? karlar og krabbamein

Rúnar Sigurðsson bar sigur úr býtum í einstaklings-

keppni Mottumars í fyrra. Hann fór þó ekki af stað 

í keppnina með það markmið. ?Í upphafi setti ég inn 

mynd af mér á síðuna í rælni og hugsaði ekki um það 

frekar,? segir Rúnar en bróðir hans var mjög veikur 

af krabbameini á þessum tíma. ?Hann talaði um hvað 

ég væri að gera mikið góðverk og þó mér fyndist nú 

ekki mikið góðverk að safna skeggi óx mér máttur við 

þetta og ég einsetti mér að tala um málefnið við alla,? 

segir Rúnar. Þegar bróðir hans dó 9. mars ætlaði hann 

að gefast upp á keppninni. ?Við vorum svo nánir bræð-

urnir og alltaf saman,? segir Rúnar en á svipuðum 

tíma greindist faðir hans einnig með krabbamein. 

Stuttu síðar dreymdi hann draum. ?Ég sat í skóla-

sal og þar var í gangi keppni í að geta upp á lögum. 

Allt í einu sat bróðir minn fyrir aftan mig og sagði: 

?Þú getur líka tekið þátt.? Í því var spilað lag og ég 

stóð upp og kallaði að ég vissi svarið,? segir Rúnar 

sem áttaði sig á því að hann ætti að vera með í Mottu-

mars.

?Ég gerði lítið annað en að uppfæra lýsingu mína 

á síðunni og sagði frá eigin reynslu. Ég var opinn og 

margir gáfu eitthvað af sér,? lýsir hann og áréttar að 

tilgangur keppninnar sé að auka umræðuna, peninga-

söfnun sé aukaatriði.

En hvað gaf keppnin honum sjálfum? ?Ég hafði 

þarna misst þann sem ég hafði alltaf getað talað við. 

Meira að segja áður en bróðir minn dó gat ég ekki 

talað um það við hann hvað mér liði illa yfir því að 

hann væri veikur. En allt í einu var í lagi fyrir mig að 

tala um líðan mína og fólk var tilbúið til að hlusta.?

Fólk var tilbúið að hlusta

?Ég einsetti mér að tala um málefnið við alla,? segir Rúnar Sig-

urðsson, sem sigraði síðast í einstaklingskeppni Mottumars.

 MYND/VILHELM

Rætt við Geir Gunnlaugsson 

landlækni.

Geir Gunnlaugsson tók við embætti 

landlæknis í byrjun síðasta árs. Í 

vor stendur til að sameina Land-

læknisembættið og Lýðheilsustöð.

?Ég er á þeirri skoðun að við sam-

eininguna muni það besta í báðum 

stofnunum dafna og eflast,? segir 

Geir. ?Landlæknisembættið á djúp-

ar rætur í íslensku samfélagi, enda 

vorum við að fagna 250 ára af-

mæli. Verkefnin nú eru á margan 

hátt byggð á þeim grunni sem þá 

var lagður. Lýðheilsustöð er aftur á 

móti átta ára gömul stofnun og fékk 

í heimanmund nokkur verkefni sem 

áður voru á vegum Landlæknis-

embættisins, auk nýrra verkefna á 

sviði lýðheilsu í landinu.

Sameiningin gefur okkur 

því tækifæri til að endurmeta 

og skipuleggja á ný þau verk-

efni sem okkur eru falin af lög-

gjafanum. Allt starf hins samein-

aða embættis á síðan að miðast 

við að bæta heilbrigði og lífsgæði 

fólks á öllum æviskeiðum.?

En hver er ávinningurinn af 

samstarfi við frjáls félagasamtök 

á heilbrigðissviði, að mati Geirs, og 

hvernig sér hann það þróast?

?Frjáls félagasamtök eru mikil-

væg viðbót við starf opinberra 

stofnana til að efla heilbrigði og 

lífsgæði fólks. Þau virkja einstak-

linga til að hafa áhrif á sitt nán-

asta umhverfi og eru þannig stöðug 

hvatning fyrir opinberar stofnanir 

til að gera betur. Það er því mikil-

vægt að sameinuð stofnun land-

læknis og lýðheilsu haldi áfram að 

rækta tengsl sín við frjáls félaga-

samtök. Starf Krabbameinsfélags 

Íslands er mikilvægt til að gera 

góða heilbrigðisþjónustu enn betri 

og hefur félagið átt gott samstarf 

við embætti landlæknis á liðnum 

árum.?

Geir var spurður að því hverjir 

væru helstu veikleikar og styrk-

leikar þeirrar þjónustu sem 

krabbameinssjúklingum stendur 

nú til boða.

?Ég tel að Íslendingar geti verið 

stoltir af þeim árangri sem hefur 

náðst í þjónustu við þá sem grein-

ast með krabbamein,? segir land-

læknir. ?Lífshorfur hafa aukist á 

liðnum árum og þjónustan batnað. 

Ég hef í starfi mínu fundið fyrir 

miklum metnaði fagfólks sem sinn-

ir þeim sem greinast með krabba-

mein. Alltaf má þó gera betur, til 

dæmis bæta aðstöðu þeirra sem eru 

í virkri lyfjameðferð og aðstand-

enda þeirra.?

Sagt er að karlmenn séu líklegri 

til að leita sér seinna lækninga 

en konur. Hver heldur Geir að sé 

ástæða þess?

?Væntanlega er helsta skýring-

in sú að konur eru í meiri tengslum 

við heilbrigðisþjónustuna en karl-

menn. Þær mæta vel í mæðravernd 

og oftast eru það konur sem koma 

síðan með börnin sín í ungbarna-

vernd og smábarnavernd og sinna 

þeim þegar þau veikjast. Þannig 

kynnast þær betur þeirri þjón-

ustu sem í boði er á heilsugæslu-

stöðvum,? segir Geir.

Gerum góða þjónustu betri

?Ég tel að Íslendingar geti verið stoltir af þeim árangri sem hefur náðst í þjónustu við þá sem greinast með krabbamein,? segir 

Geir Gunnlaugsson landlæknir. MYND/GVA

Nú í mars stendur Krabbameinsfélag Íslands fyrir árvekni- og fjár-

öflunarátaki með það að markmiði að efla fræðslu og forvarnir, rann-

sóknir og ráðgjöf vegna krabbameina hjá karlmönnum. Í fyrra tókst 

átakið mjög vel og miðlað var mikilvægum upplýsingum til almenn-

ings, auk þess sem við söfnuðum fé sem gerði okkur kleift að takast 

á við verkefni félagsins af auknum krafti. Við gerum grein fyrir ár-

angri átaksins og nýtingu fjárins á heimasíðu félagsins og erum stolt 

af verkum okkar.

Í ár ætlum við að gera enn betur. Mottumars, söfnun yfirvara-

skeggs til marks um samstöðu og til áheita, er mikilvægur hluti átaks-

ins. Efnt er til liða- og einstaklingskeppni og frést hefur af áhöfnum, 

sveitarfélögum, fyrirtækjum og alls kyns klúbbum sem ætla að keppa 

af lífi og sál. Hægt er að tengja saman samkeppni og samstöðu, auk 

þess sem kímnigáfan er ekki langt undan.

Krabbameinsfélag Íslands er sextíu ára í ár. Við ætlum að minnast 

þeirra tímamóta með margvíslegum hætti og vinna áfram að mark-

miðum félagsins í þágu íslensku þjóðarinnar.

Við viljum hvetja alla til að taka þátt í marsátakinu okkar og leggja 

góðu málefni lið, með þeim hætti sem hverjum og einum hentar best.

Sigríður Snæbjörnsdóttir, 

formaður stjórnar Krabbameinsfélags Íslands

Ragnheiður Haraldsdóttir,

 forstjóri Krabbameinsfélags Íslands

ALLIR SAMAN NÚ!

Sigríður og Ragnheiður hvetja alla til að taka þátt í átakinu. MYND/GVA

? BÓK UM ALGENGASTA MEINIÐ  Þeir sem vilja fræðast um al-

gengasta krabbamein karla ættu að lesa bókina ?Krabbamein í blöðru-

hálskirtli? sem læknarnir Eiríkur Jónsson og Snorri Ingimarsson þýddu úr 

sænsku og staðfærðu.

Í bókinni eru gagnlegar upplýsingar um sjúkdóminn frá mörgum 

sjónarhornum, meðal annars um greiningu hans og gildi PSA-blóðprófa. 

Fjallað er um flókinn sjúkdóm á auðskilinn hátt og í bókinni eru margar 

skýringarmyndir. 

Bókin kostar 2.880 krónur og er seld hjá Krabbameinsfélagi Íslands, 

Skógarhlíð 8 og í netverslun félagsins á www.krabb.is. Geisladiskur með 

málþingi um krabbamein í blöðruhálskirtli fylgir frítt með.

Eins má nálgast bókina á almenningsbókasöfnum. Stuðningshópur-

inn ?Góðir hálsar? gaf þeim hana í tilefni af 10 ára afmæli sínu en allan 

þann tíma hafa þeir haft rabbfundi og fræðslufundi fyrsta miðvikudag í 

hverjum mánuði.

Útgefandi: Krabbameinsfélag Íslands Heimilisfang: Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík

Vefsíða: www.krabb.is og/eða www.karlmennogkrabbamein.is 

Ritstjóri: Laila Sæunn Pétursdóttir Ábyrgðarmaður: Ragnheiður Haraldsdóttir 

ÍS

LE

N

SK

A

 S

IA

.I

S

 S

FG

 4

20

40

 0

4.

20

08

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64