Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						11. MARS 2011  FÖSTUDAGUR4 ? mottumars ? karlar og krabbamein

Risvandamál er algengur 

fylgikvilli eftir aðgerð þar 

sem blöðruhálskirtillinn 

er fjarlægður vegna 

krabbameins. 

Á göngudeild þvagfærarannsókna 

11-A á Landspítala við Hringbraut 

er móttaka fyrir karla með ris-

vandamál eftir brottnám á blöðru-

hálskirtli vegna krabbameins. 

Móttakan hefur verið starfrækt í 

rúm tvö ár. 

?Þeir sjúklingar sem koma 

til okkar hafa farið í aðgerð þar 

sem blöðruhálskirtillinn er fjar-

lægður vegna krabbameins og 

eru með risvandamál í kjölfarið. 

Við fáum beiðni frá þvagfæra-

skurðlækni sem hefur metið þörf 

á sérhæfðri meðferð hjúkrunar-

fræðinga. Einnig fáum við beiðn-

ir frá krabbameinslæknum vegna 

karla sem eiga við risvandamál 

vegna lyfja- og geislameðferða,? 

segir Hólmfríður Trausta dóttir, 

hjúkrunar fræðingur á göngu-

deild 11-A. ?Hér fá þeir kennslu í 

að sprauta sig með lyfi sem veldur 

stinningu og hvernig á að nota sog-

dælu.? 

Eru risvandamál algeng eftir 

aðgerð? ?Þetta er talsvert algengt 

vandamál til að byrja með eftir 

brottnám á blöðruhálskirtli, en 

það getur lagast þegar frá líður,? 

segir Hólmfríður. ?Það eru um 

fimmtíu manns sem fara í svona 

aðgerð á ári en þeir koma auðvitað 

ekki allir til okkar þótt margir 

geri það. Hingað koma þeir yfir-

leitt bara einu sinni og fá þessa 

kennslu. Þessir sjúklingar fá 

einnig kennslu í grindarbotnsæf-

ingum en nýjar rannsóknir hafa 

sýnt að þær hjálpa gegn bæði ris-

vandamálum og þvagleka. Það 

er talið að 40 til 50 prósent karl-

manna um fimmtugt séu með ein-

hverjar ristruflanir, sem aukast 

með aldrinum, og grindarbotns-

æfingar eru taldar hjálpa þeim 

sem eiga við þetta vandamál að 

stríða, ekki bara þeim sem hafa 

farið í aðgerð.? 

En ef þetta dugar ekki eru til 

önnur úrræði? ?Já, það eru til 

önnur úrræði. það er hægt að setja 

ígræði eða pumpu í liminn.?

Nú stendur yfir ljósmyndasýning 

á 1. hæð Kringlunnar þar sem sjá 

má yfir 20 karlmenn á öllum aldri 

sem skarta myndarlegu yfirvara-

skeggi. Unnt er að kaupa mynd-

irnar á þjónustuborði Kringl-

unnar. Stórar myndir eru seldar 

á 50.000 krónur en hægt er að fá 

gæðaprentun af minni myndum á 

15.000 krónur. Allur ágóði af söl-

unni rennur til Krabbameins félags 

Íslands. Myndirnar verða afhentar 

kaupendum í lok átaksins. 

Nonni, eigandi hárgreiðslustof-

unnar Krista/Quest í Kringlunni, 

átti þessa hugmynd en hann fékk 

ýmsa karlmenn í lið með sér og 

snyrti skegg þeirra. Strákarnir 

hjá Illusion sáu um myndatökuna 

og gerðu einnig myndband um 

skeggsnyrtinguna og lögðu spurn-

ingar fyrir þátttakendur. ?Mig 

langaði til að setja enn meiri kraft 

í Mottumars og hafði samband við 

ýmsa stráka en í fyrra komu fjöl-

margir menn til mín í skeggsnyrt-

ingu. Mér finnst Mottumars frá-

bært framtak og gaman að fá að 

mynda skegg af ýmsum stærðum 

og gerðum.? 

Myndirnar verða til sýnis 

og sölu í Kringlunni út mars en 

einnig er hægt að skoða þær á 

www.karlmennogkrabbamein.

is. Kringlan er einn af mörgum 

samstarfsaðilum Krabbameins-

félags Íslands í árvekniátakinu 

Mottumars.

Ljósmyndasýning 

í Kringlunni

Ljósmyndarinn Einar Smárason og Jón Aðalsteinn Sveinsson, betur þekktur sem 

Nonni Quest. MYND/GVA

? SÓL OG LJÓS GETA VALDIÐ SORTUÆXLUM  Sortuæxli 

eru ein af mörgum tegundum húðkrabbameina. Auðvelt er að lækna slík 

mein greinist þau snemma en þau geta verið banvæn greinist þau seint 

og hafa náð að dreifa sér. Hér á landi hefur sortuæxlum fjölgað mikið 

undanfarið. Tíðnin hefur tvöfald-

ast á einum áratug. Nú greinast 

að meðaltali 20 karlar á ári með 

sortuæxli í húð og 30 með önnur 

illkynja húðæxli.

Eftirtaldir þættir geta aukið 

líkur á myndun sortuæxla: Ljós 

húð, freknur, húð sem brennur 

auðveldlega, sólbruni í ljósa-

bekkjum, margir fæðingarblettir, 

óreglulegir fæðingarblettir og ef 

náinn ættingi hefur greinst með 

sortuæxli. Allir sem hafa einn eða 

fleiri áhættuþætti ættu að láta lækni skoða sig. Ef grunur vaknar að um 

sortuæxli geti verið að ræða þarf að fjarlægja meinið með skurðaðgerð. 

Vitað er að sólin getur valdið sortuæxlum. Sólböð barna og unglinga 

virðast vera sérstaklega hættuleg. Ljósabekkir eru einnig mjög hættu-

legir. Ef farið er í sól, hérlendis eða erlendis, skal nota sterka sólarvörn, að 

minnsta kosti SPF 25, sem ver bæði fyrir A- og B-geislum en gæta þess 

samt að vera ekki lengi í sól í einu. 

Úr fræðsluriti Krabbameinsfélagsins ?Sortuæxli í húð? eftir læknana Bárð Sigurgeirsson og Jón 

Hjaltalín Ólafsson.

? VILTU KAUPA SKEGG?  Þeir sem ekki ætla að safna skeggi í 

marsmánuði ? og allir hinir ? geta nælt yfirvaraskegg í barminn til að 

sýna samstöðu í baráttunni gegn krabbameini hjá körlum. 

Dagana 12.-26. mars verða svonefndar skeggnælur, barmmerki sem 

eru í laginu eins og yfirvaraskegg, til sölu í flestum verslunum Kringlunn-

ar. Auk þess munu stuðningshópar og svæðafélög Krabbameinsfélags 

Íslands selja skeggnælur dagana 17.-20. mars. 

Skeggnælan kostar 1.500 krónur og rennur ágóðinn til fræðslu og for-

varna, rannsókna og ráðgjafar.

Hólmfríður Traustadóttir hjúkrunarfræðingur starfar á göngudeild 11-A á Land-

spítala við Hringbraut. Þar er móttaka fyrir karla með risvandamál eftir brottnám á 

blöðruhálskirtli. MYND/GVA

Aðstoð og fræðsla eftir 

blöðruhálskirtilsnám

Valur Þór Marteinsson, yfirlæknir 

þvagfæraskurðdeildar Sjúkrahúss-

ins á Akureyri, segir mikilvægt 

að karlar sem komnir eru yfir 

fimmtugt láti mæla PSA í blóði ef 

bróðir, faðir eða afi hafa greinst 

með sjúkdóminn. Aðrir á þessum 

aldri ættu einnig að huga að mæl-

ingu á PSA, ekki síst ef þeir verða 

varir við einkenni svo sem þvagt-

regðu eða tíð þvaglát. Valur segir 

að því miður gefi gildi á þessu mót-

efni ekki einhlíta niðurstöðu um 

tilvist krabbameins en með viðbót-

arrannsóknum megi oftast skera 

úr um það. 

Aðspurður segir Valur Þór 

að lítið sé vitað um það hvern-

ig koma megi í veg fyrir krabba-

mein í blöðruhálskirtli. Þó séu sí-

fellt fleiri rannsóknir sem sýna 

gildi hreyfingar, einnig eftir að 

sjúkdómurinn hefur verið greind-

ur. Þá sé ýmislegt sem bendi til 

þess að neysla ávaxta og grænmet-

is dragi úr líkum á að sjúkdómur-

inn myndist en engar óyggjandi 

sannanir hafi þó fengist.

Meðalaldur þeirra sem greinast 

með krabbamein í blöðruhálskirtli 

er rúmlega sjötíu ár. Valur Þór 

segir að oft séu karlar á þeim aldri 

mjög vel á sig komnir og eigi mörg 

ár eftir. Lífshorfurnar eru yfir-

leitt mjög góðar en mikilvægt er 

að læknir og sjúklingur taki sam-

eiginlega ákvörðun um val á með-

ferð. Oft fái hann þó sömu spurn-

inguna: Hvað myndir þú gera? 

Með hækkandi meðalaldri 

þjóðar innar fjölgar þeim körlum 

sem geta átt á hættu að greinast 

með sjúkdóma í blöðruhálskirtli en 

hafa ber í huga að þessir sjúkdóm-

ar eru ekki allir illkynja. Valur 

Þór segir að jafnvel sumar teg-

undir krabbameins í blöðruháls-

kirtli geti verið mjög hægfara og 

hafi þannig lítil áhrif á lífsgæðin. 

Á næstu árum er þess vænst að 

betri greiningarpróf komi á mark-

aðinn og að þannig verði auðveld-

ara að velja úr þá sem þurfa að 

fara í róttækar aðgerðir.

Mikilvægt að greina 

sjúkdóminn snemma

Valur segir lítið vitað um hvernig megi fyrirbyggja krabbamein í blöðruhálskirtli.

 MYND/KRISTINN KRISTINSSON

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64