11. mars föstudagur 7 og mér finnst til dæmis mjög gaman að farða vinkonur mínar á brúðkaups daginn þeirra, þær þurfa ekki að óttast að biðja mig um það,? segir Fríða María hlæj- andi. Frídögum sínum kýs Fríða María að eyða í faðmi fjölskyldunnar og segist hún vera dugleg að fara í göngur og á skíði með eiginmanni sínum. ?Ég er mjög heimakær og finnst æðislegt að vera með fjöl- skyldunni. Ég fer mjög lítið út á lífið og er alltof ódugleg við að sækja listasýningar og annað slíkt, sem er miður því mér finnst það mjög gaman.? HUGURINN LEITAR Í MYNDLISTINA Þegar Fríða María er spurð út í framtíðaráform sín segist hún opin fyrir öllu en að á meðan hún njóti sín í förðunarstarfinu muni hún halda því áfram. ?Fyrir þrettán árum sagðist ég ætla að hætta í bransanum þegar ég væri orðin 35 ára því þá væri maður líklega orðinn of gamall og dottin úr tísku. Nú er ég að verða 37 ára og mér finnst ég enn ágætlega fersk, ég er dugleg að fylgjast með tískunni og lesa mér til um allt það nýjasta og safna í möppur,? segir hún hlæjandi. ?Annars er ég ekki með nein sérstök framtíðar- áform, ég er alltaf opin fyrir öllum tilboðum. Ég vona að ég fari þó að fikta meira í myndlistinni því það er búið að liggja á mér lengi,? segir hún að lokum. g hyggst halda því áfram á meðan hún nýtur þess. RT Í RFIÐ ? ba k v ið tjö ld in Þarna er ég um borð í Herjólfi ásamt Líf, vinkonu minni, á leið til Eyja með félagsmiðstöðinni okkar. Ég er svona um fimmtán ára þegar þetta var. Þarna er ég ásamt ömmu minni og afa frá Færeyjum. Þarna er ég ásamt Spike Jonze við tökur á tónlistarmyndbandi fyrir Björk. Ég fékk það hlutverk að farðan þennan gervikött sem var upphaflega svartur. Eitt furðuleg- asta og vonlausasta verkefni sem ég hef tekið að mér. V E L JU M Í S L E N S K T