FÖSTUDAGUR 11. mars 2011 3 BANANAPITSA FYRIR 8 Pepperoni er vinsæl- asta pitsuáleggið í heimi en fiskiálegg eru áberandi lægst á flest- um vinsældalistum. Áleggsvalið er þó mis- jafnt eftir löndum og í Japan eru kolkrabbi, rækjur, krabbakjöt, smokkfiskur, majones, kartöflur, þari, aspas og maís meðal vin- sælla áleggstegunda. Fátt af því ratar á pitsur Íslendinga en hví ekki að prófa? Heimild: www. ezinearticles. com Deig: 2 tsk. þurrger 1 msk. sykur eða hunang ¾ bollar heitt vatn 1 ½ til 2 bollar hveiti 2 msk. hveitiklíð (má sleppa) 1 tsk. salt 2 msk. olía Fylling: 1 msk. smjör eða smjörlíki 3 bananar, skornir í sneiðar 2 msk. púðursykur eða hunang 1 tsk. kanill 3 msk. romm (má sleppa) 1. Leysið þurrgerið upp í heitu vatni með sykrinum. Setjið plastfilmu yfir og geymið á hlýjum stað í u.þ.b. 10 mínútur. 2. Hrærið saman hveiti og hveitiklíði í stórri skál. Gerið holu í miðjuna og bætið við uppleystu þurrgerinu, saltinu og olíunni. Hnoðið saman eða blandið með sleif. Setjið deigið á hveitistráð bretti og hnoðið í um 5 mínútur, bætið við meira hveiti ef þarf. Setjið deigið aftur í skálina, breiðið yfir og látið hefast í um 40 mínútur. 3. Hitið ofninn í 200°C. Fletjið út deigið og setjið það á bökunar- plötu og dreifið örlítilli olíu yfir. Raðið bananasneiðunum ofan á og og dreifið sykri og kanil yfir þær. Bakið í neðri hluta ofnsins í 25-30 mínútur. 4. Ef þið viljið flambera pitsuna hellið þið romminu í stóra skeið og haldið skeiðinni yfir kertaloga í u.þ.b. hálfa mínútu. Þegar það er orðið heitt kveikið þið í því með langri eldspýtu eða kertakveikjara. Hellið logandi romminu yfir pitsuna og berið fram. Ef þið viljið ekki flambera er gott að sprauta íssósu yfir pitsuna og bera hana fram með þeyttum rjóma eða vanilluís. Freistandi sælgæti í pitsuformi Pitsur eru ekki allar eins. Þær geta líka verið góðar sem eftirréttir eins og þessi ljúffenga bananapitsa sannar: Bananar og súkkulaði fara dæmalaust vel saman. Ekki eru allir sam- mála um hvernig rita eigi orðið pitsa. Í byrjun var erlenda heitið pizza notað en brátt var farið að íslenska það sem pítsa eða pitsa. Samkvæmt athugun á íslenskum vefsíðum hinn 17. janúar árið 2006 er erlenda heitið notað um 30 sinnum oftar á íslenskum vefsíðum en þau íslensku. Því má segja að ekki sé beinlínis rangt að rita pizza. wikipedia.org