Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Fréttablašiš

og  
S M Þ M F F L
. . 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 . .
PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Fréttablašiš

						11. mars 2011  FÖSTUDAGUR

folk@frettabladid.is

Við keyrðum upp í 

sveit og fengum að 

sjá aðra hlið af Íslandi sem er 

ótrúlega flott. Þetta var eins og 

að vera á annarri plánetu því 

umhverfið var svo allt öðruvísi 

en þar sem ég ólst upp.

ADAM ANDERSON

GÍTAR- OG HLJÓMBORÐSLEIKARI HURTS

Hljómsveitin Hurts spilar 

í annað sinn á Íslandi í 

Vodafone-höllinni 20. mars. 

Adam Anderson, gítar- og 

hljómborðsleikari Hurts, 

getur ekki beðið eftir því að 

koma aftur til Íslands. 

Enska hljómsveitin Hurts, með 

söngvarann Theo Hutchcraft og 

Adam Anderson í fararbroddi, 

spilar á öðrum tónleikum sínum 

á Íslandi á skömmum tíma þegar 

hún stígur á svið í Vodafone-

höllinni sunnudaginn 20. mars. 

Síðast spiluðu þeir félagar á Ice-

land Airwaves í haust við mjög 

góðar undirtektir og töldu margir 

tónleikana vera einn af hápunktum 

hátíðarinnar.

Hurts hefur verið á tónleika-

ferð um Evrópu að undanförnu og 

verða tónleikarnir í Reykjavík þeir 

síðustu á ferðalaginu. ?Við erum 

virkilega spenntir. Síðast þegar 

við komum til Íslands skemmtum 

við okkur mjög vel og ég man að 

tónleikarnir voru klikkaðir,? segir 

Anderson í viðtali við Frétta blaðið. 

?Þetta eru einir bestu tónleikar 

sem við höfum haldið og við getum 

ekki beðið eftir að koma aftur til 

Íslands. Við elskum þetta land.?

Hurts er að fylgja eftir sinni 

fyrstu plötu, Happiness, sem 

komst ofarlega á vinsældarlista 

víða um heim, þar á meðal í Þýska-

landi þar sem stærsti aðdáenda-

hópur hljómsveitarinnar er. ?Það 

er alltaf uppselt á tónleikana okkar 

í Þýskalandi og áhorfendurnir 

eru alltaf frábærir. Okkur finnst 

eins og við séum að koma heim 

þegar við komum hingað,? segir 

Anderson, sem var einmitt stadd-

ur í Þýskalandi þegar Fréttablaðið 

ræddi við hann. 

Eins og önnur pláneta

Hurts var á dögunum valin nýliði 

ársins af breska tónlistartímarit-

inu NME og spiluðu þeir félagar 

vinsælasta lagið sitt, Wonderful 

Life, á verðlaunahátíðinni fyrir 

framan stjörnur á borð við Dave 

Grohl og Jarvis Cocker. ?Það voru 

mikil forréttindi að vinna þessi 

verðlaun. Við ólumst upp við að 

lesa tímaritið og NME sýndi mikið 

hugrekki með því að velja okkur 

því við erum í rauninni poppsveit.?

Skömmu áður en Hurts spilaði 

á Airwaves í haust tók sveitin upp 

myndband hér á landi við lagið 

Stay. ?Við keyrðum upp í sveit og 

fengum að sjá aðra hlið af Íslandi 

sem er ótrúlega flott. Þetta var 

eins og að vera á annarri plán-

etu því umhverfið var svo allt 

öðruvísi en þar sem ég ólst upp,? 

segir Anderson. ?Svo nutum við 

þeirra forréttinda að fara í miðbæ 

Reykjavíkur á föstudagskvöldinu. 

Þá áttuðum við okkur á því hversu 

mikill partíbær Reykjavík er. 

Þannig að við upplifðum það besta 

úr báðum heimum. Þetta er bæði 

skrítinn og yndislegur staður.?

Fótbrotnaði í myndbandi

Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrir-

sæta hjá Eskimó og tannlækna-

nemi, lék á móti Theo Hutchcraft 

í myndbandinu við Stay og einnig í 

öðru myndbandi við jólalagið All I 

Want for Christmas Is New Year?s 

Day, sem var tekið upp í London. 

?Þegar við tókum myndbandið upp 

[við Stay] fótbrotnaði hún á töku-

staðnum og það var mikil drama-

tík í kringum það og ég man að 

hún var mjög hugrökk. Hún sat í 

bíl í þrjá tíma á leiðinni á sjúkra-

hús og þetta var allt mjög drama-

tískt,? greinir Anderson frá. ?Til 

að sýna að okkur þætti þetta leitt 

og sem þakklætisvott buðum við 

Meðlimir Hurts snúa aftur 

í partíbæinn Reykjavík

AFTUR TIL ÍSLANDS Adam Anderson (til hægri) og Theo Hutchcraft á rauða 

dreglinum fyrir skömmu. Þeir spila í Vodafone-höllinni 20. mars.  NORDICPHOTOS/GETTY

71 LEIKARINN Chuck Norris hélt upp á afmæli sitt í gær og er kappinn nú á áttræðisaldri.

henni í jólamyndbandið okkar,? 

segir hann og telur ágætar líkur 

á því að Hurts eigi eftir að vinna 

aftur með Önnu Þóru. 

Fram undan hjá Hurts er spila-

mennska í sumar á tónlistar-

hátíðum á borð við Isle of Wight, T 

in the Park og V Festival sem eru 

allar í Bretlandi. ?Það er gaman 

að spila fyrir áhorfendur á svona 

hátíðum. Við þurfum oft á tíðum að 

vinna þá yfir á okkar band því þeir 

eru ekki endilega komnir til að sjá 

okkur. Það er mikil áskorun og 

þetta er gott tækifæri til að fá inn 

nýja aðdáendur,? segir Anderson. 

Skoða næturlífið

Spurður hvort einhver ný lög 

hafi fæðst að undanförnu segir 

hann: ?Þegar við gerðum fyrstu 

plötuna vorum við tveir saman í 

svörtu herbergi og störðum hvor 

á annan í hálft ár þangað til eitt-

hvað gerðist loksins. Að vera í 

rútu á tónleikaferð er ekki rétta 

umhverfið fyrir lagasmíðar. Við 

ætlum að bíða til loka þessa árs 

og fara þá aftur í svarta herberg-

ið.? 

Anderson vonast til að dvelja 

á Íslandi eins lengi og kostur er 

vegna tónleikanna í Vodafone-

höllinni. ?Við viljum pottþétt 

skoða næturlífið í Reykjavík 

aftur og vonandi getum við farið 

tvisvar sinnum.? 

Hljómsveitirnar Retro Stefson 

og Dikta sjá um að hita mann-

skapinn upp og Adamson hvet-

ur Íslendinga til að láta sjá sig. 

?Þetta verður mjög sérstakt 

kvöld, ég get lofað því.? 

Enn eru til miðar á tónleikana 

og fást þeir á Midi.is.

 freyr@frettabladid.is

VILTU VINNA MIÐA?

SENDU SMS ESL BLA 

Á NÚMERIÐ 1900

ÞÚ GÆTIR UNNIÐ BÍÓMIÐA! 

Fullt af aukavinningum:

Tölvuleikir · DVD myndir 

og fleira!

VINNINGAR AFHENTIR Í ELKO LINDUM. 149 KR/SKEYTIÐ.  

MEÐ ÞVÍ AÐ TAKA ÞÁTT ERTU KOMINN Í SMS KLÚBB.   

9. HVER

VINNUR!

VILTU

VINNA 

MIÐA?

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64