11. mars 2011 FÖSTUDAGUR38 FÖSTUDAGSLAGIÐ ?Nobody?s Perfect með Jessie J. Töffaralegt lag með flottri konu. Það er góð tilfinning að enda góða vinnuviku á að hlusta á hana og sigla inn í ljúfa helgina.? Kolbrún Pálína Helgadóttir, ritstjóri á Nýju lífi. ?Vonandi verður aðganginum eytt sem fyrst,? segir fyrirsætan og framkvæmdastýran Ingibjörg Egils- dóttir. Netþrjótur hefur tekið nafn Ingi- bjargar ásamt mynd af henni og stofnað aðgang á Facebook. Þrjótur- inn hefur þegar bætt nokkrum stúlk- um á vinalistann, en á meðal þeirra eru keppendur í Miss Universe árið 2009, en þar keppti Ingibjörg fyrir Íslands hönd. Þá hefur þrjóturinn bætt Crystal Stewart á listann, en hún var valin ungfrú Bandaríkin árið 2008. Ingibjörg hefur ekki hugmynd um hver er að verki, en býst við að hann eða hún sé erlendis, enda enginn Íslendingur á vinalistanum. Hún er búin að tilkynna notandann með því að smella á þar til gerðan ?report?- hnapp, en það virðist vera eina úrræðið við netþrjótum sem þessum. Unnur Birna Vilhjálmsdóttir lenti í svipuðum aðstæðum árið 2009 þegar netþrjótur tók nafn hennar og ferðaðist um Facebook í henn- ar nafni. Hann var öllu virkari en þrjótur Ingibjargar og skrifaði meðal annars eftirminnilega stöðu- uppfærslu: ?Við munum vera ham- ingjusamur, ekki misrétti:D? ásamt því að bæta fjölmörgum Íslending- um við vinalistann. Aðgangi hans hefur verið eytt í dag. Ingibjörg segist ekki hafa sent netþrjótnum skilaboð og segist ekki ætla að berjast við hann. ?Ég ætti kannski að adda sjálfri mér og vingast aðeins við mig,? segir hún í léttum dúr. ?Þetta er eflaust eitthvað saklaust, en getur verið óþægilegt. Sérstaklega ef manneskjan fer að eiga í samskiptum við aðra.? - afb Netþrjótur þykist vera Ingibjörg Egils á Facebook Alma, Klara og Steinunn í stúlkna- hljómsveitinni The Charlies birtu nýlega brot úr nýju lagi á Facebook-síðu sinni. Stúlkurn- ar syngja lagið, sem heitir Game Over, á lestarstöð í New York og fjallar það um ónafngreindan fyrr- verandi kærasta Steinunnar. Í laginu, sem er samið af Ölmu og strákunum í upptökuteyminu StopWaitGo, er fjallað á hispurs- lausan hátt um háttsemi fyrrver- andi kærastans og hefst það á þeim orðum að hún trúi ekki að hann hafi verið besti vinur hennar. Þá hefst mikill reiðilestur um að hún hafi fengið nóg af hjalinu í honum og að hann hafi fengið hana til að hlæja og gráta, en framhjáhald og lygar hafi gert út af við sambandið. Lagið fer svo á flug og textinn byrjar að fjalla um hvernig hún trúir ekki að hún hafi sóað tíma sínum í kærastann og loks biður hún hann vinsamlegast um að hætta að hringja í sig og elta sig á röndum vegna þess að sambandið er búið, endanlega. Sem sagt, mikill girl power- sálmur frá stúlkunum í Charlies, sem búa nú í Los Angeles og vinna að breiðskífu sem verður gefin út af útgáfufyrirtækinu Hollywood Records. - afb Charlies syngja um sambandsslit Steinunnar ÁFRAM STELPUR The Charlies fluttu kraftmikið lag á lestarstöð í New York án undir- leiks og birtu myndbandið á netinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÓÞÆGILEGT REYNSLA Netþrjótur ferðast nú um Facebook, vinsælustu sam- skiptasíðu heims, í nafni Ingibjargar Egilsdóttur. ?Við erum býsna montin af þessu,? segir Halldór Guðmundsson, verk- efnisstjóri Sögueyjunnar, sem er annað heiti á heiðursaðild Íslands að bókasýningunni í Frankfurt í haust. Bandaríski netrisinn Amazon hefur stofnað útgáfufyrirtækið Amazon Crossing sem ætlar að gefa út tíu bækur eftir tíu íslenska höfunda í Bandaríkjunum á næsta ári. Bækurnar verða bæði prent- aðar og gefnar út í Kindle-rafbók- arformi. Í tilefni af bókasýning- unni í Frankfurt hefur Amazon Crossing einnig ákveðið að gerast samstarfs- og styrktaraðili Sögu- eyjunnar á sýningunni. Þar verð- ur útgáfuáætlun þeirra kynnt með myndarbrag. ?Þeir höfðu samband og óskuðu eftir því að vera með okkur í þessu. Þeir telja að það sé alltof lítið gefið út af þýddum bókum í Bandaríkj- unum,? segir Halldór. ?Miðað við hvað þeir selja í öðrum löndum af þýðingum eru þeir sannfærðir um að markaðurinn sé mikið stærri fyrir þýðingar í Bandaríkjunum. Forlagið þeirra byrjaði í nóvem- ber og þeir hafa ákveðið að gera verulega bragarbót hvað varðar íslenskar bókmenntir.? Amazon Crossing, sem einbeitir sér að þýddum bókum, mun sjálft sjá um að velja íslensku bækurnar og mun það gerast á næstu mán- uðum. ?Þetta er að þeirra frum- kvæði og í því felst heilmikið traust við okkar starf,? segir Hall- dór og telur þetta afar gott tæki- færi fyrir íslenska höfunda, enda er Amazon í raun stærsta bóksölu- fyrirtæki heims. Bækur höfunda á borð við Hall- dór Laxness, Ólaf Jóhann Ólafs- son, Arnald Indriðason og Yrsu Sigurðardóttur hafa verið gefn- ar út í Bandaríkjunum. En miðað við stærð Amazon-fyrirtækis- ins er ljóst að tækifæri íslenskra höfunda til að ná aukinni athygli vestanhafs er stærra en nokkru sinni fyrr. ?Mér finnast þetta mjög góðar fréttir því bandaríski markaðurinn er yfirleitt mjög tor- sóttur,? segir Halldór. ?Með örfá- um undantekningum hefur banda- ríski markaðurinn að mestu verið lokaður íslenskum bókmenntum og hér með opnast því frábært tæki- færi. Það að eitt forlag taki sig til og gefi út tíu bækur í einu eftir tíu mismunandi höfunda hefur aldrei gerst áður.? freyr@frettabladid.is HALLDÓR GUÐMUNDSSON: VIÐ ERUM BÝSNA MONTIN AF ÞESSU Tíu íslenskar bækur gefnar út hjá Amazon vestanhafs FRÁBÆRT TÆKIFÆRI Halldór Guðmundsson segir að um frábært tækifæri sé að ræða fyrir íslenskar bókmenntir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Tónlistarfólkið Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson munu leika á opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík í ár. Tónleikarnir verða 20. maí í vor í Hörpunni. Munu þau leika lög af nýútkomnum sólóplötum sínum en auk þess leiða saman hesta sína í nokkrum lögum. Skúli lék síðast á tón- leikum hér á landi árið 2009 og voru þeir mjög vel sóttir. Ólöf hitaði nýverið upp fyrir Nick Cave og hljóm- sveitina Grinder- man í Ástralíu. Tónlistarunnendur ættu því að fagna þessum bræðingi. - hdm FRÉTTIR AF FÓLKI í P e r l u n n i 9 . - 1 3 . m a r s Veitingahúsið Perlan · Sími: 562 0200 · Fax: 562 0207 Netfang: perlan@perlan.is · Vefur: www.perlan.is L o u i i a n ! LOUISIANA Lau 12.3. Kl. 19:00 Mið 16.3. Kl. 19:00 Fim 17.3. Kl. 19:00 Lau 26.3. Kl. 19:00 Fim 31.3. Kl. 19:00 Síð.sýn. Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Sun 13.3. Kl. 13:30 Sun 13.3. Kl. 15:00 Sun 20.3. Kl. 13:30 Sun 20.3. Kl. 15:00 Sun 27.3. Kl. 13:30 Sun 27.3. Kl. 15:00 Sindri silfurfiskur (Kúlan) Allir synir mínir (Stóra sviðið) Sun 13.3. Kl. 14:00 Sun 13.3. Kl. 17:00 Sun 20.3. Kl. 14:00 Sun 20.3. Kl. 17:00 Sun 27.3. Kl. 14:00 Sun 27.3. Kl. 17:00 Sun 3.4. Kl. 14:00 Sun 3.4. Kl. 17:00 Sun 10.4. Kl. 14:00 Sun 10.4. Kl. 17:00 Sun 17.4. Kl. 14:00 Sun 17.4. Kl. 17:00 Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið) Ö Fös 11.3. Kl. 20:00 3. sýn Fös 18.3. Kl. 20:00 4. sýn Lau 19.3. Kl. 20:00 5. sýn Fim 24.3. Kl. 20:00 6. sýn Fös 25.3. Kl. 20:00 7. sýn Fös 1.4. Kl. 20:00 8. sýn Lau 2.4. Kl. 20:00 Fim 14.4. Kl. 20:00 Lau 30.4. Kl. 20:00 Brák (Kúlan) Fös 18.3. Kl. 20:00 Fös 8.4. Kl. 20:00 Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Fös 11.3. Kl. 20:00 Sun 13.3. Kl. 20:00 Lau 19.3. Kl. 20:00 Sun 20.3. Kl. 20:00 Fim 24.3. Kl. 20:00 Aukas. Fös 25.3. Kl. 20:00 Sun 27.3. Kl. 20:00 Mið 30.3. Kl. 20:00 Lau 2.4. Kl. 20:00 Hedda Gabler (Kassinn) U U U Ö Ö Ö U Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö Ö U Ö U U Ö Ö Ö U U