Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 102

Fréttablaðið - 09.04.2011, Blaðsíða 102
9. apríl 2011 LAUGARDAGUR70 sport@frettabladid.is 54% stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta munu spila þrjá fyrstu leiki sína í undankeppni EM 2013 á Laugardals- vellinum. Fyrsti leikur liðsins verður á móti Búlgaríu á Laugardalsvellinum fimmtudaginn 19. maí. Norðmenn koma næst í heimsókn í Laugardalinn 17. september og Belgar spila síðan á Laugardalsvellinum fjórum dögum seinna. Páskaeggjaleikur BÍLALINDAR Opið virka da ga kl. 10.00–18.0 0 Laugardaga kl. 11.30–15.0 0 Við felum páskaegg á hverjum degi til páska í bíl eða ferðavagni og sá sem finnur má eiga! Þeir sem kaupa eða selja bíl hjá okkur fram að páskum fá einnig páskaegg. Allt sem þú þarft PÁLL ÓSKAR Í PERLUNNI Það er aðeins ein sneið af frábærri dagskrá á 10 ára afmælishátíð Fréttablaðsins 16. apríl í Perlunni. Fylgstu með! IE-deild kvenna: Keflavík-Njarðvík 61-51 Keflavík: Pálína Gunnlaugsdóttir 17/7 fráköst, Lisa Karcic 14/16 fráköst/4 varin skot, Ingibjörg Jakobsdóttir 14, Bryndís Guðmundsdóttir 7/5 fráköst/5 stoðsendingar, Marina Caran 7/4 fráköst, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 2/9 fráköst. Njarðvík : Julia Demirer 14/14 fráköst, Shayla Fields 12/7 fráköst, Dita Liepkalne 10/13 fráköst/5 stoðsendingar, Ólöf Helga Pálsdóttir 8, Auður R. Jónsdóttir 4/4 fráköst, Eyrún Líf Sigurðardóttir 3. N1-deild kvenna: Valur-Fram 24-20 (10-9) Mörk Vals (skot) : Ragnhildur Rósa Guðmunds- dóttir 5 (10), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 4 (10), Rebekka Rut Skúladóttir 3 (6), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3 (5), Anett Köbli 3/2 (7/4), Karólína B. Gunnarsdóttir 3 (3), Camilla Transel 1 (2), Kristín Guðmundsdóttir 1 (3), Íris Ásta Pétursdóttir 1 (4). Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 23 (24/4, 49%). Hraðaupphlaupsmörk: 6 (Rebekka 2, Ragnhildur, Anna Úrsúla, Karólína, Camilla) Fiskuð víti: 5 (Íris, Anna Úrsúla 2, Ragnhildur) Utan vallar: 12 mínútur. Mörk Fram (skot): Karen Knútsdóttir 8/2 (15/3), Stella Sigurðardóttir 6/3 (14/4), Guðrún Þóra Hálfdánardóttir 2 (4), Ásta Birna Gunnars- dóttir 1 (4), Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1(2), Pavla Nevarilova 1(2, Birna Berg Haraldsdóttir 1 (2). Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 16/2 (24/2, 40%), Hraðaupphlaupsmörk: 1 (Ásta Birna ) Fiskuð víti: 6 (Pavla 3, Karen 2, Ásta Birna) Utan vallar: 12 mínútur Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Val. Næsti leikur liðanna fer fram í Safamýri á sunnudag klukkan 16.00. Sænski körfuboltinn: Sundsvall-Södertalje 78-63 Jakob Örn Sigurðarson skoraði 8 stig, gaf 8 stoðsendingar og tók 4 fráköst fyrir Sundsvall. Hlynur Bæringsson skoraði 6 stig, tók 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar fyrir sama lið. Staðan í undanúrslitaeinvígi liðanna er því 1-0 fyrir Sundsvall. ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Þrjú ár þykir langur tími í bið eftir þeim stóra í mekka kvennakörfunnar í Keflavík en Keflavíkurkonur eru nú Íslands- meistarar á ný eftir 61-51 sigur á Njarðvík í Toyota-höllinni í gær í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna. Þetta er fjórtándi Íslandsmeist- aratitill kvennaliðs Keflavíkur þrátt fyrir að það séu ekki nema 23 ár síðan að sá fyrsti kom í hús árið 1988. Keflavík vann einvígið 3-0 og alls 6 af 7 leikjum sínum í úrslita- keppninni í ár. Keflavíkurkonur eru þar með fyrsta liðið í fjögur ár sem vinnur tvöfalt í kvennabolt- anum, það er, tekur báða stóru titl- ana, Íslandsmótið og bikarinn, en Haukar höfðu afrekað það síðast árið 2007. Keflavík komst í 17-2 í fyrsta leikhluta og var alltaf skrefinu á undan þrátt fyrir að Njarðvíkur- liðið hafi nokkrum sinnum náð að minnka muninn niður í tvö stig. Njarðvíkurkonum tókst aldrei að komast yfir og Keflavíkurliðið fagnaði „Tilfinningin er alltaf jafngóð,“ sagði Pálína Gunnlaugsdóttir eftir að Íslandsmeistaratitilinn var í höfn. „Þetta var besti leikurinn okkar í úrslitaeinvíginu og í kvöld náðum við loksins að sýna okkar besta andlit. Flestum stelpunum í okkar liði dauðlangaði í sumarfrí í kvöld,“ sagði Pálína. „Njarðvík er með hörkulið og þær hefðu alveg eins getað unnið okkur. Við vorum heppnar í fyrsta leiknum, áttum svo fínan annan leikhluta í leik númer tvö og svo vorum við bara með þetta í kvöld. Þetta leit út fyrir að vera burst í byrjun en við vissum samt alveg að Njarðvík myndi koma til baka,“ sagði Pálína sem átti frábæran leik, fór fyrir Keflavíkurliðinu á báðum endum vallarins og endaði með 17 stig og 7 fráköst. „Ég var ákveðin í kvöld því mig langaði í sumarfrí. Ef við hefðum tapað í kvöld þá hefði ég þurft að fara á æfingu í fyrramálið,“ sagði Pálína sem var að verða Íslands- meistari í fjórða sinn á síðustu sex árum. „Þetta er bara æðislegt og tilfinning sem er ekki hægt að lýsa,“ sagði Pálína. Auk Pálínu átti Ingibjörg Jak- obsdóttir góðan leik en hún kom til Keflavíkur fyrir tímabilið og var að verða Íslandsmeistari í fyrsta sinn á ferlinum. Annars var það breiddin sem landaði þessum sigri umfram allt annað og þegar úrslitaeinvígið er gert upp verður erfitt að taka einn leikmann Kefla- víkurliðsins út úr þegar velja á besta leikmann úrslitakeppninnar. Marina Carin var frábær í fyrsta leik, Bryndís Guðmundsdóttir lék frábærlega í öðrum leik og svo átti Pálína stjörnuleik í gær. Njarðvíkurliðið steig risaskref með því að komast í úrslitin í fyrsta sinn en eftir grátlegt tap í fyrsta leiknum var alltaf á bratt- ann að sækja. Öskubusku-ævintýr- ið endaði því á sópi. Eftir öll silfurverðlaunin á und- anförnum árum tókst Jóni Hall- dóri Eðvaldssyni og stelpunum hans loksins að landa gullinu og uppskera fyrstu tvennuna í Kefla- vík síðan tímabilið 2003-2004. ooj@frettabladid.is TVÖFALT HJÁ KEFLAVÍK Keflavík er Íslandsmeistari í kvennakörfunni í fjórtánda sinn á 23 árum eftir sigur á Njarðvík í þriðja úrslitaleiknum í Keflavík í gær. Keflavík vann úrslita- einvígið 3-0, sex af sjö leikjum úrslitakeppninnar og báða stóru titla tímabilsins. BIKARINN Á LOFT Birna Valgarðsdóttir tók á móti bikarnum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SIGURKOSSINN Keflavíkurstelpur taka hér á móti Íslandsbikarnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍE. HANDBOLTI Valsstúlkur unnu virki- lega mikilvægan sigur, 24-20, í gær gegn Fram í fyrsta leik lið- anna um Íslandsmeistaratitilinn. Leikurinn var jafn stóran part af leiktímanum en Valur sleit sig frá gestunum undir lokin og vann flottan sigur. Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, var hreint út sagt stórkostleg en hún varði 23 skot og lagði grunn- inn af sigri Vals í gær. „Það er gríðarlega mikilvægt að byrja einvígið vel,“ sagði Stef- án Arnarson, þjálfari Vals, eftir sigurinn í gær. „Fyrsti leikurinn er alltaf mjög erfiður og mikil barátta einkennir liðin. Mistökin voru mörg í kvöld og ég bjóst svo sem alveg við því. Við klárum leikinn í kvöld á frá- bærri vörn og stórkostlegri mark- vörslu. Ég reikna með háu spennu- stigi allt einvígið og við verðum bara að læra að notfæra okkur það,“ sagði Stefán. „Það er alltaf hundfúlt að tapa svona leik,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir tapið gegn Val í gær. „Ég sé samt margt jákvætt eftir þennan leik sem liðið á að geta byggt á. Við vorum að spila fínan varnarleik og börðumst allan tímann, en það sem verður okkur að falli hér í kvöld eru 18 tapaðir boltar eftir tæknifeila hjá mínum leikmönnum. Í raun og veru spil- um við einnig ágætan sóknarleik og náum að skapa okkur fullt af færum sem við hefðum mátt nýta betur. Við þurfum bara að skoða alla þessa hluti og jafna síðan ein- vígið í næsta leik á okkar heima- velli,“ sagði Einar. - sáp Valur hóf úrslitaeinvígið gegn Fram vel er liðin mættust í Vodafonehöllinni í gær: Valsstúlkur unnu fyrstu orrustuna BARÁTTA Íris Ásta Pétursdóttir stöðvar hér Karen Knútsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.