Íslendingur - 29.09.1961, Blaðsíða 1
r
N 4SGEIR SIGURÐSSON
HAUSTNÓTT I SVARTÁRDAL
Réttað í Stafnsrétt í samfleytt 150 ár
GÖNGUR OG RÉTTIR voru
töfraorð a. m. k. í sveitunum, allt
fram á okkar daga, og má þó
segja, að þau heilli hugi margra
enn í dag, enda eru réttirnar viða
um land mikið sóttar, ekki ein-
ungis af þeim, sem fé eiga, held-
ur og forvitnu ferðafólki, sem
þessi töfraorð hafa dregið til sín.
Að sjálfsögðu eru hinar ýmsu
réttir mismunandi stórar, og
mismunandi frægar. Eina af
þessum stóru réttum skulum við
nú heimsækja, og ef kostur er
gefa þeim, er eigi hafa komið þar,
nokkra hugmynd um réttalífið.
Er við lítum af Vatnsskarði
vestanverðu, blasir Langidalur
við sjónum okkar, og virðist svo
sem hann endi við Bólstaðarhlíð.
Svo er að vísu, a. m. k. landfræði
lega. En framan við Bólstaðarhlíð
skerst þó niður þröngur dalur.
Virðist hann í fljótu bragði lítt
byggilegur, en ef að er gáð, kem-
ur í ljós, að dalurinn er grösugur
og mjög vel húsaður. Dalurinn
heitir Svartárdalur, og fremst í
honum er ein þekktasta rétt á
stóru svæði, eða hver kannast
ekki við Stafnsrétt í Svartárdal?
Komið að Fossum.
Við komum að réttinni á
fimmta tímanum. í>á hefur stóð-
ið verið réttað, og að mestu rek-
ið í heimahaga. Allmargt er hér
manna, bæði gangnamenn og
einnig nokkrir forvitnir flæking-
ar eins og við. Réttin stendur á
sléttu nesi, við bugðu á Svartá.
Réttin er gömul torfrétt, sem þó
hefur verið stækkuð í seinni tíð
með vírnetum. Hið mikla fjársafn
er hér í hlíðinni framan við ána,
og er okkur sagt, að það verði
ekki rekið til réttar fyrr en seint
að kvcldi. Við reisum því tjöld
okkar skammt sunnan réttarinn-
ar, en höldum að því búnu að
fremsta hænum að vestanverðu,
Fossinn. Þar hafði okkur verið
sagt að væri fagurt mjög, sér-
kennilegt landslag, og höfðings-
skapur hir.n mesti. Er við kom-
um yfir lágan háls, er aðskilur
Fossa frá aðaldalnum, blasir við
okkur bærinn Fossar. Raunar eru
Fossar ekki í Svartárdal, því að
hér heitir dalurinn Fossadalur
eða Fossárdalur, eins og sumir
kalla hann. Hús eru hér reisuleg,
og í gilir.u ofan við bæinn er raf-
stöð fyrir þetta heimili, og hefur
svo verið um árabil. Er við kom-
um í hlaðið, er hér allmargt
manna samankomið. Aðkomu-
menn að skoða staðinn. Og hér er
vissulega ýmislegt að sjá. Vestan
við bæinn er mjög bratt gil, og
eru í því fossar, er bærinn
dregur nafn af. Einnig er hér
undirlendi meira en á öðrum
bæjum, en fjallasýn er tignarleg
og fögur. Við staðinn er eitthvað
æfintýralegt, og þó stórbrotið.
Fjallkóngar í 70 ár.
Á Fossum býr Guðmundur
Guðmundsson og tók hér við búi
af föður sínum. Einnig er Sigurð-
ur sonur Guðmundar hér. Svo
vill til, að þessir menn munu
fróðastir um göngur hér, því að
um 70 ár hafa þeir, mann fram
af manni, verið gangnaforingjar
á Eyvindarstaðaheiði, en það er
svæðið milli Blöndu og Jökulsár
vestri, allt inn að Hofsjökli. „Þið
hittið vel á,“ segir Guðmundur,
er hann hefur boðið okkur til
kaffidrykkju, sem öðrum gestum,
því að mér skilzt, að hér sé öllum
boðið kaffi. „Þetta er nefnilega
hundrað og fimmtugasta haustið,
sem rekið er í Stafnsrétt. Upp-
haflega var hún byggð árið 1812
á núverandi stað, áður hafði
rétt staðið annarstaðar, sem tók
við fé af sömu afrétt. Oft hefur
verið fjölmenni við Stafnsrétt,
enda féð margt er þar kemur.
Safnið af Eyvindarstaðaheiði
mun stundum hafa verið allt að
12 þús. fjár, en eftir árferði
stundum minna og stundum
meira, og hafa því margir fjár-
eigendur átt hingað erindi, bæði
héðan úr sýslu, og einnig úr
Skagafirði, og er svo enn.“ Enn-
fremur fræðir Guðmundur okkur
á því, að Fossar hafi ekki alltaf
verið fremsti bær í Fossadal.
(Framhald á bls. 5)
EIGENDUR síldai'verksmiðja
sveitarfélaga, hlutafélaga og ein-
staklinga á Norður- og Austur-
landi hafa stofnað með sér félags
skap, er gæta skal hagsmuna
þeirra, samræma afurðasölu og
markaðaöflun, koma upp sam-
eiginlegum innkaupum á rekstr-
arvörum og sameiginlegri tækni-
aðstoð o. fl. Aðilar að félaginu,
sem skammstafað er SAN (Síld-
arverksmiðjusamtök Austur- og
Norðurlands) eru: sildarverk-
skipstjóri látinn
ÞAU SORGLEGU tíðindi bárust
frá Noregsför Heklu á dögunum,
að skipstjóri hennar, Ásgeir Sig-
urðsson, hefði látizt skyndilega sl.
föstudag. Var hann staddur í
veizlu í Stafangri, er hann veikt-
ist snögglega og var liðið lík eftir
skamma stund.
Ásgeir hefur verið skipstjóri á
Esju og síðan Heklu í 32 ár, og
ætlaði hann að hætta eftir þessa
Hekluferð, enda orðinn 67 ára
gamall.
Ásgeir sat um skeið á Alþingi
sem varaþingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. Naut hann
mikils álits.
Hættuleg skotæfing
SEINT í s.l. viku var lögreglunni
hér gert aðvart um að maður
héldi uppi skothríð í Strandgöt-
unni. Er lögreglumenn koomu á
vettvang kom í ljós að hér var
um að r æða ungan mann, er var
að skjóta út um glugga. Hafði
hann þegar hæft inn um glugga
nærliggjandi húss, einnig núm-
ersspjald á bifreið, og sömuleiðis
voru nokkur göt á hjólbarða við-
komandi bifreiðar, og er álitið að
þau séu einnig afleiðingar skot-
hríðarinnar. Atferli þetta er mjög
alvarlegt og stór mildi að ekki
hlautzt slys af.
smiðjurnar á Hjalteyri, Krossa-
nesi, Vopnafirði, Seyðisfirði, Nes
kaupstað, Eskifirði og Fáskrúðs-
firði, er allar áttu fulltrúa á stofn
fundi samtakanna. Þá er búizt
við, að RAUÐKA á Siglufirði
verði í samtökunum, en vegna
veikinda gat framkvæmdastjóri
hennar ekki mætt á stofnfundin-
um.
Stjórn SAN skipa: Vésteinn
Guðmundsson, form., Jóhannes
Stefánsson og Sigurjón Þorbergs
Safnið við Stafnsrétt 21. september síðastliðinn. (Ljósm.: St. E. Sig.)
SAN - nýr félagsskapur