Íslendingur


Íslendingur - 29.03.1978, Blaðsíða 6

Íslendingur - 29.03.1978, Blaðsíða 6
íþróttir ... íþróttir ... íþróttir ... íþróttir ... íþróttir ... íþróttir ... Skíðalandsmóíið var haldið í Reykjavík um páskana Ólafsfirðingar sigursælastir - Fengu 9 Íslandsmeisíaratitla, ísfirðingar 3, Reykvíkingar 3 og Akureyringar fengu 2 Skíðalandsmót íslands fór fram í Reykjavík yfir pásk- ana, en keppnin fór fram í Bláfjöllum, Skálafelli og Hamragili. 88 keppendur mættu til leiks, víðsvegar að af landinu. Ólafsfirð- ingar voru í algerum sér- flokki í norrænu greinun- um, þ.e. göngu og stökki, en þar hirtu þeir alla fs- landsmeistaratitlana, 9 að tölu. í svigi og stórsvigi sigraði Sigurður Jónsson, ísafirði, í karlaflokki og Steinunn Sæmundsdóttir, Reykjavík, í kvennaflokki. Akureyringar reyndust hafa mestu breiddina í alpagreinum, en þeir sigr- uðu í flokkasvigi, bæði í karla og kvennaflokki. Úr- slit mótsins í einstökum greinum urðu sem hér segir: 15 km ganga, 20 ára og eldri Haukur Sigurðsson Ó 63.09 mín. Halldór Matthíasson R 63.15 Ingólfur Jónsson R 66.19 10 km ganga 17-19 ára GuðmundurGurðarsson Ó 41.35 Jón Björnsson í 42.04 mín. Jón Konráðsson Ó 42.31 mín. Gestur: Pál Mikkelplass, Noregi, 38.29 inín. Stökk, 20 ára og eldri Björn Þór Ólafsson Ó 262.9 stig Þorsteinn Þorvaldsson Ó 243.6 stig Sveinn Stefánsson Ó 198.1 stig Stökk, 17-19 ára Guðmundur Garðarsson Ó 193.4 Kristinn Hrafnsson Ó 181.0 stig Jóhann Sigurðsson Ó 178.3 stig Norræn tvíkeppni, 20 ára og eldri Björn Þór Ólafsson Ó 555.9 stig Þorsteinn Þorvaldsson Ó 462.3 Örn Jónsson Ó 375.0 stig Norræn tvíkeppni, 17-19 ára Guðmundur Garðarsson Ó 463.9 Kristinn Hrafnsson Ó 378.5 stig Valur Hilmarsson Ó 331.5 stig Stórsvig kvenna Steinunn Sæmundsdóttir R 130.88 Kristín Úlfsdóttir í 137.56 sek. Margrét Baldvinsdóttir A 138.26 Sigursveit Akureyringa í flokkasvigi; Haukur, Karl, Tómas og Árni. Sveit Ólafsfjarðar 106.06 mín. Sveit ísafjarðar 107.47 mín. A-sveit Reykjavíkur 110.17 mín. Svig karla Sigurður Jónsson í 69.75 sek. Árni Óðinsson A 73.59 sek. Hafþór Júlíusson í 74.19 Alpatvíkeppni karla Sigurður Jónsson í Haukur Jóhannsson A Hafþór Júlíusson í Svig kvenna Steinunn Sæmundsdóttir R 87.52 Ásdís Alfreðsdóttir R 92.20 sek. Ása H rönn Sæmundsdóttir R 92.86 Alpatvíkeppni kvenna Steinunn Sæmundsdóttir R Ása Hrönn Sæmundsdóttir R Margrét Baldvinsdóttir A Flokkasvig karla Sveit Akureyrar 335.63 sek. Hana skipuðu: Árni Óðinsson, Tómas Leifsson, Haukur Jóhanns- son og Karl Frímannsson. Sveit Reykjavíkur 369.71 sek. Aðrar sveitir úr leik. Flokkasvig kvenna Sveit Akureyrar 341.18 sek. Hana skipuðu: Nanna Le ilsdóttir, Guðrún Leifsdóttir og Margrét Baldvinsdóttir. Aðrar sveitir úr leik. 30 km ganga, 20 ára og eldri Haukur Sigurðsson Ó 96.28 mín. Björn Þór Ólafsson hefur verið ósigrandi í stökkinu undanfarin ár. Stórsvig karla Sigurður Jónsson í 120.97 sek. Björn Olgeirsson H 122.12 sek. Haukur Jóhannsson A 122.59 sek. Boðganga, 3x10 km. Sveit Ólafsfjarðar Hana skipuðu: Jón Konráðsson, Guðmundur Garðarsson og Hauk- ur Sigurðsson. Halldór Matthíasson R 99.25 mín. Þorsteinn Jóhannsson í 104.41 mín 15 kni ganga, 17-19 ára Jón Konráðsson Ó 47.26 mín. Jón Björnsson í 49.24 mín. Guðmundur Garðarsson Ó 52.17 Gestur Pál Mikkelplass, Noregi, 47.04 mín. í tengslum við Skíðalandsmótið var haldið Skíðaþing á föstudaginn langa. Þar var ákveðið að næsta Skíðamót íslands skuli haldið á ísafirði og Unglimgameistaramót íslands á Siglufirði. Þá lét Hákon Ólafsson af störfum sem formaður Skíðasambands fslamds og við tók Sæmundur Óskarsson úr Reykja- vík. Einnig má geta þess, að brunmót það sem Akureyringar hafa gengist fyrir í Hlíðarfjalli árlega nú undan- farin ár var tekið inn sem liður i Bikarkeppni SKÍ, og spunnust miklar umræður á þinginu hvort ætti að taka brun aftur upp sem keppnisgrein á Skíðamóti Islands. Formaður mótsstjórnar var Hall dór Sigfússon og starfsmenn við mótið voru unt 150 úr öllum skíða- deildum íþróttafélaganna í Reykja- vík. Munið hið stórglæsilega Lions- bingó sem hefst í Sjálfstæðishúsinu sunnudaginn 2. apríl kl. 20.30. Forsala aðgöngumiða frá kl. 15. Stórglæsiiegir vinningar: Utanlandsferðir, heimilistæki og húsgögn. Allur ágóði af bingóinu rennur ti/ vangefinna. LIOIMSKLÚBBUR AKUREYRAR Nýkomið: Gitarar margar gerðir Sambyggð útvarps og kasettutæki Sjúkrahótel RauAa krotiini •ru á Akurayri og i Raykjavik. RAUÐIKROSS ISLANDS Þórsarar æfðu erlendis - en KA- menn heima Óðum líður að því, að knatt- spyrnumennirnir okkkr taki fram skóna og knattspyrnu- vertíðin hefjist. Félögin leggja nú allt kapp á að und- irbúa sig sem best fyrir átök- in í sumar og páskahelgin var notuð vel til æfinga. 2. deildarlið Þórs bráund- ir sig betri fætinum og hélt til Englands í æfinga og keppn- isferð. Þar ætluðu Þórsarar að hitta nýráðinn þjálfara sinn, Alan Rodgers, en hann kemur síðan heim með lið- inu. Þegar síðast fréttist höfðu Þórsarar leikið tvo æfingaleiki, unnið annan, en tapað hinum. Gárungarnir töldu það ekki með öllu hættulaust fyr- ir Þórsarana, að fara út fyrir landssteinana. Þarna væru innkaupastjórar stóru félag- anna í ensku knattspyrnunni á hverku strái, og ekki að vita nema þeir yrðu búnir að kaupa alla bestu menn liðs- ins, áður en þeir kæmust heim. Allt slíkt var þó sagt í gamni og góðri meiningu. KA-menn tóku hins vegar enga áhættu og æfðu þeir hér heima undir stjórn Jóhann- esar Atlasonar, sem hélt strákunum við efnið. Voru strangar æfingar yfir pásk- ana og léku a og b lið félags- ins einn leik. Þá er áform- aður æfingaleikur milli KA og Þórs mjög bráðlega, - þ.e.a.s. ef Þórsararnir koma heim með fullskipað lið. > IMI , / Jóhannes Atlason, þjálfari KA. auglýsinga- síminn er 2*500 6 - ISLENDINGUR

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.