Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Faxi

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Faxi

						F   A   X   I

1 Reykjavík hefir sérstakri

nefnd manna verið falið að hafa

eftirlit með kvikmyndasýning-

um fyrir börn, og hefir nefnd

þessi aðgang að frumsýningum

myndanna, og telji hún þær á

einhvern hátt óheppilegar fyrir

börnin, þá er þeim bannaður að-

gangur að sýningum þeirra.

Mér er ekki kunnugt um, að

sliku eftirliti hafi verið komið

á hér í Keflavík, eða a. m. k.

fér enginn þess merki. Þess væri

þó sannarlega fuJl þörf, því hér

sækja börn á öllum, aldri kvik-

rnyndasýningar engu síður en

hinir fullorðnu, og það jafnt,

hvort á boðstólum eru myndir

við þeirra hæfi, nauða ómerki-

legar og oft siðlitlar skopmynd-

ir, eða átakanlegustu harm-

leikir.

öllu hugsandi fólki má þetta

vera eitt hið mesta áhyggjuefni,

sem fyrr en seinna þarf að ráða

á bót. Það er ekki einungis aó

þessar kvikmyndaferðir barn-

anna trufli fullorðið fólk, sem

vill og þarf að hafa gott næði

til þess að njóta góðrar myndar,

heldur er hitt þó öllu alvarlegra,

að börnin læra einmitt, af mörg-

um þessara mynda, ýmislegt

Ijótt og ósiðlegt, því jafnvel þó

myndin sé í eðli sínu fögur, og

geti haft göfgandi áhrif á full-

tíða, þroskað f ólk, þá verkar hún

oft gagnstætt á sálir barnanna,

sem ekki skilja þráð sögunnar,

en njóta þess eins sem augað sér.

Auk þessa, sem að framan er

talið, þá standa kvikmyndasýn-

ingar venjulega langt fram. á

eðlilegan svefntíma barna, sem

er mjög skaðlegt heilbrigði

þeirra, líkamlegum og andleg-

um þroska.

Ég þykist vita, að mörgum.

foreldrum sé ljós hættan, sem

börnum þeirra getur stafað af

þessum kvikmyndaferðum. og

cðru kvöldslóri, en hér í Kefla-

vík er þetta orðið það venjulegt,

að börnunum finnst sjálfum, að

þau hafi rétt til þess að sækja

kvikmyndahúsið til jafns við þá

íullorðnu, og myndu í mörgum

tiifellum fyllast gremju og kala,

ef einstaka foreldrar tækju upp

þann sið, að halda þeim heima

á kvöldin. Enda geta þau litið

GIUE1D1LEG 30L!

»Yður er í dag frelsari fæddur«.

Lúk. 2, 1.—20.

Á þessum dimmu og dapur-

legu tímum er haldin fagnaðar-

hátíð um gjörvallan kristinn

heim. Og fagnaðarefnið er hið

sama og verið hefur í mörg

hundruð ár: fæðing guðssonar-

ins, Jesú Krists, frelsara vors

og drottins. Frásögnin um þenn-

án atburð, eins og hún er skráð

í Lúkasarguðspjalli, svo látlaus

og innileg, snertir enn í dag

hjörtu mannanna, jafnt þeirra

smæstu sem stærstu. Hún vekur

gleði í hjarta barnsins á sak-

lausum bernskudögum. Þess-

vegna eru jólin barnanna hátíð.

En enginn getur orðið svogamall

að barnsins viðkvæmni og undr-

un frammi fyrir leyndardómum

lífsins hverfi þaðan með öllu.

Því er jólaboðskapurinn kær-

komið fagnaðarerindi mörgum

öldnum og þreyttum. Og aðalat-

riðið er æfinlega þetta: Yður

er í dag frelsari fæddur. Ef

það gieymist, er engin sönn jóla-

gleði til, aðeins stundarfagnað-

ur, ,sem bliknar og fölnar áður

en varir.

Jólin flytja mikið af Ijósi,

yl og birtu yfir lífið. Fá-

tækleg heimili verða þá bjart^

ari og hlýrri en aðra daga. Eng-

in höll er heldur svo björt og

fögur, að h,ún verði ekki enn

bjartari um jólin, og úti í næt-

urkyrrðinni, undir eilíf ri víðáttu

himinsins, er eitthvað óskiljan-

legt og undursamlegt á heilagri

jólanótt. Þetta er allt gott og

f agurt. En mest er um það vert,

að gleðibcðskapur jólanna snerti

hjörtu vor og veki þar trú og

tilbeiðslu, fögnuð og frið, er

ekkert megnar frá oss að taka.

Mannkynið allt stynur í dag

undir þungum og sárum byrð-

um síns eigin ófullkomleika og

veikleika. Þú og ég erum þar á

nieðal. Eða hver þekkir ekki á-

hyggjurnár og kvíðann, óttann

og sorgina, eymd og bágindi,

freistingar og sálarstríð? En nú

vitum við, að við eigum frelsara,

sem bæði vill og getur létt af

oss þessari þungu og sáru byrði.

Hann getur skapað í oss nýtt

hjarta, nýtt hugarfar með hug-

rekki, von og djörfung hins

kristna manns, sem frjálsbor-

inn Hfir lífi sínu og háir sína

baráttu með hjálp og styrk hins

him,neska föður.

Minnstu þess um jólin,

þegar þér virðist svo margt

vera lítið og lágt, og dimm-

ir skuggar hvíla yfir lífs-

vegum þjóðanna og lífið vera

átakanlega ömurlegt, að þér er

enn í dag fluttur fagnaðarboð-

skapurinn um f relsara heimsins,

er fæddist á heilagri jólanótt.

Og fyrir þeim fagnaðarboðskap

eiga allir skuggar að hverfa.

en í sál þinni skal ljóma heið-

ríkja hinnar æðstu vonar og

dýrlegustu gleði.

Guð gefi þér gleðileg jól!

Emkur Brynjólfsson.

svo á, að þau séu beitt órétti,

ef leikfélögum þeirra helzt uppi

óátalið að stunda kvikmynda-

húsið fram, á nótt.

Þetta vandamál verður aðeins

lej'st með samtöktim almennings

í byggðarlaginu, og fyrsta skref-

ið er að skipuð verði nefnd dóm-

bærra, áhugasamra manna, til

þess að hafa hér eftirlit með

kvikmyndasýningum, fyrir börn.

fig fullyrði, að það væri spor

í áttina til þess að bæta upp-

eldi æskunnar hér í Keflavík.

H'allgrímur Th. Björnsson.

Kaupid FAXA

fRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAB

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8