Faxi - 01.05.1965, Blaðsíða 8
Stjórn Iðnnemafclags Súðurnesja: Neðri röð, talið frá vinstri: Vilhjálmur Arngrímsson,
vélvirkjanemi; Sigþór B. Karlsson form., húsasmíðan. Efri röð, frá vinstri: Óskar H. Ingólfs-
son, vélvirkjancmi; Hannes Einarsson, húsasmíðanemi; Kristinn Karlsson, húsasmíðanemi.
Nýtt iðnnemafélag stofnað
Hér á suðurnesjum mun fyrir nokkru hafa
starfað iðnnemafélag, sem nú er ekki lengur
til. En þann 21. marz síðastliðinn gengust
nokkrir ungir og áhugasamir iðnnemar fyrir
stofnun nýs iðnnemafélags, sem þeir gáfu
nafnið Iðnnemafélag Suðurnesja. Stofnfélagar
voru 16. Tilgangur þessa nýja félags er sá, að
efla meðal iðnnema samheldni og félags-
lyndi.
Félagið vill leitast við að tryggja iðnnemum
sambærileg kjör og sama rétt og aðrir þjóð-
félagsþegnar hafa. Það hyggst einnig stuðla
að auki menntun félagsmanna sinna. Fé-
lagið er aðili að Iðnnemasambandi Islands.
Síðan félagið var stofnað hafa margir iðn-
nemar bætzt í hópinn og mun það nú þegar
telja um 40 félagsmenn.
Stjórn félagsins skipa: Sigþór Borgar Karls-
son formaður, Hannes Einarsson ritari, Krist-
inn Karlsson gjaldkeri, Vilhjálmur Arngríms-
son varaformaður og meðstjórnandi Oskar
H. Ingólfsson. í varastjórn eru: Magnús Ara-
son og Ólafur Sigurvinsson. Stjórnin er ein-
huga um að efla þetta félag sitt og skorar á
alla iðnnema á félagssvæðinu að ganga nú
þegar í félagið og taka þátt í störfum þess.
Kcflavík vann Breiðablik.
Islandsmeistarar Keflavíkur í knattspyrnu
léku sinn fyrsta opinbera kappleik á laugar-
daginn 1. maí, en þá mættu þeir Breiðabliki
úr Kópavogi á malarvellinum í Keflavík. Var
þessi kappleikur í „litlu bikarkeppninni,“ sem
Breiðablik er nú orðinn aðili að.
Keflvíkingar sigruðu með yfirburðum, 7
mörkum gegn 1. Miðherjinn Jón Jóhannsson
setti 5 af mörkum Keflvíkinga.
Má þetta teljast vel af stað farið.
Tónlistarskóla Keflavíkur
var slitið með nemendatónleikum í Bíó-
höllinni, þriðjudaginn 27. apríl s. 1. A tón-
leikum þessum komu fram 8 einleikarar á
píanó, fiðlu og blásturshljóðfæri, ásamt ein-
söngvara úr söngdeild skólans.
Hópur yngstu nemenda úr undirbúnings-
deild léku á blokkflautur og sungu undir
stjórn kennara síns, Fjölnis Stefánssonar. Þá
var þar einnig flutt verkið Blásarafjölskyldan
eftir Herbert Hriberschek Agústson undir
stjórn höfundar. A tónleikunum kom einnig
fram blandaður kór úr söngdeildinni undir
sjórn kennarans, Vinset Demitz. Húsfyllir var
á tónleikunum. I tónlistarskólanum voru að
þessu sinni 111 nemendur sem skiptust í hinar
ýmsu greinar tónlistarinnar og mun skólinn
aldrei hafa verið fjölmennari, síðan hann
tók til starfa. Við setningu þessara nemenda-
tónleika ávarpaði Helgi S. Jensson nemendur
og gesti fyrir hönd tónlistarfélagsins og skóla-
stjórinn, Ragnar Björnsson skýrði frá störf-
um og árangri skólastarfsins og afhenti verð-
laun skólans fyrir hæstu einkunn til Aðal-
heiðar Ingvadóttur. Rótarýklúbbur Keflavíkur
veitti verðlaun fyrir hæstu einkunn í efri
deild og hlaut þau Soffía Eggertsdóttir frá
Garði. Lionsklúbbur Njarðvíkur veitti Ellen
Moony verðlaun fyrir hæstu einkunn í neðri
deild og Lionsklúbbur Keflavíkur veitti verð-
laun Magnúsi Kjartanssyni fyrir beztan árang-
ur í trompetleik.
Við skólann störfuðu 7 kennarar auk skóla-
stjóra.
Bamastúkan Nýársstjarnan
hélt árshátíð sína fimmtudaginn 6. maí i
Ungmennafélagshúsinu í Keflavík. Meðal
skemmtiatriða voru leiksýningar og dans. Sak-
ir fjölmennis innan stúkunnar varð að tví-
skipta skemmtuninni og var fyrri skemmtunin
því fyrir yngri félaga stúkunnar kl. 4, en kl. 9
fyrir þá eldri. Árshátíðin fór að vanda vel
fram undir stjórn hinna ágætu gæzlumanna
hennar, systranna í Framnesi, Guðlaugar og
Jónínu Guðjónsdætra.
Sjálfsbjörg
Félag fatlaðra á Suðurnesjum bárust á síð-
asta starfsári gjafir frá eftirtöldum aðilum:
Ólínu Sigurðardóttur kr. 500,00, Jóni Guð-
brandssyni kr. 1000,00 og Þorgerði Einars-
dóttir kr. 3000,00.
Kærar þakkir færi 'ég ykkur öllum fyrir
hlýhug ykkar til félagsins.
Gestur Auðunsson.
Urdr. úr skýrslu bókasafnsins fyrir árið 1964:
Lánaðar voru út á lestrarsal 5,013 blöð og
bækur og í útlánadeild 18,143 bækur, samtals
23,156 eintök (árð 1963: 21,450).
Lánþegar voru 757 (árið 1963: 729).
Bæjarframlag var 254 þúsund.
Sýsluframlag var 41 þúsund
Ríkisframlag var 127 þúsund
Á árinu var keypt allstórt bókasafn (einka-
safn Kristmanns Guðmundssonar rithöfundar).
Eru það aðallega bækur á Norðurlandamálum
og ensku svo og nokkuð á íslenzku. Að þvi
verður unnið í sumar að skrá þetta safn og
koma því í umferð. Brýnustu nauðsynjamál
Bókasafns Keflavíkur eru nú húsnæðisvand-
ræði. Núverandi húsnæði er nú þegar orðið
allt of lítið, enda var það ekki upphaflega
byggt sem slíkt. Eg geri ráð fyrir að stjórn
safnsins muni gera ýtarlega greinargerð um
óskir sínar í þessu efni á næsta aðalfundi
stofnunarinnar. Leyfi ég mér að þakka öllum
þeim, sem sýnt hafa safninu velvilja á liðnu
ári. Að lokum fylgir skrá yfir nokkra mest
lesnu höfundana á árinu:
Ingbjörg Sigurðardóttr 308 bækur
Guðrún frá Lundi 255 bækur
Þórunn Elfa Magnúsdóttir 156 bækur
Elínborg Lárusdóttir 153 bækur
Ármann Kr. Einarsson 143 bækur
Ingibjörg Jónsdóttir 140 bækur
Guðmundur Daníelsson 133 bækur
Ragnheiður Jónsdóttir 129 bækur
Guðmundur Hagalín 121 bækur
Jónas Árnason 103 bækur
72 — FAXI