Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1970, Blaðsíða 9

Faxi - 01.03.1970, Blaðsíða 9
Skúli Magnússon: Drög að sögu Keflavíkur Undir þessari fyrirsögn hefst hér í blaðinu framhaldsgreinaflokkur eftir ungan Kcfl- víking, Skúla Magnússon, sem hefir viðað að sér allmiklum fróðleik um Kcflavík. Mun lesendum blaðsins þykja forvitnilcgt að kynn- ast þessu efni í samantekt Skúla. H. Th. B. Jörðin. Þær munu vera 5 Keflavíkurnar á landinu og kunnust af þeim er Keflavík við Stakksfjörð á Reykjanesskaga. Híin mun snemma á öldum hafa komið við sögu og eru elztu heimildirnar fyrir byggð hér frá því um 1627. Annars eru heimildir um fyrstu mannaferðir í Kefla- vík í Landnámu, þar sem segir, að þrælar Ingólfs Arnarssonar hafi farið með fjör- um alla suðurströndina, þar til þeir fundu öndvegissúlur herra síns reknar á land í Reykjavík. Þannig hafa þeir komið við í Keflavík á leið sinni til Reykjavíkur. Hér er ótvírætt um fyrstu mannaferðir í í Keflavík að ræða. Keflavík er í landnámi Ingólfs og hluti af því landi, er hann gaf frændkonu sinni, Steinunni Gömlu, er bjó í Leirunni. 1 maí blaði Faxa 1947 segir Marta V. Jónsdóttir eftirfarandi um upphaf byggð- ar í Keflavík: „Mér var einna minnisstæð- ast, er ég heyrði að Keflavík hefði endur fyrir löngu verið einn einasti bóndabær og ekkert annað byggt ból alla leið inn í Ytri-Njarðvíkur. Þetta átti að hafa verið um það leyti, er Tyrkir rændu Grindavík (árið 1627) og í tíð Hallgríms Péturssonar, en gamla fólkið gleymdi aldrei að minnast þess, að hann hafði eitt sinn dvalizt á þessum slóðum. Bærinn Keflavík átti að hafa staðið sunnan í hrygg þeim eða höfða, er reis upp og suður af Grófinni, er næst var Bergi nu. Var höfðinn hæstur að austanverðu, næst sjónum og snarbrattur uppfrá sjó, en hall- aði svo niður aftur að sunnanverðu og niyndaði þar aðra gróf. Þar er Keflavíkur- vör, átti þar að hafa verið uppsátur frá ómunatíð. Só vör er ennþá notuð. Þar fyrir sunnan og ofan við tók við vítt og mikið land alla leið upp til heiða og suður að Nástrandargróf, sem svo var nefnd, er ég heyrði þessa sögu. En þar er nú Tjarnar- gata. Atti það land að hafa verið grasi vaxið, en breytzt smátt og smátt í upp- blástursland. Um miðbik höfðans sem fyrr er nefndur, var hóll. Þar sunnan við átti bærinn að hafa staðið, en túninu hallaði til suðurs, vesturs og norðurs. Þegar fyrsta íbúðarhúsið (?) var reist í Keflavík, gamla Duusbúð, sem enn stendur (rifið 1965) var það reist nokkru neðar en bærinn, en við hólinn. Stóð þá bærinn ennþá og var notaður til íhúðar. Til sannindamerkis um bæjarstæðið sunnan við hólinn var greint frá því, að þar hefðu fundist greinilegar rninjar um byggt ból, er túnið var sléttað í tíð eldra Duus“. Fyrsti bóndi sem þekktist með nafni og bjó í Keflavík, er Grímur Bergsson, og segir frá því í Setbergsannál, að árið lb49 hafi téður maður orðið bráðkvaddur við vinnu sína. Grímur þessi var áður sýslu- maður í Kjósarsýslu og lögréttumaður á Suðurnesjum. Um búskapinn í Keflavík munu fyrsr vera til heimildir í jarðabók Arna Magn- ússonar og Páls Vídalíns frá 21. sept. 1703. Hefur jörðin verið heldur rýr og miður fallin til búskapar. Abúandinn hét Halldór Magnússon 52 ára, hinn annar bóndi í Keflavík, sem þekkist með nafni. Heimilisfólkið var 5 að tölu: Hallgerður Arnadóttir, eiginkona ábúanda, 43 ára, Jakob Halldórsson, sonur þeirra, 22 ára, Þorbjörg Nikulásdóttir, dótturbarn þeirra, 3 ára, Guðríour Þor- steinsdóttir, vinnukona, 32 ára og Gunn- hildur Þorgeirsdóttir, tómthúskona, 52 ára. Til samans voru því 6 manns á bænum. Kvikfénaður var: Tvær kýr, foli þre- vetur og hryssa og annað ekki. Landgæðum er þannig lýst: Dýrleiki jarðarinnar er óviss. Jörðin fóðrar naumast eina kú. Skóg til kolagerðar hefur jörðin í almenningum. Torfrista og stunga við- sæmandi. Lyngrif í heiðinni nokkuð. Fjörugrastekja nægileg. Eldiviðartak af ijöruþangi hjálpleg. Rekavon lítil. Hrogn- kelsafjara varla reiknandi. Skelfiskafjara nokkur. Heimaræði er árið um kring og ganga skip búandans eftir hentugleikum. Inn- tökuskip eru hér engin. Lending slæm. Engjar engar. Útihagar í betra lagi. Vatnsból í allra lakasta máta, sumar og vetur. Kirkjuvegur langur og margoft ófær um vetrartíma (Kirkjusókn var þá ao Út- skálum). A jörðinni hvíldi sú kvöð, að vakta hús kaupmannsins. Kúgildi voru engin á jörð- inni. Landsskuld var 25 álnir og borgaðist með einni vætt og tveim fjórðungum fiska í kaupstað í reikning umboðsmannsins á Bessastöðum. Og nú kemur löng eyða í ábúendatalið, því undirritaður hefur ekki ennþá fundið ábúendur Keflavíkur fram að 1760. Síð- asti ábúandi á Keflavíkurjörðinni var Hannes Höskuldsson og var hann þar árið 1762 er manntal var tekið. Manntalið er þannig: Hannes Höskuldsson 46 ára, kona (hans) 43 ára, telpa 10 ára. Hjá þeim er vinnumaður og ein vinnukona, 2 drengir á fátækraframfæri 14 og 11 ára, og 1 þurfa- maður 71 árs. Eftir þetta var jörðin svo lögð undir kaupmann og aldrei var rekinn framar búskapur á býlinu Keflavík. Verzlunin. Það mun hafa verið snemma á öldum sem Keflavík varð aðsetur verzl- unar og viðskipta. Þegar á 15. öld fara Englendingar að sækja æ meira hingað til lands, til fiskveiða og verzlunar við landsmenn. Verzlunin mun þó hafa verið aukastarf þeirra ensku, en ekki er að efa, að báðir aðiljar hafa hagnast af þeirri höndlun. En ekki sitja þeir einir að krás- inni, því 1518 var orrusta mikil háð í Hafnarfirði á milli Þjóðverja frá Ham- borg (Hamborgara) og Englendinga. Hamborgarar voru fjölmennari og sigruou í þetta sinn. Þeir munu hafa verið um 48 talsins og m. a. frá Keflavík og Bátsendum. A þessu sétzt að þýzkir hafa verið búnir að leggja undir sig hafnirnar hér syðra. Var svo allt fram til 1602, er einokunar- verzluninni var komið á, að eilífur slagur átti sér stað á milli þessara aðilja og einnig komu þýzkir Hansakaupmenn þar inn í. Arið 1540 kveðst Robert nokkur Legge frá Ipswich í Englandi hafa stundað ís- landssiglingar í 26 eða 27 ár og þá m. a. hafa lent í Keflavík (Keblewycke) og (Grenewycke). Arið 1543 áttu Hamborgarar 45 skip á Suðurnesjum sem gerð voru út til fisk- veiða. Danir hófu svo verzlun í Keflavík árið 1579 og þann 26. sept. 1562 tók konungur undir sig Hólmseignir ásamt verstöðvun- um á Suðurnesjum o. þ. á. m. Keflavík. Skálholtsstóll mun áður hafa átt Hólms- eignir og haft mikið útræði frá verstöðv- um á Suðurnesjum. Framhald. F A X I — 41

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.