Vísbending


Vísbending - 30.05.2008, Blaðsíða 2

Vísbending - 30.05.2008, Blaðsíða 2
2 V í s b e n d i n g • 1 9 . t b l . 2 0 0 8 Í nýlegri grein í Vísbendingu (sjá Hættum að bulla um Evrópusambandið, 16. tbl.) er því haldið fram að Íslendingar hafi engin áhrif á þær gerðir Evrópusambandsins sem gerðar eru hluti af EES-sáttmálanum. Þetta er ekki alls kostar rétt eins og glöggir lesendur bentu á. Evrópusambandið og EFTA-ríkin hafa ákveðið ferli þegar ákveðið er hvaða gerðir verða hluti af sameiginlegu regluverki. Evrópusambandið hefur auðvitað undirtökin í í þeim viðræðum því að engin gerð fer inn í EES-samninginn nema vera fyrst komin til framkvæmda innan ES. Hins vegar hafa EFTA-ríkin aðkomu að málum og geta stundum haft ákveðinn sveigjanleika við innleiðingu reglna. Dæmi um þetta er matvælalöggjöfin sem nú liggur fyrir Alþingi og stefnt er að því að afgreidd verði sem lög í haust. Hér á eftir er farið yfir það hvernig sameiginlegar ákvarðanir eru teknar. Fylgt er skýrslu nefndar sem Björn Bjarnason stýrði og fjallaði um Evrópumálin. Samstarfsvettvangur Sameiginlega EES-nefndin (EEA Joint Committee) er helsti samstarfsvettvangur EES/EFTA-ríkjanna og Evrópusambands- ins, en hlutverk hennar er að tryggja virka framkvæmd EES-samningsins. Í nefndinni sitja annars vegar fulltrúar Íslands, Liechtensteins og Noregs og hins vegar fulltrúar framkvæmdastjórnar ES. Fulltrúar einstakra aðildarríkja ES geta einnig mætt á fundi nefndarinnar, en taka yfirleitt ekki til máls. Aðalviðfangsefni nefndarinnar er að taka ákvarðanir um hvaða ES-gerðir falli inn í EES-samninginn: Í nefndinni hafa samningsaðilar samráð um öll þau mál samningsins sem valda erfiðleikum. Undir þessari nefnd vinna fimm undirnefndir sem eru skipaðar nefndarmönnum í sambærilegum undirnefndunum sem eru fastanefnd EFTA til aðstoðar og fulltrúum framkvæmdastjórnar ES. Sameiginlega EES-nefndin hittist yfirleitt 7-8 sinnum á ári. Þegar mál er tekið fyrir er metið hvort viðkomandi ES-gerð falli undir efnissvið EES-samningsins og jafnframt hvort gera þurfi aðlaganir vegna sérstöðu einstakra EES/EFTA-ríkja. Engar aðlaganir eru veittar nema með samþykki Evrópusambandsins. Undirbúningur að ákvörðun hefst í vinnuhópum EFTA, sem fjalla um tillögu að viðkomandi gerð á meðan hún er enn til umfjöllunar hjá stofnunum ES og löngu áður en hún kemur til umræðu í sameiginlegu EES-nefndinni. Ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar eru teknar samhljóða. Því er ekki um meirihlutaákvarðanir að ræða í EES. Eftir að gerð frá ES hefur verið tekin inn í EES-samninginn þurfa EES/EFTA-ríkin að innleiða hana í sinn landsrétt. Ef um er að ræða tilskipun hafa stjórnvöld val um form og aðferð við innleiðinguna, en reglugerðir eru teknar upp óbreyttar, nema samið hafi verið um sérstakar aðlaganir fyrir Ísland. Fáum við undanþágur? Að jafnaði koma nær daglega nýjar gerðir ES til framkvæmda á Íslandi. Gerðir ES hafa almennt ekki bein lagaáhrif í EES/ EFTA-ríkjum, heldur þarf að semja sérstaklega um hvort og með hvaða hætti ES-gerð taki til EES/EFTA-ríkja á grundvelli EES-samningsins, en í því ferli er m.a. hægt að semja um aðlaganir og undanþágur af ýmsu tagi, jafnt tæknilegar sem efnislegar. Framkvæmdastjórnin semur um aðlaganir fyrir hönd ES og hefur umboð til að fallast á eða hafna beiðnum um tæknilegar aðlaganir. Efnislegar aðlaganir þurfa hins vegar samþykki ráðherraráðsins sem þarf jafnframt að hafa samráð við Evrópuþingið. Yfirleitt er nær ómögulegt að fá aðlögun ef einstökum ríkjum ES hefur verið synjað um sams konar ívilnun. Rík tilhneiging er til að gæta þess að EFTA-ríkin séu ekki betur sett en aðildarríkin. Íslendingar hafa því aðkomu að því hvernig ákvarðanir ES koma til framkvæmda hér á landi. Dæmi um þetta er fyrrnefnd matvælaráðgjöf. Almennt féll landbúnaður ekki undir EES-samninginn á sínum tíma en nú er litið svo á að landbúnaður og sjávarútvegur lúti sömu reglum. Því hefur samningurinn verið víkkaður út að þessu leyti og Íslendingar munu taka upp nýja löggjöf á þessu sviði, þó að það hafi upprunalega ekki verið ætlun stjórnvalda. V Yfirleitt er nær ómögulegt að fá aðlögun ef einstökum ríkjum ES hefur verið synjað um sams konar ívilnun. Rík tilhneiging er til að gæta þess að EFTA-ríkin séu ekki betur sett en aðildarríkin. Áhrif Íslendinga í Evrópu

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.