Vísbending


Vísbending - 03.04.2009, Blaðsíða 2

Vísbending - 03.04.2009, Blaðsíða 2
eftir 25 ár e!a í kringum ári! 2035. Ef fólksflótti ungs fólks úr landi brestur á ver!ur byr!in enn "yngri en ella. Mynd 1: Áætlu! me!alævi karla og kvenna vi! fæ!ingu árin 1971-2008 Heimild: Hagstofa Íslands Mynd 2: Fjöldi Íslendinga 70 ára og eldri árin 2009-2049 Spá Hagstofu Íslands 2 V í s b e n d i n g • 1 4 . t b l . 2 0 0 9 Aldurinn færist yfir þjóðin Samkvæmt nýjum tölum Hagstof-unnar fer meðalævilengd karla hækkandi hér á landi rétt eins og gerst hefur á nánast hverju ári undanfarin tvöhundruð ár. Meðalævilengd kvenna hækkar líka en þó minna en karlanna. Undanfarin þrjú ár hefur áætluð ævilengd kvenna hér á landi ekki breyst. Þessar tölur vekja jafnan nokkra athygli í fréttatímum einkum nú þegar íslenskir karlmenn eru sagðir heimsmeistarar í því að hjara, en færri hafa þó orð á því hverjar afleiðingar þessa eru fyrir þjóðarbúið. Kostnaðaraukinn af þessari gleðilegu öldrun er ríflega milljarður á ári og ferð hratt vaxandi. Flestir vilja verða gamlir Á fyrri öldum voru líkur á því að börn kæmust til fullorðinsára ekki góðar. Ungbarnadauði var mikill og auk þess dóu mörg börn sem lifðu af fyrstu árin úr ýmiss konar pestum. Þeir sem komust yfir þennan hjalla gátu orðið gamlir en þó voru ýmsir sjúkdómar mönnum skeinuhættir. Framfarir í læknavísindum hafa bæði bætt lífslíkur og lífsgæði fólks. Þetta hefur haldið jafnt og þétt áfram allt fram á vora tíma. Á hverju ári bæta íslenskir karlmenn við áætlaða meðalævi um 1/5 úr ári meðan íslenskar konur bæta á sama tíma við sig 1/8 úr ári. Með þessu áframhaldi gæti meðalævi karla og kvenna orðið nokkurn veginn jafnlöng um miðja 21. öldina. Eðlilegt er að spurt sé hvort meðalævin geti endalaust haldið áfram að lengjast. Ævilenging er ekki bundin við Ísland eitt. Nær allar þjóðir þar sem ekki ríkir stríðsástand eða næringarskortur verða eldri ár frá ári. Læknar telja þó víst að á þessari þróun hægi og meðalævin fari ekki yfir ákveðin mörk, sem þeir eru þó tregir til að nefna hver eru. Stundum koma þó upp áður óþekktir sjúkdómar eins og alnæmi sem leika ýmsar þjóðir grátt. Það er því ekki víst að þróunin verði alltaf í sömu átt. Dæmi eru um að meðalævi hafi styst, jafnvel á friðartímum. Fyrst eftir hrun Sovétríkjanna styttist meðalævi rússneskra karla um meira en fimm ár. Skýringin var talin aukinn drykkjuskapur og jafnvel lakari læknismeðferð. Á undanförnum árum hefur ástandið lagast, en er enn ekki komið í sama horf og fyrir hrunið. Því er ekki útilokað að efnahagsástand geti haft neikvæð áhrif á lífslíkurnar, þó að reyndar séu ekki mörg dæmi um að þær verði verri. Það kostar að vera gamall Vegna þess að fólk hættir flest að vinna við ákveðinn aldur hættir það að leggja þjóðarbúinu til og verður í staðinn þiggjendur. Á undanförnum árum hefur það færst í vöxt að fólk hætti störfum upp úr sextugu, jafnvel þó að það hafi heilsu til þess að vinna fulla vinnu miklu lengur. Því lengist eftirlaunatímabilið í báða enda og leggst þess vegna á þjóðfélagið meiri kostnaður en hlýst af lengingu meðalævinnar. Batnandi heilsufar ætti að verða til þess að menn gætu unnið lengur Mynd 1: Áætluð meðalævi karla og kvenna við fæðingu árin 1971-2008 Myndin sýnist að dregur saman í aldri karla og kvenna. Heimild: Hagstofa Íslands. eftir 25 ár e!a í kringum ári! 2035. Ef fólksflótti ungs fólks úr landi brestur á ver!ur byr!in enn "yngri en ella. Mynd 1: Áætlu! me!al vi karla og kve na vi! fæ!ingu árin 1971-2008 Heimild: Hagstofa Íslands Mynd 2: Fjöldi Íslendinga 70 ára og eldri árin 2009-2049 Spá Hagstofu Íslands Aldraðir verða þrefalt fleiri en nú eftir 40 ár. Spá Hagstofu Íslands. Mynd 2: Fjöldi Íslendinga 70 ára og eldri árin 2009-2049 en áður, en kröfur um aukinn frítíma og þrýstingur atvinnurekenda hefur valdið því að þróunin er með öðrum hætti. Byrði þeirra sem eru fullvinnandi þyngist því að þeir verða lægra hlutfall af heildarfjölda þjóðarinnar eftir því sem stærri árgangar komast á elliár. Á næstu árum byrja stórir árgangar eftirstríðsáranna að þiggja ellilífeyri. Þetta eykur kostnað lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar mjög hratt. Jafnvægi verður þó ekki náð fyrr en eftir 25 ár eða í kringum árið 2035. Ef flótti ungs fólks úr landi brestur á verður byrðin enn þyngri en ella.

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.