55 Guöm. Guðmundsson: [IÐUNN Hamingja íslands: eining og friður, áræði, traust og viljans þor stafar af brá þér, brautirnar ryður, boðar oss ársælt frelsis vor! (Snmnrgyðjan stigur iram, bendir Velri með gullsprotn að Uoma nær. Hún og allar dísirnar dansa létt tengdum höndum frammi í'yrir homuu dálitla stund. Að þvi búnu raða disirnar sór að baki Sumargyðjunnar. Ilún snýr sér a6 álioi'fcndum og syiigur.) Sumargyðjan: Mitt er ríkið: ríkið ljóss og vona, röðulveldi dætra minna' og sona! íslands ungu barna er ég leiðarstjarna, sigurdís til sókna þeirra' og varna. Eg er tímans tákn, minn sumardagur tindrar yfir landi sæll og fagur! Frjáls í frjálsu landi fagurlimi standi: Viljans krafta konungborinn andi! (Snýr sér að Vetri.) Gamli þulur! Vetrar-völdin striðu víkja fyrir minni sumarblíðu. Hverf um himinboga heim i Elivoga! Ekkert stenzt minn unga guða-loga! Vetur (lmeigir sig): Eg þoka, drottning, þínum tignarkrans ég þögull lýt og kyssi þína fætur! Eg skil, að fyrir krafti kærleikans in kalda harðstjórn einum bugast lælur. Ef hann er afi í framsókn lýðs og lands, á lífsins gróður ódrepandi rætur.