Katrín í Asi kemur til himnaríkis. Eftir Johan Bojer. [Johan Bojer, f. 1872, er nú einna fremstur í flokki yngri rithöfunda í Noregi. »Et folketog« (1896) var fyrsta sagan eftir hann, sem verulega var tekiö eftir. Er það lýsing á sveitalífinu norska, en heldur ófögur og skuggaleg. Þá reit hann »Den evige Krig« og »Moder Lea«, og eru þær bækur í líkum anda. En svo kom skáldsagan »En Pilgrimsgang« og hún heillaði hugi allra. Einhver bezta skáldsaga Bojers er »Troens Magt« (1903), og ári síöar (1904) reit hann flokk ævintýra, er hann nefndi »Hvide Fugle«. Úr þeim er þessi smásaga tekin.] Katrín í Ási var kona Péturs i Ási. Saman höfðu þau grætt upp litla kotið sitt. Og saman höfðu þau margt kvöldið lagst lúin til hvildar í stóra, breiða rúminu sínu. Þau höfðu stritað saman eins og tveir samvanir plóghestar, og þau höfðu dregið hlassið hvort við annars hlið, hvort sem það var þungt eða létt. Og þau gátu ekki hugsað sér, að neitt gæti komið fyrir annað þeirra, sem ekki kæmi jafnframt fyrir þau bæði. Vitaskuld var það, að þegar Pétur kom úr kaupstað, var hann fullur og barði konu sína; en morguninn eftir var hann svo iðrandi syndari, að hann barði sjálfan sig utan. En svo kom það fyrir einn dag, að Katrín veiktist og komst ekki á fætur. Og Pétur sat á skemli fyrir