24 Christian Krohg: [Iðunn. Sér hún gumann, sveina hæstan, sýslumanninum tignarnæstan prestinn unga, íturglæstan eins á vöxt sem hár og hvarni. Hvílir 'hún við hans breiða barm. Svona gátu þau setið löngum, setið inni, og frammi' í göngum, kyst og fléttað arm við arm. Situr hún lengi í sjafnar draumi, sæl í liðnum vona-glaumi. Gæfan reyndist treg í taumi og trygðin eins og fiðrildið. En tál og sorgir, þegið þið! Hrekkur 'hún upp, því húsfreyjunni hrjóta svarra-orð af munni. Bezta súpa' er brunnin við. Jakob Thorarensen. A-ha! Kftir Christian Krohg. [Krohg er fæddur 1852; tók ungur próf í lögfræði, en var jafnframt málari, og fór snemma lil Þýzkalands til aö stunda málaralist. Dvaldi siðan lengstum í París og Noregi á víxl. Var i mörg ár kennari viö listaháskólann París, en var 1909 gerður að prófessor við nýstofnaða mál ara og myndhöggvara háskólann (akademi) í Kristíaníu Hann er talinn merkastur norskra málara á síðari hlut 19 aldar og höfundur nýrrar stefnu í list sinni. Hann heflr teiknað margar af myndunum í norsku þýðingunni miklu