iBUNNj Heimsmyndin nýja. 49 Þá koma ýmsar loftlegundir í Ijós eins og t. d.-. Kolaefni, C (12), Köfnunarefni, N (14) og Súrefni, 0 (16). Þá koma málmarnir til sögunnar, fyrst þeir léttu: Magnesium, Mg (24) og Calcium, Ca (40); síðan hinir þyngri, svo sem: Járn, Fe (56), Kopar, Cu (64) og Zink, Zn (65) og loks hinir þyngstu, svo sem: Kvikasilfur, Hg <200) og Blý, Pb (207). Því næst reka hin þyngstu frumefni, hin svonefndu geislandi efni, lestina, enda eru þau orðin svo þung, að þau eru farin að leysast upp aftur, t. d.: Radium, Ra (226) og Úran, U (238,5). Alls eru frumefni, þau sem nú eru fundin, um 80 að tölu og mætti æra óstöðugan að telja þau öll upp, enda skiftir það engu máli hér. Það sem þegar er tekið fram, er nægilegt til að sýna, að frumefnin verða til stig af stigi, fyrst hin léttari og svo hin Þyngri, og þyngstu frumefnin taka loksins að leysast upp aftur í önnur léttari efni um leið og þau stafa frá sér ljósi, hita og rafmagni. En með þessu er það sýnt, að sjálf frumefnin eru orðin til og hafa þróast hvert fram af öðru. [Frh.) Staka. Kraftur, heimssál, alt sem er inst og dýpst í þessum heimi, þig ég dýrka, þér ég sver að þjóna, meðan líf ég geymi. 'öunn i.