54 Jón Ólafsson: [IÐUNN muna bezt það sem gerst hafði í æsku hans. Hann mundi vel frönsku stjórnarbyltinguna og sagði vel frá. Móðurætt mín er in nafnkunna Hákonarstaða-ætt, þeirra Pétranna, hvers fram af öðrum. Svo sagði móðir mín mér, að sú ætt væri in sama sem séra Péturs á Víðivöllum, föður Péturs byskups, og þá að líkindum sama Péturs-nafnið. Kunni hún að rekja það saman, því að hún var ættfróð. Frekari greinargerð kann ég ekki á ætt minni að gera. Faðir minn var tvíkvæntur og átti við fyrri kon- unni 4 börn, er upp komust: Önnu, Pál, Ólavíu og Þórunni. Anna systir mín giftist Siggeiri stúdent Pálssyni, er siðar varð prestur að Skeggjastöðum;1) Ólavia giftist Birni Péturssyni (frá Valþjófsstað), er síðar varð alþingismaður um nokkur ár, fór síðar til Ameriku, misti þar konuna og kvæntist aftur ameriskri konu, varð kennimaður Unitara-safnaðar í Winnipeg og dó þara). Pórunn systir mín giftist Porvaldi móðurbróður mínuin, svo að faðir minn var bæði mágur hans og lengdafaðir, en þau Þórunn og Porvaldur voru með öllu óskyld. Pál kannast allir við og hefi ég ritað æviágrip hans framan við 2. bindi Ijóðmæla hans. Svo sagði Páll mér, að íaðir okkar hefði verið mjög strangur við börnin í uppeldi, og eiginlega alt of strangur svo að það hefði fjarlægt þau honum of mikið, einkum sig og, ef til vill, Olaviu nokkuð, svo 1) Þrjú :\f börnum þcin'a koniusl upp: Slefanía, lijarni Og Malena. Slefania kvæntlst séra Sæinundi Jónssyni, og cru þcirra synir: séra Olafur í Hraungerði, (icir byskllp á Akureyri og Páll cand. phil. i llöfn. 2) Af þeirra börnuin eru 4 álífi: Olal'ur læknir i Winnipcg; Anna giit Stig Porvaldssyni frá Kelduskógum, kaupmanni á Hallson í N. Dakotas llalidóra, gift I'álí Bardal í Winnípeg og Sigrún, gift norskum iuanni I Ameríku. iijörn átti son utan lijónaliands, þann er Sveinn heitir; lianu cr kvæntUl' Kristrúiiu alsyslur minni og búa þau i Scattlc, Wash., U. S., og oiga bðl börn og barnabörn.