16 STRAUMAR Septnagrinta. Á 3. og 2. öld f. Krist sneru, að sögn, 70 lærðir Gyðingar á, Egyptalandi gamlatestanientinu hebreska á griska tungu; er sú þýð- ing þvi jafnan nefnd sjötiumannaþýðingin" (septuaginta). Siðar hef- ir henni verið snúið á mörg önnur tungumál, t. d. iatinu, sýrlenzku, armenisku, slavnesku o. fl. Fyrir bibliurannsóknirnar hefir sjötiu- mannaþýðingin" verið mjög mikilvæg; varðveitti hún marga leshætti, sem réttari eru en í yngri hebreskum handritum og sýnir skilning forngyðinga á trúarbók sinni. Septuaginta kom i fyrsta =inni út á prenti arið 1518 og oft siðan. Frægust er orðin útgáfa Sixtusar páfa V. árið 1587. - Arið 1908 hóf visindafélagið i Göttingen undirbún- ing nýrrar visindalegrar útgáfu, er byggi d öllum handritum sem til eru af Septuaginta. Inngangur með itariegri greinargerð er í 3 bindum, alls o: 1250 bls. og nú nýlega er fyrsta bindi af sjálfri þýð- ingunni einnig komið út. Heitir það: Septuaginta Societatis Scien- tiarum Gottingensis auctoritate edidit Alfred Rahlfs. I: Genesis". Kostar það 3,50 þýzk mörk. Verða bindin sennilega 16 að tölu. (Forschungen und Fortschritte" 1. okt. 19'26). Friðarveroiann Nobels fyrir árin 1925 og 1926 voru þ. 10. des. sl. veitt Austen Cham- berlain. Briand, Dawes hershöfðingja og Gustav Stresemann. Mörg- um erl. blöðuni þykir valið hafa tekist miður vel, Áfellast sum þeirra norsku úthlutunarnefndina fyrir að kveða upp dóm i málum, sem sagan ein geti og eigi að dæma um - þ. e. þýðingu Dawes-tillagnanna svonefndu og Locarnosamninganna, en fyrir hlutdeild sina i þeim málum hafa þessir menn hlotið lieiðurinn. Ekki verður þvf neitað að einkennilegir eru friðarhöfðingjar nútímans. Prófessor igúst H. Bjarnason hefir undanfarið flutt opinber erindi um ,trú og visindi". Er þeim ekki lokið enn. Verður nánar sagt frá þeim í næsta blaði. Myndir munu Straumar flytja öðruhvoru. Straiiinar koma út mánaðarlega. Kostar árg. 5 kr.; i Ameriku l'/2 dollar. í nstn blaði keinur grein eftir Magnús Jónsson docent um Pál postula. Bréf til Strauma" sendist til cand. theol. Einars Magnússonar, Sólvöllum, Rvik. Prentsmiðjan Acta.