ARBLIK hingað yfir um fyrir mörgum ár- um eins og þið svo nefnið. Nokkrir vinir hans tóku á móti honum og hann gladdist mjög af því, að þeir skyldu koma svona aila leið niður til jarðar að vísa honum veginn þangað sem hann átti að fara. það var svið ná- lægt jörðinni og ekki hátt uppi, og eins og jeg sagði var hann mjög ánægður. því að þar hlotn- aðst honum næði eftir mikið strit og armæðu og stríð sitt við fá- tæktina og einnig f jekk hann þar nægan tíma til að fara og kanna ali, sem honum var þar nýit og fagurt að sjá. Honum var þetta sannarlegt Himnaríki og allir voru elskulegir við hann og hann ham- ingjusamur hjá þeim. Eínhvern dag svo jeg tali á ykkar máli kom hár andi frá æðra sviði eftir götunni að heimili skósmiðsins og gekk inn. Hann var þá að lesa í bók, sem hann hafði fundið í húsinu þeg- ar hann kom þangað og honum var sagt að þar ætti bústaður hans að vera. Sá er kom ávarp- aði hann jarðneska nafninu hans jeg man ekki hvað það var og skósrr.iðuriun stóð upp. »Hvað lest þú, vinur minn*, mælti sá er kom. »það er nú ekki mikið, sem mig getur varðað . það er rjett svo að jeg fylgist með í því. það er auðsjáanlega samið handa þeim er búa á æðri sviðum en þessu.« »Og í hverju skyni var bók þessi samin, spurði sá enn, er kom«. »Hún segir frá háum sviðum og miklum fyrirtækjum. Um að koma skipulagi á stóran hóp af konum og körlum á sviðunum fyrir ofan í þjónustu Föðurins. þar eru leiðbeiningar fyrir þá, sem eiga að stjórna öllu þessu og þess vegna varðar bókin mig ekki sem stendur. En ef til vill heíi jeg einhvern tima gagn af henni þegar að mjög langur tími er liðinn. Hvernig hún komst hingað veit jeg ekkert um.« þá tók hinn hái Andi bókina, ljet hana aftur og fjekk skósmiðn- um hana þegjandi. En er hinn tók við henni roðnaði hann og varð utan við sig. því að þarna á kápur.ni skinu hvítir og rauðir gimsteinar settir þannig, að þar mátti lesa nafn hans. »Hvað er þetta,c sagði hann, »eftir þessu hef jeg ekki tekið áður«. »Og þó er þetta nafnið þitt eins og þú sjerð og bókin er samin til þess að fræða þig. því vita skalt þú, vinur minn, að þetta svið er þjer að eins ætlað til stuítrar hvíldar. Nú ert þú búinn að njóta hennar og verður að byrja á starfi þínu. Og það er eigi hjer heldur á hLu æðra sviði, sem bók þessi segir frá«,