Formáli. Eins og ölluni knattspyrnumönnum er kunn- ugt, hefir öll þau ár, sem knattspyrna hefir verið iðkuð hér, verið þörf bókar, sem segir ekki að- eins sögu og þróun þessarar íþróttar, heklur birtir einnig glöggt yfirlit helztu knattspymu- viðburða frá ári til árs. MeS þessari fyrstu árbók K.R.H. vonast ráðið li) að bætt sé úr þessu, a. m. k. að mestu leyti. Ætlun K. R. R. er, að bókin komi út árlega, þó breytt að efni til þannig, að hver ný bók flytur nýjar skýrslur og nýjan fróðleik. Eins og bókin ber með sér er hún, að nokkru leyti, sniðin eftir hliðstæðum knattspyrnu-ár- bókum annarra landa, þó hún sé mun minni. Hér á landi er dýrt að gefa út bækur vegna hins mjög takmarkaða kaupendafjölda. og auk þess hefir það kostað mikið starf að vinna úr gömlum heimildum Og hinn mikli fjöldi mynda hefir gert bókina lalsvert dS'rari, en annars hef'oi orðið. En K.R.R, treystir þvi, að knattspyrnu- menn og aðrir unnendur íþróttarinnar lesi bók- ina og útbreiði hana svo dyggilega, að hún verði ekki byrði á K.R.R. Þar sem þetta er fyrsta árbókin, sem út kem- ur, má búast við, að einhverjir gallar kunni að vera á henni, en K.R.R. mun gera sitt til að úr þvi verði bætt í framtíðinni. Hr. lögfræð- ingur Árni M. Jónsson annast ritstjórn bókar- innar fyrir liönd K. R. R. Guðmundur Olafsson, Form. K.R.R.