Verði fyrirliði þess var, að leikmaður í sveit hans hefir meiðst svo að það háir honum, þá ákveður hann hvort hinn slasaði skuli fara af leikvelli og það þó að hinn slasaði vilji ekki yfirgefa leikvöllinn. t>elta er nauðsynlegl, því að félaginu getur verið hagur í þvi, að fá heil- brigðan varamann, þó liann sé ekki jafnoki liins þegar báðir eru heilir. Þá er það verk fyrirliða, að spyrja dómara fyrir hvað aukaspyrna er gefin. Þetta er mjög áríðandi, því að úr suniuni aukaspyrnum má skora rakleilt mark, en öðrum ekki. Eins er það fyrirliða, en ekki annarra leikmanna, að vanda um við dómara og mótmæla úrskurðum hans, ef ástæða er til þess. Sömuleiðis verður hann, að halda uppi aga. innan sinnar sveilar, við dómarann. Af því, sem þegar liefir verið sagt, má sjá, að fyrirliði þarf að vera mörgum kostum búinn. Hann þarf sjálfur að vera góður knattspyrnu- maður, bann þarf að kunna lögin mjög vel, hann þarf að þekkja allar Jeikaðferðir og Jeikbrögð, bann þarf að Jiafa glöggt auga fyrir því hvaða leiðir er beppilegastar lil sigurs. Hann þarf að vera virðulegur og umfram allt jafnl andlega sem líkamlega þroskaður og hann verður að krefjast þess af meðleikmönnum sínum, að þeir taki hann sér lil fyrirmyndar. Guðmundur Ólal'sson. 72