Inngangur. Það er í fyrsta skipti, að Verzlunarmannafélag- ið Merkúr gefur út árbók fyrir meðlimi sína. Er starfsemi félagsins nú orðin svo fjölþætt, að rétt þykir að gefa félagsmönnum þess og öðrum verzlunarmönnum kost á að sjá hvernig störf fé- lagsins ganga, og treystir stjórnin því, að það verði til þess að verzlunarmenn gefi félaginu og starfi þess meiri gaum en verið hefir. Er eg fullviss um, að verzlunarmenn bæjarins láta sig Merkúr einhverju skipta og f ara að starf a að málum félagsins, sem eru um leið þeirra mál, þá mun Merkúr næsta ár gcta gefið út vandaðri og stærri árbók en nú. En það, sem mestu máli skiptir, þá geta verzlunarmenn sagt með sanni, að þeir geta starfað þegar þeir vilja, þá munu þeir hafa hrundið fram hinum ýmsu máluni, sem hing- að til hefir verið ókleift vegna viljaleysis þeirra. Reykjavík, í desember 1931. Gísli Sigurbjörnsson.