8 lausuar, bíða eftir atorku og skynsemi mannssálar- hinar, bíða eftir buldum öflum, sem þá og þegar brjótast fram til valda og vegsemdar öllu lifandi á jarðríki. Hver maður og kona sem náð bafa fullorðins aldri hafa orðið eldsins vör, sem sál þeirra geymir, orðið þess vör, að kraftarnir aukast, málturinn vex og skynsemin fær slærri og stærri sjóndeildarbring. En kraflar og skynsemi eru oft tvær andstæður, sem vinna bver á móti annari, án þess að hægt sé að ráða bót þar á á skömmum tíma. Allur fallvalt- leiki okkar mannanna er þvi að kenna, að skynsem- in nær ekki nógu djúpt, fær ekki tíma til þess að átta sig fyrir allskonar utanaðkomandi áhrifum, sem á okkur dynja eins og haglskúrir. Freistingarnar, sem við verðum fyrir, ráða oft og tíðum niðurlögum okkar, þær breyta og afmynda allt það góða i einni svipan, svo ef til vill er ekkert gott eftir. Félagslíf hefir verið prédikað frá fyrstu tímiuu, í biblíunni er oft minnzt á það að allskonar flokkar manna, þjóðabrot óskyldra manna hafi myndað með sér félagsskap; hirðingjar áttu hjarðir sinar sameiginlega o. s. frv. Trúarflokkar eru ekkert annað en félög raanna, sem vilja standa saman á andlcgum sviðum, sem í ást og einlægni trúa á sama guðinn, sama andlega leiðtogann i gegnum lífið, og vita að lífið er harla lítils vert án hans. Það er því sizt að undra, þótt mennirnir vilji lika hafa með sér félagsskap um margt það, sem til veraldlegra eða likamlegra hags- muna má teljast, þeir, sem vinna sömu vinnu, vilja