9 og leitast við að sameina krafta sina, vinna sinni stétt allt það gagn, sem þeim er unnt, þeir vinna að ¦aukinni velgengni samstcttarmanna sinna, á verald- lega, líkamlega og fjárhagslega sviðinu. Hér verður tekinn samanburður á f élagi, sem unn- ið hefir að aukinni vehnegun einnar stéttar í land- inu og leitazt við að skýra frá, hvernig Verzlunar- mannafélagið Merkúr varð til fyrir 18 árum og saga þess rakin í fáum dráttum. Félagið var stofnað þann 28. desember 1913 af nokkrum áhugasömum mönnum og konum, sem út- skrifazt höfðu fra Verzlunarskóla Islands að minnsta kosti flestöll, og unnu hér i Reykjavík að verzlun og viðskiptastarfsemi. Fara hér á eftir nokkur orð, sem skrifuð hafa verið af fyrstu stofnöndunum og nöfn þeirra: Vér undirritaðir stofnendur og meðlimir Verzl- unarmannafélagsins Merkúr, er samþykkt höfum lög fyrir félagið, þau er lesin voru upp og sam- þykkt á fundi þann 28. des. 1913, lofum og skuld- bindum oss hér með til þess að hlýða þeim og framfylg.ja í öllum greinum og einnig að fai*a eftir þeim breytingum, er síðan kunnu að verða löglega samþykktar. Þessu til staðfestingar ritum vér nöfn vor og bústað hér undir. Reykjavík, Anno Domini 4. jan. 1914. Hallgrimur Tulinius. Engilbert Hafberg. Leifur Röðvarsson. Eygló Gísladóttir. Hrefna Lárusdóttir. Sigr. Rrynjólfsdóttir. María Þorvarðsdóttir. Snorra Renediktsdóttir. L. Hjaltested. Runólfur Kjartans- .son. Magnús Níelsen. Jón Hafliðason. Teódór Vil-