15 en það vill oft verða svo, ef allt gengur ekki að óskum, firtast menn og snúa bakinu við félagsmál- um, en hafa ekki drenglund eða þroska til þess að skipa sér þvi betur saman. 10 ára afmæli félagsins var hátiðlegt haldið á Hótel Island og boðið þangað sem heiðursgestum formönnum, sem verið höfðu frá byrjun. Var þar skemmt með ræðuhöldum, söng og hljóðfæraslætti og dans. Meðal skemmtikrafta var prófessor Svein- björn Sveinbjörnsson sem spilaði frumort lög af mikilli list og söng þau Bjarni Bjarnason, sem nú «r læknir á Akureyri. Árnaðaróskir bárust félaginu þá fra ýmsum málsmetandi mönnum, sem verið höfðu í félaginu, en voru orðnir, þegar hér var komið, atvinnuveitendur. Félagatalan við lok starfstíma Helga Hallgríms- sonar sem formanns var 140. Á tiunda starfsári félagsins var Valgarður Stef- ánsson kosinn formaður. Af málum þeim, sem komu til umræðu á árinu, voru þessi hin helztu: Vélritunarkappmót, skyldunám verzlunarmanna, verzlunarhöftin, oliu- og tóbaks einkasölur rikis- ins, blaðið Merkúr o. fl. Var um þessi einkasölufrumvörp haldinn sér- stakur fundur, sem töluvert karp varð út úr, eins og ailtaf vill verða, þegar skerða á einstaklings- frelsi og þvinga ýmsa til vinnumissis og breytinga. Voru skiptar skoðanir manna um hvort félagið sem slíkt ætti að ræða þessi mál eða samþykkja um þau tillögur. Fór þó svo, að félagið sýndi með sam- þykkt fundar, að það sem heild væri á móti einka-