17 Hugmynd félaganna var sú, að koma þessu nauð- synjamáli eins og það er, frumvarpi til laga um skyldunám og sérréttindi verzlunarmanna, fyrir Alþingi, en því gat ekki orðið framgengt af ýms- um ástæðum. Það skal tekið fram um þetta frumvarp, að i þvi er margt það, sem til stórbóta má kallast, og um leið er það sorglegt tímanna tákn, að svo yfirgrips- niikið frumvarp hefir ekki enn þá náð fram að ganga. Um það hefir margt verið sagt og mikil vinna og erfiði í það lagt. Húsbyggingarmálið komst i nefnd, og samkvmt skipulagsskrá sem birtist á öðrum stað hér í Árbók- inni, hefir nú Húsbyggingarsjóður um kr. 1000,00 í sjóði. Á þessu sama starfsári fóru 2 fulltrúar fyrir hönd félagsins til Noregs á verzlunarmannamót, sem haldið var að tilhlutun félagsins Norden. Þeir, sem fóru, voru þáverandi formaður Valgarður Stefánsson og Ólafur Þórðarson. Þá var og á þessu starfsári stofnsett ráðningastofa fyrir verzlunar- menn, og stóðu að henni bæði verzlunarmannafé- lögin í Reykjavík, skrifstofan var starfrækt á skrif- stofu Verzlunarráðs íslands. Námskeið var sömu- leiðis starfandi á þessu ári og kenndar 3 náms- greinar: enska, þýzka og bókfærsla, og mun það hafa verið fyrsti visirinn að seinni starfsemi félags- ins í þá átt, sem nú er mjög fjölbreytt, þar sem félagið starfrækir námskeið, sem um 180 nemend- ur sækja. Einnig var þá rætt mikið um launakjör og eftirvinnukaup verzlunarmanna. Félagatala í árslok 190. 2