18 Fjórtánda starfsár var endurkosinn formaður Valgarður Stefánsson til 10. október 1928 samkv. nýendurskoðuðum félagslögum. Á starfsárinu voru ýms mál rædd, og meðal þeirra: námskeiðin, bóka- safnið, launamálið, fánamál, félagsmerki (sem þá voru fengin og seld síðan). Einn pólitískur fundur var haldinn á árinu og þar ræddar stjórnmála- stefnur nútímans. Félagatala i árslok var 168 og því nýtt deyfðar- tímabil í aðsigi. Fimmtánda starfsár var Konráð Gíslason kosinn formaður. Aðalmál, sem rædd voru, t. d. rætt um að félagið gengi í Samband verzlunarfélaga Islands (samband, sem Verzlunarmannafélag Reykjavíkur stofnaði til og í munu vera flest starfandi verzlun- armannafélög á landinu). Þess skal getið, að tillaga um þelta var felld, og hefir Merkúr ekki enn þá gengið í nefnt samband. Búðalokunarlögin og breytingar á þeim, 15 ára afmæli félagsins, rætt um sameiningu Verzlunarskóla Islands og Samvinnu- skólans o. fl. mál. Nemöndum beggja fyrnefndra skóla var boðið á fundinn og urðu umræður mjög heitar, en sýnilegur árangur mjög lítill. Félagsmenn i árslok 135. Sextánda slarfsár var formaður kosinn Gísli Sig- urbjörnsson. Aðalumræðuefni þessa starfsárs voru hin helztu: Fánamálið, hlutavelta, fyrirlestrar um verzlunarmál, námskeiðin, búðalokunarlögin, ný breyting, o. fl. Á miðju starfsári sagði Gísli Sigurbjörnsson af sér formennsku, þrátt fyrir áskoranir félagsmanna,