19 og var þá kosinn formaður Kristinn Guðjónsson, sem var fyrsti varamaður í stjórn, og var hann for- maður til enda starfsársins, eða réttara sagt til 16. nóv. 1930. Umræður, sem fram fóru á þessu starfsári, voru fremur litlar, deyfð yfir félaginu, en þess má þó geta, að sameiginlegir fundir með Verzlunar- mannaí'élagi Reykjavíkur voru haldnir 2, þar sem rætt var um sameiningu félaganna og frumvarpið um skyldunámið o. fl., en háru mjög litinn árangur.. Undirtektir undir sameiningu félaganna á fyr- nefndum fundum voru ekki svo hvetjandi, að frek- ar yrði út í það mál farið, og má því búast við, að vun sameing félaganna geti ekki verið að tala, þar skilur svo margt, sem ekki er ástæða til að skýra frá hér. Félagsmenn um 125. Á tyrnefndum tima, þann 16. nóv. 1930, var lialdinn aukaaðalfundur og sagði stjórn Kristins Guðjónssonar þar af sér, og var þá Gísla Sigur- björnsson falið samkv. áskorun að mynda stjórn að nýju, sem hann tók að sér með þvi skilyrði þó, að hann fengi óskorað vald um framkvæmdir í nánustu framtíð. Var það og auðsótt, þar sem fé- lagið var á fallanda fæti, og tilkynnti hann þar á þeim sama fundi, að eftir skamman tíma mundu félagsmenn heyra frekara frá aðgerðum stjórnar- innar. Bráðabirgðastjórnin, sem i voru sem meðstjórn- endur Sveinbjörn Árnason og Elinborg Þórðardótt- ir, byrjaði með þvi að halda kynningarkvöld þann 1. desembcr í K. R.-húsinu, og bauð þangað öllu 2*